Þjóðlíf - 01.09.1987, Page 75

Þjóðlíf - 01.09.1987, Page 75
BÍLAR Bílar, tilfinningar og vmstrimennska Eöa: Vandi bílatöffara á blóma- og baráttutímum • Cordinn var langt á undan sinni samtíö. Þessi glæsivagn frá 1937 var búinn öliu því sem helst Pykir prýöa bíla í dag: framhjóladrifi, rafmagnsskiptingu og ökuljósum sem opnuðust upp úr {fambrettinu. f Nar ÞÁTTUR itilfinningalífinu j’Bílar eru snar þáttur í þjóðlífinu." Þessa llsju heyrum við oft, með tilheyrandi útlist- J^uum á þjóðhagslegu gildi vegakerfisins og undna slitlagsins, og svimandi tölum um ureiðaeign landsmanna. Allt er það nú róðlegt og vafalaust satt og rétt, en það sem rriUr finnst öllu fróðlegra er hvað „bílar eru Snur þáttur í tilfinningalífinu." Veltum því sv°lítið fyrir okkur. TIL FLUTNINGA ^'Lli TVEGGJA PUNKTA ( mir menn skilgreina bíla þannig: „Bíll er ki til að flytja mann eða hlut á milli tveggja nkta.“ f>á hugsum við bíladellukallar með e^ningu: „Aumingja mennirnir vita ki hvað þeir eru að segja, og af hverju þeir s.. aö missa. Þetta er svona álíka og að gfeina tónlist sem röð af misháum, mis- in> Uni tónum. Er þetta ekki bara tilfinn- ^kaleg bæling?" Enda kemur í ljós að þeir ^Þykjast vera gjörsamlega hlutlausir í af- i u sinni til bíla bráðna þegar á hólminn er hn f ’ ^ Laráttuglapma í augun og kreppa ana við að sjá verklegan jeppa göslast yfir Krossá, snúa sig nánast úr hálsliðnum og verða fjarrænir á svip ef þeir sjá opinn 2ja manna Jaguar E Type á götu í London (merkilegt að enginn skuli vera til hérlendis) og vita ekki hvort þeir eiga að bölva kapítal- ismanum eða lofa hönnuðina þegar dimm- blár Mercedes Benz 300 SE geysist fram úr þeim á Keflavíkurveginum. FRUMKRAFTURINN LÍFIÐ SJÁLFT Vitaskuld gegna bílar miklu veigameira hlut- verki en að flytja mann eða hlut á milli tveggja punkta. Fyrir suma menn eru þeir lífið sjálft, efni í drauma í svefni sem vöku, hlutgerfingur ævintýranna, flutningavagn draumadísanna, táknið um frumkraftinn í sjálfum okkur og jafnframt farvegurinn fyrir hann. Það er vissulega engin tilviljun að eng- ar vörur eru jafn oft auglýstar með hjálp sætra stelpna og bílar og hlutir þeim tengdir; ýmist standa villtar ungmeyjar hjá blóðheit- um tryllitækjum og höfða til stráksins í okkur ellegar fínlegar glæsidömur halla sér blíðlega upp að dýrari límósínum og eiga að laða fram herramanninn. Og bílaframleiðendurnir vita vel hvað klukkan slær og úða góðgætinu í varnarlaus- ar sálir: Sportbílum, GTI-útfærslum, 16 ventla vélum, beinum bensíninnspýtingum og rennilegum línum fyrir bundna slitlagið og risa-hjólbörðum, dráttarspilum og splittuðum drifum fyrir öræfin. Og sífellt dettur framleiðendunum eitthvað nýtt í hug, sem betur fer, því sá bíladellukall verður tæpast eldri sem ekki getur enn sem fyrr látið sig dreyma um hvað hann langar í næst. JÁTNINGAR GAMALS MAÓISTA Það gat verið erfitt að vera maóisti (með hippalegu ívafi) og bíladellukall á árunum kringum 1970. Við vorum þó óneitanlega nokkrir og urðum að fara dult með tilfinn- ingar okkar, a.m.k. á baráttufundum og í kröfugöngum. Þá var búið að taka öll vest- ræn, borgaraleg gildi úr sambandi, á yfir- borðinu a.m.k., og hvað var frekar til marks um misskiptingu auðsins og fánýti efnislegra hluta en það sem rann eftir götunum fyrir augum okkar. Eða hvað? Níundi áratugurinn er áratugur opnin- skárra fjölmiðlajátninga og nú fá lesendur Þjóðlífs hispurslausar játningar gamals maó- ista beint í æð: Fyrir tæpum tuttugu árum kom einatt saman lítill hópur ungra byltingarmanna (ég nefni engin nöfn fyrr en eftir 25 ár) eftir kröfugöngur og baráttu- fundi, dreypti á skosku vískíi, púaði digra vindla og átti fyrir sitt leyti heiminn því fram- tíðin var þeirra - og töluðu um hitt áhuga- málið: Bíla. Stöku sinnum bar einnig ungar stúlkur á góma, en það heyrði til undantekn- inga. Undirritaður var í þessum hópi. Við hreiðruðum um okkur í reykmettuðu her- bergi á stúdentagarði í skandínavískri höfuð- borg, angurværir af viskíinu (þá sjaldan að til var peningur til að slá í eina) og létum okkur dreyma. Einn var búinn að fara í bæinn í hverri viku hálfan veturinn til að kaupa miðviku- dagsútgáfuna af Hamburger Abendblatt, en henni fylgdi aukablað með bílaauglýsingum. Hann dreymdi um að fara til Hamborgar og kaupa notaðan BMW 2002 TI, ofboðslegt tryllitæki, og vissi allt um bílasölur þar í borg. Eina vandamálið var fjármögnunin, en hann fullyrti með glampa í augum að ef hann kæmist á góðan rækjubát í sumar og lifði á tvíbökum næsta vetur þá væri þetta ekkert mál. Annar félagi okkar var svo glórulaus jeppadellukall að það lá við að hann labbaði upp brekkur í lágadrifinu - þá tók hann stutt en kröftug skref. Hann hafði augastað á Willy’s 1947 sem hann hafði fundið í fjós- haug suður í Fossvogi í jólafríinu og gat feng- ið fyrir slikk. Það væri ekkert mál að rífa hann í sundur stykki fyrir stykki, þrífa allt upp, slípa síðan og mála, það væri svo sterkt í þessu að hann þyrfti örugglega ekkert að kaupa í hann. Og framtíðardraumurinn fólst í því að kaupa átta sílindra Chevrolet-vél 75

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.