Þjóðlíf - 01.03.1991, Qupperneq 22

Þjóðlíf - 01.03.1991, Qupperneq 22
ERLENT KGB leitar vinsælda Hin illræmda leyniþjónusta KGB vill nú bæta ímynd sína í augum sovétborgara með aðstoð vestrænna auglýs- ingafyrirtækja. Ætlunin er að auglýsa leyniþjónustuna í blöðum og sjónvarpi þannig að almennum borgurum finn- ist hinir óttalegu njósnarar vera í þjónustu þeirra við nauðsynleg störf. Boðskap- urinn á að vera sá að án KGB verði öngþveiti í landinu, — aðeins KGB sé í stakk búið til að koma í veg fyrir vaxandi glæpaöldu í landinu, — aðeins KGB geti ábyrgst röö og reglu í Sovétríkjunum. KGB-menn hafa átt viðræður við bandaríska auglýsinga- fyrirtækið BBDO um viðeig- andi auglýsingaherferð í sov- éskum fjölmiðlum... (Spiegel/óg) Kaþólskur prestur í Mexikó, Sergio Benitez (45 ára) grípur til óvenju- legra ráða til að aíla fjár í góðgerðastarfsemi. Hinn gjörvulegi faðir skiptir oft á hempunni og slagsmálabúningi og stígur inn íglímuhring- inn til að fást við fulltrúa hins illa. Fjöldi áhorfenda skemmtir sér konunglega og lifir sig inn í baráttuna milli góðs og ills, fagnaðarlætin eru mikil, en klerkur viðurkennir að slagsmálin séu öll fyrirfram ákveð- in. Guðsmaðurinn fxr að meðaltali um 25 þúsund krónur fyrir hvern slag. Fjármunimir fara til reksturs heimilis fyrir 86 munaðarlaus börn. Sergio Benitez stofnaði sjálfur heimilið, sem er í útborg Mexikóborg- ar... Endalok einsflokksræðis í Kenía? „Einsflokkskerfi leiðir óhjá- kvæmilega til einræðis", segir hinn 79 ára gamli stjórnmála- maður Odinga í Kenía. Þar í landi er borin virðing fyrir öld- ungum og hefur hann notið þess. Hann hefur leyft sér að kalla ríkisstjórnina „bandalag pólitískra glæpamanna" sem er mikil vogun í því einræði sem ríkir í landinu. Odinga Odinga. stofnaði í fyrra stjórnmála- flokk, — Þjóðlega lýðræðis- flokkinn, sem er bæði stefnt gegn valdaflokki Mois forseta og stjórnarskránni um eins- flokkskerfi sem samþykkt var 1982. Fram að þessu hefur ritskoðunin í landinu komið í veg fyrir að landsmenn hafi almennilega fengið að vita um hinn nýjaflokk, en hinn 66 ára gamli forseti Moi óttast hins vegar um eigið skinn. Hann hefur opinberlega dregið í efa að öldungurinn Odinga hafi getað sett saman pólitískan texta, þar sem gamli maðurinn sé svo sjóndapur. Sá hefur hins veg- ar svarað fyrir sig: „Annað fólk þarf aö stríða við langtum alvarlegri sjúkdóma eins og t.d. krabbamein í hálsi og hvítblæði". Þar var hann að vísa til sjúkdóma sem forset- inn þjáist af.... (Spiegel/óg) Nicu Ceausescu. Kommúnismi á sjúkrabeði Nicu Ceausescu, 39 ára gam- all sonur hins illræmda ein- ræðisherra í Rúmeníu sem tekinn var af lífi í desember 1989, lætur hugann reika um pólitík. Hann liggur á sjúkra- beði, sárþjáður af lifrasjúk- dómum, sem sagðir eru stafa af ólifnaði hans meðan fjöl- skyldan var við völd. „Komm- únisminn er í eðli sínu góður, en framkvæmdin var hör- mung“, sagði þessi playboy við vestræna fréttamenn. Sök- in á slælegri framkvæmd lægi í þeim „grundvallarmisskilningi að allir menn væru eins“. Hann treystir hins vegar ekki fátæk- um landsmönnum sínum fyrir því að komast að þessari nið- urstöðu: „Ég er viss um að kommúnisminn mun halda áfram í Rúmeníu eins og í Sov- étríkjunum“... (Spiegel/óg) Verður leikið á kerfið? Eftir mikið japl, jaml og fuður hefur breski menntamálaráð- herrann, Kenneth Clarke, ákveðið að öll sjö ára börn verði prófuð í lestri, en hingað til hafa engin formleg próf verið í yngri bekkjum skyldu- námsins. Ráðuneytið gaf út lista með um 50 lestrarbókum sem verða notaðar til að prófa börnin. Varð það til þess að foreldrar þustu í bókabúðir til að kaupa bæk- urnar í þeim tilgangi að undir- búa börnin sín sem best. Yfir- völd eru ekki hress með þetta enda segja reglurnar að börnin mega heyra eða lesa sögurnar í bókunum en ekki að þekkja þær vel fyrir prófið. Tim Eggar, aðstoðarráð- herra, segir, „Ég vona að hvorki foreldrar né kennarar haldi að eitthvað gagn sé í því að leika á kerfið. Ef við fáum vitneskju um að verið sé að æfa börnin munum við end- urskoða kerfið.“ (GJ/London) 22 ÞJÓÐLÍF
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.