Þjóðlíf - 01.03.1991, Side 25
Ungir Danir þreyttir á að
hafa öryggið á oddinum
Smokkar eru ákaflega þreytandi og
vandmeðfarin fyrirbæri og þegar ungir
Danir hafa notið unaðssemda ástarlífs-
ins með sama aðila nokkrum sinnum fá
smokkarnir leyfi til að liggja óhreyfðir í
pakkanum á náttborðinu. Þetta er m.a.
niðurstaða könnunar sem gerð var á kyn-
lífsvenjum ungra Kaupmannahafnarbúa
á aldrinum 13 - 20 ára.
Það eru aðallega hinar reyndari úr hópi
stelpnanna sem eru lítt hrifnar af smokk-
um. Þriðjungur þeirra eru það óánægðar
með gúmmíflík elskhuga síns að þær kjósa
aðeins að fyrirbærið sé notað endrum og
eins. Þrátt fyrir að helmingur unga fólks-
ins hafi góða reynslu af smokkum eru þeir
látnir liggja í friði eftir nokkrar bólfarir.
Þekking og skynsemi eru látin víkja fyrir
girnd og áköfum tilfinningum.
Um helmingur ungmennanna sem þátt
tóku í könnunni höfðu öðlast sína fyrstu
kynlífsreynslu áður en þau urðu 16 ára.
Það eru piltarnir sem eru duglegri að
þreifa fyrir sér í upphafi, en um 16 ára
snýst myndin við og stúlkurnar verða mun
virkari kynlífsneytendur en piltarnir.
Smokkar eru ennþá algengasta getnarð-
arvörnin við fyrstu samfarirnar, en stór
hópur kýs þó að hafa að engu aðvaranir
gegn AIDS og öðrum kynsjúkdómum og
notar p-pillur. Um fjórðungur ungmenn-
anna hóf sinn kynlífsferil án þess að hafa
getnaðarvarnir.
(bj.þ/danmörku)
Snyrlivörur fegra
ekki augu allra
Framkvæmdastjórn EB lagði nýlega
fram tillögur um breytingar á þeim regl-
um sem gilda um framleiðslu á snyrtivör-
um. Nýju tillögurnar hafa mætt mikilli
andstöðu dýraverndunarsamtaka í aðild-
arlöndum bandalagsins. Astæðan fyrir
því að dýraverndunarsamtök blanda sér í
hvað gerist í snyrtivörubransanum er að
þúsundir dýra þjást og deyja árlega á
tilraunastofum snyrtivöruframleiðenda.
ýraverndunarsamtök í Dan-
mörku hafa hafið áróðurs- og
upplýsingarherferð með það að markmiði
að sveipa hulunni af því sem gerist á til-
raunastofum snyrtivöruframleiðendanna
og fá almenning til að mótmæla notkun
dýra við prófanir á snyrtivörum. Það eru
aðallega við prófanir á ýmsum aukaverk-
unum snyrtivaranna, s.s. ofnæmi og út-
brotum, sem dýrin eru notuð. Þau efni
sem eru prófuð er dreypt í augun á kanín-
um, nuddað inn í húðina á hömstrum og
neytt ofan í rottur og hunda. Og áhrifin
eru óhugnanleg: bólgin augu, þurr og rifin
húð, uppköst, blæðingar og dauði.
Margir snyrtivöruframleiðendur hafa
kosið að hætta að nota dýr við prófanirnar
og valið að nota frumur sem hafa verið
ræktaðar á tilraunastofum, manneskjur
sem taka þátt í prófununum af fúsum og
frjálsum vilja eða einfaldlega notað þekkt
og viðurkennd efni.
Þær tillögur sem framkvæmdastjórn
EB hefur lagt fram um aukið öryggiseftir-
lit á innihaldi snyrtivara munu hafa þau
áhrif að enn fleiri dýr þurfa að þjást og láta
lífið á tilraunastofunum. Dýraverndunar-
samtök í öllum löndum EB hafa hafið
undirskriftasöfnun gegn notkun dýra við
prófun á snyrtivörum sem leggja á fyrir
Evrópuþingið seinna á árinu. Markmiðið
er minnst 2 milljónir undirskrifta. Eins og
Islendingum er vel kunnugt geta dýra-
verndunarsamtök haft gífurleg áhrif með
áróðursherferðum sínum og því ekki
ósennilegt að í framtíðinni fækki þeim
dýrum sem enda líf sitt í snyrtivöruverk-
smiðju.
(bj.þ./Danmörku).
Ertu á leiðinni utan?
VETRARTILBOÐ
HOTELIÐ VIÐ
FLUGVÖLLINN
42 þægileg herbergi,
fyrsta flokks
veitingastaður og bar.
Aðeins fimm mínútna
akstur frá Flugstöð
Leifs Eiríkssonar.
Hjá okkur fá ferðamenn
fyrsta flokks þjónustu.
- Alltaf.
Flug hótelið í Keflavík er
hótelið við flugvöllinn.
Vel búin herbergi og
svítur. Veitingasalur, bar
og rástefnusalur.
Bílageymsla í kjallara
akstur til og frá
Flugstöðinni.
VEISLU- OG
RÁÐSTEFNUSALUR
HAFNARGATA 57, 230 KEFLAVlK
SIMI 92-15222, FAX 92-15223
ÞJÓÐLÍF 25