Þjóðlíf - 01.03.1991, Síða 31

Þjóðlíf - 01.03.1991, Síða 31
HEILBRIGÐI Hjálp víd að hætta að reykja Nálastungumeðferðin getur í vissum til- > fellum aðstoðað reykingamenn sem reyna að hætta að reykja. Helstu fráhvarfseinkenni stórreykinga- > manna eru deyfð með nálastunguaðferð- inni. Líkamsmorfínin hafa auk verkja- stillandi áhrifa einnig veruleg slökunar- áhrif. Fráhvarfseinkennin eru að stórum hluta streituóþægindi, og því getur nála- stungan unnið gegn þeim. Nálarnar hafa eingöngu áhrif á fráhvarfseinkennin. Meðferðin er veitt á meðan þau eru mest, þ.e. fyrstu tvær eða þrjár vikurnar; oftast ekki í meira en þrjú skipti. Ljós °9 myrkur Þekkt hugtök í kínverskri heimspeki fjalla um það sem Kínverjar kalla Yin og Yang eigindir líkamans. Yang er bjarta hliðin, sólskinshluti hæðar eða norður- bakki ár. Yin er skuggahluti hæðar eða suðurbakki ár. Yin og Yang eru eigindir sem allir hlutar líkamans ráða yfir. Sum líffæri ráða yfir fleiri Yin og aðrir fleiri Yang eigindum. Hvorttveggja er þó alltaf til staðar samtímis. Yang eigindin liggur niður á við frá handleggjum niður í fætur. Hún liggur einnig eftir höfðinu. Yang eigindin liggur alveg eins eftir öllum líkamanum en upp á við, frá fótum til handleggja með viðkomu í höfðinu. Yin kona kalt himinn líf Yang karlmaður heitt jörð dauði Kínverjar tala einnig um orkubrautir í líkamanum sem skerast á Yin og Yang líkamans. „Chi“ er kínverskt tákn fyrir lífsorkuna sem flæðir eftir öllum brautum líkamans. Hún viðheldur stöðugleika, veldur breytingum og hitar líkamann. Þegar sjúkdómar skjóta upp kollinum hef- ur orkustreymið farið úr skorðum. Með því að stinga á rétta punkta líkamans er jafnvægi komið á aftur. Reykingar eru einn helsti óvinur heilbrigðis. Menn geta ekki litið framhjá þeirri staðreynd, hvort sem þeir vilja eða ekki. ÞJÓÐLÍF 31

x

Þjóðlíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.