Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2012, Blaðsíða 48

Læknablaðið - 15.12.2012, Blaðsíða 48
UMFJOLLUN O G GREINAR Líf og dauði í Bandaríkjunum og á íslandi Ritstjóri Læknablaðsins bað mig að skrifa um mismunandi viðhorf Bandaríkjamanna og Islendinga til lífs og dauða. Ég verð að við- urkenna að mér vafðist tunga um tönn eða fingur um mús. Síðan fyrtist ég og spurði af hverju í ósköpunum krabbameinslæknar væru alltaf tengdir dauðanum. Yfirvegaður geðlæknirinn mátti grípa til bráðrar atferl- ismiðaðrar hegðunarmeðferðar til að róa mig, en benti jafnframt á að greinar í Lækna- blaðinu væru nokkuð örugg leið til frama og frægðar. Ég hjólaði heim argur en með ný- vakta metorðagirnd gegnum dimma nóttina þann vindasama föstudag þegar þakplötur fuku á tónelskandi gesti Iceland Airwaves. Kominn heim, saltbarinn og sveittur, eftir að hafa þrætt einstigi milli lífs og dauða, beið mín endurvakinn Hemmi Gunn í sjón- varpinu. Lífið sveigði framhjá dauðanum og á skjánum birtist upprisan holdi klædd. Þá ákvað ég að slá til. Þið getið því þakkað Hemma og storminum þennan pistil. Það er fátt í lífinu sem hægt er að ganga að eins vísu og því að við munum öll deyja. Þetta er nokkuð óþægileg vitneskja sem við reynum líklega flest að spá ekki of mikið í. Við lifum lífinu og forðumst oftast dauðann, enda lífsþráin sterk. Margir sjúkdómar eru ólæknandi og sumir leiða til dauða innan fyrirsjáanlegs tíma. Þetta á við mörg krabbamein, þó að framfarir síðustu ára hafi breytt þessari mynd mikið. Við lok lífs vakna tilfinningar í brjósti þess dauð- vona og hans ástvina. Þessi viðbrögð geta verið mjög mismunandi og mótast af marg- víslegum þáttum, svo sem menningarlegum bakgrunni, fjölskyldu, stöðu í samfélaginu, menntun og lífsreynslu. Ég starfaði í 9 ár í Seattle í Washington- fylki á vesturströnd Bandaríkjanna. Þetta er frjálslynt samfélag sem birtist meðal annars í því að notkun kannabisefna er leyfð og hjónabönd samkynhneigðra eru lögleg. Varðandi lok lífs þá er það markvert að læknum er leyft að aðstoða sjúklinga til þess að fremja sjálfsvíg ef þeir uppfylla ströng skilyrði laganna. Allt þetta var lögleitt eftir almennar atkvæðagreiðslur í Washington- fylki. Eins og Bandaríkin í heild er svæðið suðupottur menningarheima og ein birting- armynd frjálslyndisins er umburðarlyndi gagnvart ólíkum menningarhópum og lögð er áhersla á að virða ólíka siði og venjur. Því er það að ólík viðbrögð við dauðanum koma mjög vel fram og heilbrigðisstarfsmenn, líkt og aðrir, viðurkenna þau. En er þetta öðruvísi á íslandi? Við erum frekar umburðarlynd og hið tiltölulega menningarlega einsleita samfélag er að breytast. Fólk bregst hér á mismunandi hátt við dauðanum og eru þau viðbrögð álíka fjölbreytt og ég kynntist í Bandaríkjunum. Þó viðbrögðin séu háð margvíslegum þáttum skín alltaf í gegn viljinn til að lifa, ótti þess dauðvona við hvað verður um ástvinina og söknuður ástvina eftir þeim dauðvona. Mismunandi bakgrunnur getur vissulega mótað þær aðferðir sem fólk beitir Gunnar Bjarni Ragnarsson er krabbameinslæknir á Landspítala gunnarbr@landspitali.is til að takast á við dauðann eða missinn, en þær ber allar að sama brunni, að sá dauð- vona og ástvinirnir sætti sig við það sem ekki verður breytt til þess að hann geti kvatt sáttur og þeir haldið áfram að lifa. Nálgun mín við hinn dauðvona er því mjög lík á Islandi og í Bandaríkjunum. Það sem helst er ólíkt er að nándin hér er mun meiri og helgast fyrst og fremst af smæð samfélags- ins miðað við stórborgina Seattle. Það hefur í för með sér að félagslegt net sjúklingsins er yfirleitt þéttriðnara á Islandi. Smæðin gerir það líka að verkum að ég sem læknir hverf ekki í fjöldann þegar vinnutíma lýkur. Ég má eiga von á að aðstandandi hafi aðgang að mér í mínum frítíma þegar ég á síst von á. Þessu má líka búast við í álíka smáum samfélögum í Bandaríkjunum og ég myndi líklega upplifa þetta enn sterkar ef ég starf- aði utan Reykjavíkursvæðisins. Dauði sjúk- linga mótar því frekar líf mitt utan vinnu- tíma á Islandi en að nokkur raunverulegur munur sé á viðbrögðum Bandaríkjamanna og Islendinga við dauðanum. Að þessum orðum sögðum vil ég nota tækifærið til að hvetja alla til að nota jólahá- tíðina til að styrkja tengslin við ástvinina og fagna því að þrátt fyrir fjölbreytileika lífsins erum við innst inni öll eins, sem kemur hvað berlegast í Ijós þegar okkar hinsta stund rennur upp. Gleðileg jól, farsælt komandi ár og takk fyrir hið liðna. Er ráðstefna framundan? Alhliða skipulagning ráðstefna og funda Engjateigur 5 1105 Reykjavík | 585-3900 | congress@congress.is | mmm.congress.is REYKJAVIK 676 LÆKNAblaðið 2012/98
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.