Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2008, Blaðsíða 189
AFNEITUNARIÐNAÐURINN
Höfundurinn er stjórnmálaráðgjaíi sem heitir Frank Luntz.41 Eins og við
munum sjá hefur Exxon víða komið ár sinni vel fyrir borð. En að öðru
leyti er fyrirtækið í vanda statt: það stendur nú andspænis breiðfylkingu
vísindamanna sem sækir mátt sinn í sams konar eindrægni og ríkir um
þá skoðun að reykingar valdi lungnakrabbameini og að HlV-veiran valdi
alnæmi.
A vefsíðunni www.exxonsecrets.org eru skráð 124 félög og stofnanir
sem hafa, samkvæmt opinberum tölum frá Exxon, þegið fjárstuðning frá
fyrirtækinu eða eru í nánu samstarfi við aðila sem hafa þegið slíkan stuðn-
ing. Oll þessi félög og stofnanir hafa sama viðhorf til loftslagsbreytinga:
þau halda því fram að niðurstöður vísindanna séu mótsagnakenndar, að
vísindamenn séu ekki sammála, að umhverfissinnar séu blekkingarmeist-
arar eða brjálæðingar, og að aðgerðir af hálfu ríkisstjórna til að takmarka
loftslagsbreytingar hefðu í för með sér óþarfa tjón á hagkerfi heims-
byggðarinnar. Niðurstöður sem falla ekki í kramið hjá stofnunum þessum
eru kallaðar „ruslvísindi“ en niðurstöður sem styðja hugmyndir þeirra eru
hins vegar flokkaðar sem „traust vísindi“.
Meðal þeirra stofnana sem þegið hafa fé af Exxon eru þekktir veffniðlar
og þrýstihópar eins og TechCentralStation, Cato Institute og Heritage
Foundation. Sumar þeirra stofnana og félaga sem eru á umræddum lista
bera nöfn sem ljá þeim yfirbragð grasrótarhreyfinga eða háskólastofhana:
til dæmis Center for the Study of Carbon Dioxide and Global Change,
National Wetlands Union, National Environmental Policy Institute og
American Council on Science and Health.42 Nokkrar þessara stofnana,
eins og Congress of Racial Equality og George Mason University’s Law
and Economic Center, eru sannarlega grasrótarhreyfingar eða háskóla-
stofnanir. Viðhorf þeirra til loftslagsbreytinga er mjög svipað og tíðkast
hjá þeim hópum sem þiggja beina fjárstyrki frá Exxon. Enda þótt allir
þessir hópar og stofhanir séu staðsettir í Bandaríkjum Norður-Ameríku
er ekki hægt að segja annað en að skýrslur og annað efhi sem þær senda
ffá sér sé lesið víða og til þess vitnað. Tekin eru viðtöl við fulltrúa þessara
stofiiana, og vitnað í þá, um veröld víða.
Með því að veita fjármagni til þessa stóra hóps stofnana tekst Exxon að
ýta undir þá skoðun að efasemdir um loftslagsbreytingar séu útbreiddar.
41 Frank Luntz, „The Environment: A Cleaner, Safer, Healthier America", 2002.
Minnisblaðið sem lekið var til íjölmiðla má sjá hér: http://www.ewg.org/briefings/
luntzmemo/pdfTL untzResearch_environment.pdf.
4- www.exxonsecrets.org.
187