Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2012, Page 31

Frjáls verslun - 01.05.2012, Page 31
FRJÁLS VERSLUN 5. TBL. 2012 31 ÞAu HAFA ORðIð Thomas Möller, framkvæmdastjóri Rýmis: STJÓRNUN lágt verð og umhverfisstefna Valdimar Sigurðsson segir að margir hafi þá skoðun, sem vissulega sé stundum fótur fyrir, að umhverfisvænar vörur séu dýrari en aðrar. Hann segir sögu af bandaríska risafyrirtækinu Walmart, sem er stærsti smásali í heiminum, sem fór ákveðna leið í þessum efnum. „Upphaflega fór Walmart að bjóða þekkta vöru á lágu verði í sveitum Bandaríkjanna; við ­ skipta módel þeirra gekk út á að gera hvað sem var til þess að fá vöruna á lágu verði því lágt verð þýddi meiri sala og þá var hægt að semja um lægra verð við heild salann. Þannig urðu ákveðin spíraláhrif því þeir þurftu ekki að græða svo mikið á hverri seldri vöru vegna þess að þeir seldu í svo miklu magni.“ Valdimar segir að hjá Walmart sé nú lögð áhersla á að lægsta verðið fari vel saman við um­ hverfisstefnu fyrirtækisins. „Neytendur sjá til dæmis vísi tölu á hverri seldri vöru um gef ­ ur henni einkunn um hversu um hverfisvæn hún er. Það er til dæm is tekið tillit til hvaða efni eru notuð við vinnslu vörunnar. Þetta auðveldar neytandanum að meta umhverfisáhrif vörunnar þar sem þeir vilja góða vöru á góðu verði. Vísitalan metur m.a. hvaðan varan kemur, efnin sem notuð voru og hvernig aðstæður verkafólksins eru sem unnu við framleiðslu hennar. Walmart er farið að minnka plastnotkun og aðrar umbúðir. Það er ekki bara það að plastkostnaður minnkar heldur er flutningskostnaðurinn orðinn minni. Þetta skiptir millj­ örðum fyrir smásalann.“ Thomas Möller segir að kannanir sýni að ein­ungis um 15% kynninga á ráðstefnum og fundum nái tilsettum árangri. Hann hef ur mikla reynslu af að halda nám ­ skeið um kynningartækni og fram sögulist og segir að á meðal al gengustu mistaka ræðumanna séu m.a. að of margir misreikna tím ann sem fer í kynninguna og þeir ná ekki að halda sig innan réttra tímamarka. „Þetta leiðir til þess að ræðu­ maðurinn fer að flýta sér í lokin sem eyðileggur oft góða kynn­ ingu. Lausnin felst í að mæla tímann sem kynningin tekur áður en hún er haldin og stytta hana ef þarf.“ Þá segir Thomas að ein verstu mistök ræðumanna sé að reyna að segja of mikið. Hann segir að það eigi að halda sig við ákveð inn „rauðan þráð“ og koma að eins því áhugaverðasta á framfæri. Margir sýna of margar glærur en almenna reglan er að ein glæra dugar fyrir hverjar þrjár mínútur í ræðutíma. Það að prófa að halda kynningu án Power Point er góð æfing í að koma skila boðum á framfæri með hnit­ miðuðum hætti þar sem líkams­ tjáningin leikur mikið hlutverk.“ Thomas segir að margir hafi of mikið efni á hverri glæru og að hámarkið sé sjö línur á glæru og sjö orð í hverri línu. Þá ætti að hafa eina mynd á glæru sem styður við efnið. „Góð kynning snýst um að gera hversdagslegt efni áhugavert.“ Dr. Valdimar Sigurðsson, dósent við við- skiptadeild Háskólans í Reykjavík: MARKAÐSHERFERÐIN „Þetta leiðir til þess að ræðu- maðurinn fer að flýta sér í lokin sem eyðileggur oft góða kynn- ingu. Lausnin felst í að mæla tímann sem kynn ingin tekur áður en hún er haldin og stytta hana ef þarf.“ Ingibjörg Þórðardóttir segir að markaðurinn sé í jafn ­vægi og í dag sé hvorki eiginlegur kaupenda­ né selj endamarkaður, það sé jafn ræði og því í raun eðlilegt ástand á markaðnum. „Það er náttúrlega sumarleyfis­ tími og auðvitað finnum við að einhverju leyti fyrir því. Það róast yfirleitt alltaf á markaðnum í júní og júlí en hann fer að taka aftur við sér eftir verslunarmanna­ helgi. Hreyfing á fasteignum hefur annars verið nokkuð góð það sem af er þessu ári og hefur 20% fleiri kaupsamningum verið þinglýst en á sama tímabili í fyrra. Verð á fasteignum hefur hægt og sígandi verið að þokast upp á við. Markaðurinn er þó frekar stöðugur á milli vikna og engar sveiflur í verði né öðru. Fasteignasalar eru yfirleitt já­ kvæðir og bjartsýnir; hvað þá ef tekst að hemja verðbólguna en það mun hafa jákvæð áhrif á markaðinn.“ Ingibjörg bendir á að í könnun sem gerð var meðal fasteigna­ sala á Norðurlöndunum varð ­ andi hvað þeir teldu helst hafa áhrif á fasteignamarkaðinn núna hefði komið fram að 58% íslenskra fasteignasala teldu erf­ iðleika fólks að fá lán í bönkum hafa mest áhrif. Fasteignamarkaður í jafnvægi Ingibjörg Þórðardóttir, formaður Félags fasteignasala: FASTEIGNAMARKAÐURINN Góð kynning – vel undirbúin „Hjá Wal mart er nú lögð áhersla á að lægsta verð ið fari vel sam an við um - hverfis stefnu fyrirtækisins.“ „Hreyfing á fast eignum hef - ur annars verið nokk uð góð það sem af er þessu ári og hefur 20% fleiri kaup samn - ingum verið þinglýst.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.