Læknablaðið : fylgirit - 01.06.2006, Blaðsíða 15

Læknablaðið : fylgirit - 01.06.2006, Blaðsíða 15
„Það er mikils virði að eiga góða hesta. Það kostar nefnilega alveg jafnmikið að vera með truntur, járnín kosta það sama, heyið kostar það sama og dýralæknirinn kostar það sama, en það er bara engin ánægja af því að ríða truntu.” urðuverk”, segir Halli íAndra því hve illa gengur að ná blóðfitunni niður og ég segist varla geta átt langt eftir svona staddur. Hann spyr mig hvort ég hafi prófað þetta nýja blóðfitulyf, Crestor. Nú, ég hringi í doktorinn og hann lætur mig hafa Crestor. Eg byrja á 40 milligrömmum og blóðfitan byrjar bara strax að lækka. Næst fer ég í 20 millgrömm og fitan lækkar og lækkar og í síðustu blóðprufu, sem var tekin fyrir um þremur mánuðum, er ég kominn enn meira niður. Það er víst þvert á venjur að lækka svona milligrömmin en doktorinn segir að ég sé wonderkeis. Ég er kominn mður í 10 milligrömm núna og ég bíð spenntur eftir að sjá resúltatið út úr því. Best er þó að ég hef alveg sloppið Vlð þetta indælis kál... ég hefði nú seint torgað því magni af káli sem hefði samsvarað þessum árangri, segir Halli °g hristist af hlátri. Pabbi dó úr kransæðastíflu 53 ára og það er nú t.d. einn með mér í sundlaugunum sem var skorinn rétt um fertugt, Pabbi hans dó fjörtíu og tveggja ára, þannig að það er nattúrulega bara genetíkin sem ræður. Ætli það sé ekki emn mesti óvinur mannsins að vita ekki að eitthvað sé að honum og það er mikil ástandsbreyting að vita þó alla vega að það er nokkurn veginn í lagi með mann. Rappari eða ráðherra Það er varla hægt að lýsa því hvað hestamennska gefur, segir Halli. Það er sko þessi værð og ró þegar maður er kannski bara að fetríða og ekkert að gera nema láta tímann líða. Ég veit ekki hvort maður er yfir höfuð nokkuð að hugsa. Svo eru það náttúrulega ferðalögin. Ég ríð mikið út með fólki fyrir norðan og það er þessi umpólun, allt annað fólk, allt annað umhverfi. Þá er maður svo gjörsamlega lokaður frá öllu og laus úr símasambandi. Það er allt svo afslappað í hestamennskunni, ekkert kynslóðabil, engin stéttaskipting. Þú ert kannski í ferð með ráðherra eða forstjóra á aðra hönd og rappra eða ýtumann á hina. Allir eru bara að njóta útivistar og samveru því hestar eru hópdýr og við mennirnir líka. mté 'iCRESTOR Sérlyfjatexti á bls. 48

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.