Þjóðlíf - 01.09.1990, Page 11

Þjóðlíf - 01.09.1990, Page 11
mun að sumu leyti af sjálfu sér margfald- ast. Sú atvinnugrein mun einnig vaxa af öðrum ástæðum eins og aukinni eftir- spurn eftir því sem íslensk náttúra hefur upp á að bjóða. Ekki er óvarlega áætlað að ferðamannaþjónustan muni krefjast um tuttugu þúsund manns á næstu tíu árum. Miklu skiptir með tilliti til landverndar og umhverfismála, að vöxtur ferðamanna- þjónustu verði með skipulegum hætti; að gerð verði áætlun fyrir atvinnugreinina samfara gjörbreytingum á atvinnulífinu, — hver er æskileg fjölgun ferðamanna á ári, hvað getur landið borið marga ferða- menn og hversu hratt er hægt að byggja upp betri þjónustu, og hvernig verður það gert með hagkvæmustum hætti? Mögu- leikarnir eru óþrjótandi. Lykilatriði í þessu sambandi er að upp- bygging og vöxtur ferðamannaþjónustu helst í hendur við gjörbreytingu á öðrum sviðum atvinnulífsins. Þessi atvinnugrein á ekki hvað síst möguleika á verulegum vexti á landsbyggðinni og mun leysa þar önnur störf af hólmi. Ferðaþjónusta bænda hefur þegar sannað að hún getur orðið vænleg atvinnugrein; hægt er að bjóða upp á sérstæða tegund ferða- mennsku, kyrrð og nána snertingu við náttúru, sem sífellt fleiri sækjast eftir á öld hraðans. I þessu sambandi hljótum við að kynna erlendum ferðamönnum íslenska menningu — og selja þeim. Er hér ekki komið sóknarfæri fyrir íslenska menn- ingu? Um leið og fjölgar í at- vinnugreinum eru störfin að flytjast til — frá frumstörf- um til þróaðri starfa. Þannig munu hvers konar markaðsstörf í ferðamannaþjónustu eins og öðrum at- Þegar svo er komið að allur fiskur sem veiðist í íslenskri landhelgi verður boðinn upp á mörkuðum hélendis opnast þar með stærsti fiskmarkaður heimsins. Erlendir aðilar munu þá streyma til landsins, skapa tekjur af sjálfum sér, hjálpa til við að opna landið, og íslensk fyrirtæki stór og smá munu eflast og blómgast í þjónustu við hina erlendu kaupendur. greinum verða mannfrekari og fyrirferð- armeiri í framtíðinni. Um leið og landið verður opnað í raun fyrir útlendum ferðamönnum er óhjákvæmilegt að styrkja samkeppnis- stöðu ferðaþjónustu með því sem mestu skiptir; lækkun á verðlagi matvæla. Um leið og verðlækkun verður á matvælum eykst kaupmáttur launa í landinu, hlut- fallslega mest hjá þeim sem lægst hafa launin. Verðlækkun á matvælum er hægt að ná fram með uppstokkun í landbúnaði einsog síðar verður rakið. Samfara þeirri uppstokkun á hefð- bundnum atvinnuvegum sem hér hefur verið rakin, verður til ný byggð- astefna. Sú byggðastefna lítur á landið sem eina heild, skiptir því ekki með ber- línarmúrum upp í kjördæmi og hreppa. Ný byggðastefna hefur að stefnumiði að fólk vilji vera yfirleitt á landinu, það geti þrifist á íslandi og notið a.m.k. sambæri- legra kjara og nágrannaþjóðir. Hin nýja byggðastefna miðar ekki að því „að halda landinu í byggð“, heldur að halda fólki í landinu, — „að landið verði yfirleitt byggilegt". Meðal þeirra gjörbreytinga sem eru að verða í Evrópu er bylting í samgöngumál- um. Á meginlandinu er verið að byggja upp net hraðskreiðra járnbrautalesta. Hið sama á reyndar við um fleiri heimshluta. Margs konar tækniframfarir hafa orðið á síðustu árum í gerð og lagningu járn- brauta, sem fslendingar hafa ekki fylgst með. — Alvöru athuganir á hagkvæmi járn- brauta á íslandi hafa ekki verið gerðar síðan árið 1913, er Valgeir Björnsson síðar hafnarstjóri í Reykjavík gerði athugun á lagningu járnbrautar frá Búrfelli til Skild- inganess fyrir Títanfélagið (Einar Bene- diktsson), segir Emil Bóasson landfræð- ingur hjá Byggðastofnun. Hann kveðst reyndar hafa séð lauslegar tölur frá 1984, er áform voru uppi um byggingu álvers í Þorlákshöfn, en þá var gróflega kannaður kostnaður við lagningu járnbrautar frá Þorlákshöfn til Straumsvíkur og nam áætlaður kostnaður þá um 30 milljónir á km. Samkvæmt því kostaði 1000 km net um 30 milljarða, en gera mætti ráð fyrir að því viðameira sem netið verður, verði það ódýrara á hvern kílómetra. Slíkar járn- brautir yrðu auðvitað knúnar innlendri orku, raf- magninu. Emil kveður vinnu- ÞJÓÐLÍF 11

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.