Læknablaðið - 15.12.2012, Blaðsíða 41
UMFJÖLLUN O G GREINAR
[ T 'i
L j 13Q
III ;
L J
111 J
Aðstaöa til hermikemislu - Mr Plas-
tic bíður í ofvæui eftir að verða bjarg-
að afáhugasömum læknanemum eftir
erfið veikindi. Prófessor Gavin loynt
leiðir kennsluna (ADM).
Prófessorarnir Gavin joynt og Charies Gomersall í hríðarkófi við Bláa Lónið þegar þeir heimsóllu
ísland síðastliðið vor (ADM).
gjörgæsludeildum. Á þessum námskeiðum er lögð mikil
áhersla á hermikennslu.
Þeir hafa ekki látið þar við sitja, heldur þróað nokkur
mismunandi námskeið: Very-BASIC, ætlað læknanemum
og unglæknum; BASIC, ætlað deildarlæknum sem
hyggjast læra gjörgæslulækningar og skyldar greinar
og reyndum gjörgæsluhjúkrunarfræðingum; BASIC for
NOW (nurses on wards), ætlað hjúkrunarfræðingum
á legudeildum og Paediatric BASIC fyrir barnalækna
og gjörgæslulækna á fullorðinsgjörgæslum sem einnig
sinna bráðveikum börnum. Þá hafa þeir þróað námskeið
um öryggi sjúklinga sem heitir Basic Patient Safety og
framhaldsnámskeið fyrir svæfinga- og gjörgæslulækna
sem heita Not So BASIC og Beyond BASIC varðandi
öndunarvélarmeðferð og meðferð við nýrnabilun sem
eru viðurkennd sem framhaldsmenntun af Evrópsku
gjörgæslulækningasamtökunum (ESICM) og haldin með
þeirra fulltingi. Síðast en ekki síst má nefna námskeið
sem þeir félagar gerðu í samvinnu við samtökin Læknar án
landamæra og nefnist BASIC DHS (developing health sys-
tems) fyrir heilbrigðisstarfsfólk í þróunarlöndum.
Öll námskeiðin eru byggð upp líkt og ALS-námskeiðin
(Advanced Life Support) varðandi endurlífgun sem margir
þekkja, með lestri hnitmiðaðrar kennslubókar, fyrir-
lestrum um valin efni en fyrst og fremst fjölda verklegra
æfinga, í hermi, með líkönum og í umræðuhópum. Þá
byggist kennsla læknanema einnig á rafrænum fyrirlestr-
um og kennslumyndböndum sem stúdentar geta farið inn
á þegar þeim hentar. Til að tryggja virkni á námskeiðinu
þarf að taka próf bæði fyrir og eftir námskeið.
LÆKNAblaðið 2012/98 669