Læknablaðið : fylgirit - 15.04.2008, Síða 10
VISINDi A VORDOGUM
FYLGIRIT 56
sem var framsýn og náði yfir allt landið (1). Rannsóknartímabilið
var eitt ár frá 1. apríl 2001 til 31. mars 2002. Leitað var að upplýs-
ingum um böm og unglinga sem komu á bráðamóttöku, sjúkra-
hús eða heilsugæslustöð vegna eitrana. Að auki voru notuð
gögn frá Eitrunarmiðstöðinni frá sama tímabili.
Niðurstöður: Áttahundruð sjötíu og ein eitrun var skráð. Þessi
fjöldi svarar til 1,11% barna og unglinga á íslandi en tíðni eitr-
ana hjá fullorðnum er 0,44%. Böm þriggja ára og yngri áttu í
hlut í 59% tilvika. Þrjúhundmð níutíu og níu (45,8%) tilfelli
voru vegna lyfja en 472 (54,2%) vegna annarra efna. Algengasta
íkomuleið var inntaka (87,5%). Algengast var að um óhapp væri
að ræða (82,7%), 7,5% voru sjálfsvígstilraunir og 4,1% misnotk-
un lyfja. Hundrað tuttugu og sex (14,5%) börn fengu einhvers-
konar meðferð á heilbrigðisstofnun og 67 (7,7%) voru lögð inn
á sjúkrahús.
Ályktanir: Tíðni eitrana hjá börnum og unglingum var hærri en
hjá fullorðnum. Tæplega 60% eitrana og meintra eitrana í þess-
um aldurshópi voru hjá börnum þriggja ára og yngri. Meirihluti
eitrana voru minniháttar óhöpp og sjaldan var þörf á innlögn á
sjúkrahús.
(1) Kristinsson J, Pálsson R, Guðjónsdóttir GA, Blöndal M, Guðmundsson S, Snook
CP. Acute poisonings in Iceland: a prospective nationwide study. Clin Toxicol
2008; 46,126-32.
V-4 ígræðsla á nýrnahluta (autotransplantation) vegna
nýrnakrabbameins í báðum nýrum
Bjarni G. Viðarsson', Jón Guðmundsson* * 3,Ólafur S. Indriðason2, Eiríkur
Jónsson'
'Þvagfæraskurðlækninga-, 2nýrnalækninga-, 3röntgendeild Landspítala
bjarnigv@landspitali.is
Inngangur: Hlutabrottnám á nýra er viðurkennd aðgerð vegna
nýmakrabbameins. Sérstaklega á hún við ef til staðar er minnk-
uð starfsemi eða vöntun á gagnstæðu nýra. Forsenda slíkrar
meðferðar em krabbameinsfríar skurðbrúnir. Ef erfitt reynist
að framkvæma slíkt hlutabrottnám, á nýmastaðnum, kemur
til greina að fjarlægja allt nýrað, kæla niður og framkvæma
hlutabrottnámið á hliðarborði.
Tilfelli: 55 ára kona greinist, í kjölfar gallblöðrubólgu, með æxli
í báðum nýrum. Ekki merki um meinvörp. Þar sem æxlin lágu
miðlægt í báðum nýrum var ákveðið að fjarlægja og kæla hægra
nýrað og framkvæma hlutabrottnám á hliðarborði.
Niðurstaða: Heilbrigður efri hluti nýrans var græddur í grind-
arholsæðar og nýrnaskjóða tengd beint við þvagblöðru. í
kjölfarið var vinstra nýrað fjarlægt. Slagæða-bláæða fistill kom
fram í ígrædda nýrnahlutanum sem var stíflaður með gormi í
æðaþræðingu. Fjórum mánuðum eftir aðgerð er konan við góða
heilsu, án krabbameinsmerkja, með væga kreatínínhækkun.
Umræða: Lýst er fyrsta autotransplantation nýrnahluta á
íslandi. Aðgerðin leiddi til varðveislu á nýrnastarfsemi og forð-
aði viðkomandi frá tafarlausri blóðskilunarmeðferð. Þá tókst
með æðaþræðingu að meðhöndla alvarlegan fylgikvilla aðgerð-
arinnar.
