Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2008, Blaðsíða 93
EFAHYGGJA OG AFNEITUN
sama skapi hafa vinstri menn „meira þol fyrir ríkisafskiptum“, eins og Jón
Olafsson heimspekingur hefur bent á.36 Frjálshyggjumennirnir eru Kklega
fyrst og frernst andvígir ráðandi loftslagsvísindum vegna þess að þeir óttast
að allar stjórnvaldsaðgerðir verði vatn á myllu heimssósíalismans. Þar sem
hlýnun jarðar af mannavöldum myndi leiða til aukinna ríkisafskipta er því
nærtækara að efast um vægi þeirra vísinda sem halda slíku fram.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson trúir því, rétt eins og skoðanasystkini
hans lengst til hægri á armi stjórnmálanna, að umhverfisverndarumræða
samtímans eigi rætur sínar í sósíalisma fortíðarinnar og því beri að berjast
gegn henni af öllum mætti. Þessi hugmynd hans skín alls staðar í gegn ef
grannt er skoðað.37 Og ef farið er nógu langt aftur má finna hana ódulbúna
í skrifum Hannesar. I kjallaragrein í DVfrá árinu 1993, „SósíaHsminn er
dauður, en ...“, segir hann: „Þótt sósíalisminn sé dauður, lifir sósíalisminn.
Sæti hans er aldrei autt. Astæðan er sú, að hann á sér volduga uppsprettu
og skírskotun í mannlegum tilfinningum, draumum og þrám. Margir geta
ekki hugsað sér þá óskipulögðu og skrykkjóttu þróun í átt til betra lífs, sem
kapítalisminn býður upp á. Þeir vilja annaðhvort stöðva þessa þróun eða
stjórna henni. [...] Eftir dauða sósíalismans hefur hann komið ffam aftur í
tveimur voldugum hreyfingum. Onnur er kvenfrelsishreyfingin. [...] Hin
sósíalistahreyfing okkar daga er umhverfisverndarhreyfingin: (Hún er eins
og vatnsmelóna. Græn að utan, rauð að innan!)“.38
I viðtali sem Freyr Eyjólfsson tók við Hannes Hólmstein í
Síðdegisútvarpinu á Rás 2 mánudaginn 22. október 2007 spurði hann nánar
út í þá fullyrðingu að vandi loffslagsumræðunnar tengist því hvernig hún
hefði blandast umræðuhefð stjórnmálanna og bætti við: „Menn hafa skipst
dáhtið í pólitískar fylkingar. Af hverju eru það helst hægri menn og frjáls-
hyggjumenn sem leggjast gegn þessari...?“39 Hannes leyfði honum ekki að
íslensk umræðuhefð“, bls. 26-28. Jón Steinsson hagfræðingur og Jón Olafsson
heimspekingur hafa einnig bent á hvemig pólitísk sannfæring hti afstöðu ein-
staklinga til loftslagsvísindanna. Jón Steinsson: „Hægrimenn og gróðurhúsaáhrif1,
2. ágúst 2006. Sjá: http://www.deiglan.com/10109.html [sótt 5. ágúst 2006] og
Gunnar Hrafn Jónsson: „Er hægt að vera hægri og grænn?“, Lesbók Morgunblaðsins,
9. september 2007, bls. 5.
36 Gunnar Hrafn Jónsson: „Er hægt að vera hægri og grænn?“.
3' Sjá t.d. Hannes Hólmstein Gissurarson: „Rousseau í stað Marx?“, Fréttablaðið, 10.
nóvember 2006, bls. 30.
38 Hannes Hólmsteinn Gissurarson: „Sósíalisminn er dauður, en ...“, DV, 26.
febrúar 1993, bls. 15.
39 Freyr brást þar við spumingum sem ég setti fram í grein minni: „Hannes gegn
heiminum“, Lesbók Morgunblaðsins, 20. október 2007, bls. 16.
91