Læknablaðið - 15.12.2012, Blaðsíða 47
UMFJOLLUN O G GREINAR
eins og hann hafi fengið syndaaflausn á
banastundinni fyrir öll sín glæpaverk.
Egill Skallagrímsson er eins og gang-
andi handbók í geðgreiningum en saga
hans er talin skráð af Snorra Sturlusyni.
Kannski var Egill maðurinn sem Snorri
vildi alltaf vera, gott skáld og siðblindur
sigurvegari sem konur stjórnuðu ekki.
En aldrei hefði hvarflað að Snorra að skil-
greina Egil frænda sinn sem geðveikan.
Menn báru harm sinn í hljóði enda til
lítils að kvarta. Þegar höfundur Grettis-
sögu lýsir erfiðum draumförum og of-
skynjunum sem tengjast augum Gláms
hafði enginn heyrt talað um áfallastreitu-
röskun.
Menn gátu ekki gert út á Trygginga-
stofnun ríkisins eða félagsmálastofnun.
Sögurnar hafa sinn gang og hetjurnar
lifa með allar sínar raskanir og láta þær
stjórna lífi sínu til góðra verka og slæmra.
En mestu skiptir að menn bera ábyrgð á
eigin lífi og gerðum og mæta örlögum
sínum möglunarlaust.
Fornmenn litu á áföll, sorg og dauða
sem eðlilegan hluta af lífinu sjálfu og létu
sig heiður og sæmd mestu skipta. Nútíma-
menn telja á hinn bóginn að lífið eigi að
vera fyrirsjáanlegt og áfallalaust. Allir eiga
rétt á eilífri æsku og stöðugri hamingju.
En tilveran hagar sér sjaldnast sam-
kvæmt þessum óraunhæfu hugmyndum
heldur býður upp á ósigra og vonbrigði.
Þeir sem búast við því að allt gangi alltaf
snurðulaust fyrir sig verða fyrir miklum
vonbrigðum. Menn komast að raun um
að áföll eru sársaukafull og raska heims-
myndinni. Þeim mun óviðbúnari sem
menn eru mótlætinu, þeim mun meiri
verður sársaukinn.
Þetta er ástæðan fyrir því að nútíma-
menn sem lenda í einhverjum mótbyr
í lífsins ólgusjó fá greininguna áfalla-
streituröskun, hvort heldur þeir misstu
köttinn sinn, hjólinu var stolið, jólabjórinn
uppseldur eða kærastan fór með öðrum
manni. Þetta skýrir þá kröfu þjóðarinnar
að áfallahjálparteymi sé alltaf reiðubúið
þegar eitthvað óvænt gerist. Menn hafa
glatað hæfileikanum til að vinna úr eða
sætta sig við áföll en finna sér blóraböggul
í hverju máli.
Þetta allt er tímanna tákn. Geðlæknar
hafa lifibrauð sitt af að sinna eðlilegum til-
vistarvandamálum venjulegs fólks og gefa
þeim nafn og númer. Greiningin firrir
fólk ábyrgð á eigin lífi enda er allt mót-
læti einhverjum að kenna. Menn treysta
ekki lengur á eigin getu til að leysa málin
heldur krefjast þess að einhver opinber
aðili geri það.
Nútímamaðurinn samþykkir ekki
forsendur lífsins sjálfs heldur treystir
því að tæknin muni færa honum eilífa
hamingju. Hetjur fornaldar sættu sig við
tilveruna eins og hún var, enda áttu þeir
engan annan kost.
Þegar íslendingasögur okkar tíma
verða skráðar eftir 7-800 ár verður engin
Hallgerður til að skrifa um. Hún fékk
geðgreiningu í barnæsku og var sett á
geðlyf sem gerðu hana bæði kyndaufa,
feita og flata. Þegar hún hitti Gunnar sinn
á Þingvöllum hafði hvorugt áhuga á hinu
svo að engin saga varð tiL
Þegar Grettir kom heim að Bjargi til
að falast eftir því að fá Illuga bróður sinn
með sér til Drangeyjar, sagði Ásdís móðir
þeirra að það kæmi ekki til greina. „Eg er
hætt að vera meðvirk með þér og þínum
glæpum, Grettir, enda búinn að vera á
Alanonfundum á Blönduósi í allan vetur!"
Þetta varð til þess að Grettir fór einn í
Drangey en Illugi fór í Fjölbrautaskólann á
Sauðárkróki á tölvubraut.
Er du opptatt av á kunne
kombinere spennende arbeid
med sterke naturopplevelser?
Da b0r du titte mot nord - for dette er kanskje akkurat noe for deg!
Det satses friskt ved Universitetssykehuset Nord-Norge HF i Harstad. Vi
s0ker etter nye engasjerte medarbeidere som 0nsker á være med pá
utviklingen av et moderne lokalsykehus.
OVERLEGE R0NTGENAVDELINGEN 2 stillinger
Kontaktperson: Seksjonsleder Trond Pedersen,
tlf. +47 77 01 51 35/ +47 99 27 59 25.
OVERLEGE MED SPESIALITET GYNEKOLOGIOG OBSTETRIKK
1 stilling
Kontaktperson: Seksjonsleder Kirsten jprgensen,
tlf. +47 77 01 52 92/+47 90 53 79 17
Spknadsfrist: snarest
Háper vi har vekket din interesse for stillingene og ser frem til á hpre o
nærmere fra deg! jj
Fullstendige annonsetekster, samt lenke til elektronisk soknadsskjema ™
finnes pá www.unn.no/jobbsok
Vi 0nsker ikke kontakt med annonseselgere!
UNIVERSITETSSYKEHUSET NORD-NORCE
DAWI-NORCGA UNIVERSITEHTABUOHCCEVIESSU •
LÆKNAblaðið 2012/98 675