V-5 Sjálfsprottið loftmiðmæti eftir iðkun jóga
Einar Hafberg1, Gunnar Guðmundsson14, Tómas Guðbjartsson3-4
‘Slysa og bráðadeild, 2lungnadeild, 3hjarta- og lungnaskurðdeild
Landspítala, 4læknadeild HÍ
hafberg@gmail. com
Inngangur: Sjálfsprottið loftmiðmæti (e. spontanteous pneumo-
mediastinum) er skilgreint sem óeðlileg loftsöfnun í miðmæti
án augljóss orsakavalds (t.d. sýkingar eða áverka). Um er að
ræða sjaldgæfan kvilla sem aðallega greinist í annars hraustum
karlmönnum. Oftast þarf enga sérstaka meðferð og horfur eru
ágætar. Hér er lýst einstæðu tilfelli af Landspítala.
Sjúkratilfelli: Áður hraustur 23 ára karlmaður leitaði á slysa-
deild Landspítala vegna brjóstverkja sem versnuðu við inn-
öndun og komu skyndilega tæpum 10 klst. áður þegar hann
var í svokölluðu Ashtanga-jóga. Var hann þá í bakfettu og
andaði um leið í gegnum nefið með lokað spjaldbrjósk. Þetta
kallast ujjayi-öndun og er eins konar afbrigði af svokallaðri
valsalva-öndun. Hann var ekki veikindalegur að sjá við komu
og lífsmörk voru eðlileg. Ekki sást loft undir húð og hlustun á
lungum var eðlileg. Hins vegar heyrðust skruðningsóhljóð yfir
hjarta en bæði hjartalínurit og hjartaómun reyndust eðlileg. Á
röntgenmynd af lungum sást loft í miðmæti og loftrönd í hægra
hluta gollurshúss. Verkirnir héldu áfram og 7 klst. eftir komu
voru fengnar tölvusneiðmyndir af brjóst- og kviðarholi. Þar sást
loftið í miðmætinu betur og umlukti það vélindað. Einnig sást
loftrönd í gollurshúsi en ekki loftbrjóst eða merki um fleiðru-
og/eða gollurshússvökva. Tæpum Vi sólarhring frá komu var
gerð skuggaefnisrannsókn af vélinda og maga sem var eðlileg.
Smám saman rénaði verkurinn og sólarhring síðar var hann út-
skrifaður nánast verkjalaus. Skoðun þremur dögum síðar var
eðlileg og röntgenmynd af lungum sýndi minna loft í miðmæti,
sérstaklega vinstra megin. Rúmu hálfu ári frá þessu er hann við
góða heilsu. Ekki hefur borið á endurteknum einkennum. Hann
hefur haldið áfram iðkun jóga æfinga.
Umræða: Loftmiðmæti getur greinst án áverkasögu, jafnvel eftir
iðkun jóga eins og í þessu tilviki. Slíku tilfelli hefur aðeins verið
lýst einu sinni áður. Þetta tilfelli sýnir mikilvægi þess að rann-
saka einstaklinga með brjóstverki ítarlega til að finna orsakir.
V-6 Sjálfsprottið loftbrjóst báðum megin samtímis vegna
lungnameinvarpa eistnakrabbameins - sjúkratilfelli
Gígja Guðbrandsdóttir1, Ásgerður Sverrisdóttir2, Adolf Þráinsson3,
Guðmundur Vikar Einarsson1, Tómas Guðbjartsson4-5
'Þvagfæraskurðdeild, 2krabbameinslækningadeild,
3myndgreiningardeild, 4hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítala,
5læknadeild HÍ
gigjag@hotmail.com
Inngangur: Sjálfsprottið loftbrjóst er algengur sjúkdómur sem í
2-4% tilvika getur greinst báðum megin samtímis (simultaneous
bilateral spontaneous pneumothorax, SBPS). Er þá oftast um
lífshættulegt ástand að ræða, enda langflestir þessara sjúklinga
með króníska lungnasjúkdóma, t.d. lungnaþembu og herpu-
sjúkdóma. í einstaka tilfellum getur SBPS greinst í sjúklingum
1 0 LÆKNAblaðið 2008/94