Læknablaðið : fylgirit - 01.06.2006, Blaðsíða 5
ÁVARP FORMANNS / XVII. ÞING FÉLAGS ÍSLENSKRA LYFLÆKNA
XVII. þing Félags íslenskra lyflækna á Selfossi
Vísindaþing Félags íslenskra lyflækna er að
þessu sinni haldið á Selfossi. Reynt hefur verið
að vanda sérstaklega til dagskrár þessa þings
þar sem Félag íslenskra lyflækna á 60 ára afmæli
á þessu ári, en það var stofnað 13. mars 1946.
Fyrsta þing félagsins var haldið á Akureyri árið
1973 og hafa þingin að jafnaði verið haldin annað
hvert ár allar götur síðan. Þessi þing eiga ríka
hefð í íslensku vísindasamfélagi enda hafa þau
verið helsti vettvangur fyrir lyflækna hér á landi
til að kynna vísindarannsóknir sínar og fjalla um
áhugaverð málefni er varða starfsemi lyflækna eða
stefnumörkun á sviði heilbrigðismála.
Samþykkt hafa verið 73 ágrip til kynningar
á þinginu og endurspeglar sá fjöldi verulega
grósku í vísindastarfi lyflækna. A undanförnum
þingum hefur verið lögð áhersla á kynningu
vísindarannsókna með veggspjöldum og svo
verður einnig í þetta sinn því veggspjöld verða
alls 52 en munnleg erindi 21. Ákvörðun um hvort
kynning ágrips skuli fara fram með flutningi
erindis eða með veggspjaldi byggist ekki einungis
á vfsindalegu gildi þess, heldur var einnig horft
til þess hvort til það fæli í sér mikilvæg skilaboð
til lyflækna. Að venju verða veitt verðlaun fyrir
framúrskarandi rannsókn ungs læknis og fyrir
besta framlag læknanema. í því samhengi er rétt
að ítreka að litið er á veggspjöld og erindi sem
jafngild form.
Sú nýbreytni verður á þessu þingi að haldið
verður námskeið í klínískri lyflæknisfræði og fer
það fram fyrir hádegi á opnunardegi þingsins.
Fjallað verður um nokkur hagnýt viðfangsefni og
álitamál í lyflækningum. Námskeið þetta er kjörið
fyrir unga lækna sem stunda nám í lyflækningum
eða heimilislækningum sem og lyflækna og aðra
lækna sem vilja sækja sér símenntun á sviði
lyflækninga.
Þá er bryddað upp á þeirri nýjung að hafa
eitt meginþema á þinginu og urðu hjarta- og
æðasjúkdómar fyrir valinu. Tvö málþing verða
haldin þar sem valinkunnir læknar munu kryfja
til mergjar klínísk álitaefni á sviði hjarta- og
æðasjúkdóma. Annars vegar verður fjallað um
áhættu hjarta- og æðasjúkdóma í tengslum við töku
bólgueyðandi gigtarlyfja (NSAID/coxíb) en eins
og kunnugt er hefur þetta málefni verið ofarlega á
baugi undanfarin ár. Hins vegar verður tekist á um
fyrsta valkost í lyfjameðferð háþrýstings og hvort
tölvusneiðmyndun sé gagnleg nýjung við greiningu
kransæðasjúkdóms.
Tveir gestafyrirlestrar verða á þinginu. Þórarinn
Guðjónsson, frumulíffræðingur á Landspítala,
mun fjalla um notagildi stofnfrumna í klínískri
læknisfræði en það er ný nálgun að meðferð
sjúkdóma sem miklar vonir eru bundnar
við. Þá mun Stefan Lindgren sérfræðingur í
ineltingarlækningum og prófessor í lyflæknisfræði
við Háskólann í Lundi í Svíþjóð flytja fyrirlestur er
nefnist „The new biological agents in the treatment
of inflammatory bowel disease“. Þetta er mjög
áhugavert efni í ljósi þess að notkun einstofna
mótefna og annarra hliðstæðra próteinlyfja hefur
verið að ryðja sér til rúms á síðustu árum, einkum
við meðferð ýmissa bólgusjúkdóma og illkynja
sjúkdóma. Þessi lyf eru undantekningarlaust dýr og
því mikilvægt að notkun þeirra sé markviss.
Óhætt er að segja að lyflækningar séu einn af
hornsteinum heilbrigðisþjónustunnar. Því þykir við
hæfi að skoða stöðu lyflækninga á aðalsjúkrahúsi
þjóðarinnar, Landspítala. Verður það gert með
sérstöku málþingi þar sem fjallað verður um stöðu
og framtíð lyflækninga á Landspítala, þörfina
fyrir almennar lyflækningar og sérfræðinám í
almennum lyflækningum á Landspítala. Auk
þess munu tveir gestir, sem koma erlendis frá,
veita innsýn í stöðu lyflækninga á bandarískum
og sænskum háskólasjúkrahúsum en það eru þau
Björg Þorsteinsdóttir, lyflæknir við Mayo Clinic í
Bandaríkjunum, og hins vegar áðurnefndur Stefan
Lindgren, prófessor í lyflæknisfræði við Háskólann
í Lundi og núverandi forseti Evrópusamtaka
lyflækna (European Federation of Internal
Medicine).
Ekki má gleyma því tækifæri sem þing sem þetta
gefur til að njóta skemmtilegra samverustunda
með starfsfélögum og vinum. Því verður að venju
efnt til vandaðrar skemmtidagskrár í tengslum
við þingið. Sérstakur afmæliskvöldverður verður í
tilefni 60 ára afmælis félagsins.
Að síðustu eru stuðningsaðilum þingsins
færðar bestu þakkir. Sérstaklega ber að geta
lyfjafyrirtækisins Vistor sem er aðalstyrktaraðili
þingsins og má jafnframt geta þess að gerður hefur
verið samningur við fyrirtækið um að það verði
einnig aðalstyrktaraðili tveggja næstu þinga Félags
íslenskra lyflækna. Lyfjafyrirtæki munu að venju
standa fyrir kynningu á afurðum sínum í tengslum
við þingið.
Eg vonast til að sjá sem flesta lyflækna og aðra
áhugasama um lyflæknisfræði á Selfossi.
Runólfur Pálsson læknir,
formaður Félags íslenskra lyflækna
Runólfur
Pálsson
Læknablaðið/Fylgirit 52 2006/92 5