Læknablaðið - 15.12.2012, Blaðsíða 40
UMFJÖLLUN O G GREINAR
Kennsla læknanema í Hong Kong
Sigurbergur Kárason
skarason@landspitali.is
Sigurbergur Kárason, dósent HÍ, yfirlæknir
svæfinga- og gjörgæsludeild Landspítala Fossvogi,
hann er í ritstjórn Læknablaðsins
Alma D. Möller
Kári Hreinsson
Um nokkurt skeið hefur verið áhugi
meðal þeirra sem taka þátt í kennslu í
svæfinga- og gjörgæslulækningum við
Landspítala að endurskoða fyrirkomulag
við kennslu og nám læknanema og
deildarlækna. Reyndar hafa læknanemar
kosið námskeiðið í svæfinga- og gjör-
gæslulækningum besta námskeið lækna-
deildar tvívegis á seinustu 8 árum, síðast
veturinn 2008-2009. Það hefur því verið
vel heppnað og á eflaust einhvern þátt
í því að deildarlæknastöður á svæfingu
hafa verið vinsælar og nokkur fjöldi er
erlendis í framhaldsnámi í sérgreininni.
Námskeið læknanema hefur verið byggt
upp á hefðbundnum fyrirlestrum og
tveggja vikna verklegu námi ásamt verk-
efnavinnu og munnlegu prófi í lokin.
Deildarlæknar dvelja styst 6 mánuði við
deildina en þeir sem ætla í sérnám eru við
deildina í eitt til tvö ár áður en þeir halda
utan. Meðan á dvöl þeirra stendur taka
þeir ríkulegan þátt í klínískum störfum og
sækja fyrirlestra einu sinni í viku.
Eitt af því sem þó hefur vantað upp
á við námið eru tækifæri og aðstaða til
hermikennslu. Margir hafa bent á skort á
slíkri aðstöðu en kostnaður og húsnæðis-
leysi hafa hamlað úrbótum. Slíkt verk-
efni gæti þó verið sameiginlegt með HÍ
og Landspítala, enda myndu báðir aðilar
njóta góðs af. Kennsla nema á heilbrigðis-
vísindasviði yrði þannig áhugaverðari og
raunverulegri og skilaði betur þjálfuðum
starfsmönnum til spítalans og annarra
heilbrigðisstofnana. Einnig myndi slíkur
búnaður ekki síður nýtast til viðhalds- og
framhaldsnáms hinna ýmsu heilbrigðis-
stétta. Allt þetta myndi stuðla að auknu
öryggi sjúklinga sem æ meiri áhersla hefur
verið lögð á hin seinustu ár.
BASIC-námskeiðin
Það vakti því athygli Ölmu Möller og
Kára Hreinssonar sem sóttu norrænt
þing svæfinga- og gjörgæslulækna fyrir
ári þegar þau heyrðu prófessor Charles
Gomersall kynna BASIC-námskeið fyrir
deildarlækna í sérnámi sem hann hefur
þróað í samvinnu við prófessor Gavin
Joynt og fleiri við Chinese University of
Hong Kong, en þar starfa þeir við Prince
of Wales Hospital. Charles er menntaður í
Bretlandi og Gavin í Suður-Afríku en báðir
hafa þeir starfað lengi í Hong Kong. BASIC
stendur fyrir Basic Assessment & Support
in Intensive Care og lýtur að greiningu
og meðferð bráðveikra sjúklinga á sjúkra-
húsi, á bráðamóttökum, legudeildum og
Yfirlitsmynd afHong Kongfrá The Peak, hæsta tindi á Hong Kong-eyju, yfir á meginlandið. Undirlendi erekki mikið og því mikið afháhýsum en á milli gróðurvaxnar hæðir (SK).
668 LÆKNAblaðið 2012/98