Læknablaðið : fylgirit - 01.05.2010, Page 38

Læknablaðið : fylgirit - 01.05.2010, Page 38
VISINDI A VORDOGUM FYLGIRIT 63 V-117 Lungnaskurðaðgerðir við lungnakrabbameini á íslandi: Tegund aðgerða og árangur Húnbogi Þorsteinsson', Ásgeir Alexandersson', Guðrún Nína Óskarsdóttir1, Rut Skúladóttir1, Helgi J. ísaksson3, Steinn Jónsson1,4, Tómas Guöbjartsson1- ‘Læknadeild HÍ, 2hjarta- og tungnaskurðdeild, Vannsóknarstofu í meinafræði, 4lungnadeild Landspftala hth140hi.is Tilgangur: Helstu skurðaðgerðir við lungnakrabbameini öðru en smáfrumukrabbameini (LÖES) eru blaðnám, lungnabrottnám og fleyg-/ geiraskurður. Hér á landi hefur vantað upplýsingar um hversu hátt hlutfall sjúklinga með LÖES gangast undir skurðaðgerð á lungum með lækningu að markmiði. í Bandaríkjunum hefur þetta hlutfall verið í kringum 30% en lægra í Evrópu (-20%). Markmið þessarar rannsóknar var að kanna þetta hlutfall hér á landi og bera saman árangur aðgerðanna þriggja- Efniviður og aðferðir: Afturskyggn rannsókn á öllum sjúklingum með LÖES sem gengust undir lungnaaðgerð á íslandi 1994-2008. Upplýsingar um tegund aðgerða, alvarlega fylgikvilla og skurðdauða (<30 d.) fengust úr sjúkraskrám. Upplýsingar um heildarfjölda greindra tilfella fengust úr Krabbameinsskrá, en þau voru 1757. Æxlin voru stiguð skv. TNM-kerfi og reiknaður lífshorfur. Borin voru saman þrjú 5 ára tímabil. Niðurstöður: Alls gengust 387 sjúklingar undir 397 aðgerðir; þar af voru 73% blaðnám, 15,1% lungnabrottnám og 11,9% fleyg-/geiraskurðir (tafla 1). Hlutfallið af öllum greindum sjúklingum var 22,6% fyrir allt tímabilið og breyttist ekld marktækt á milli tímabila. Ekki var heldur marktækur munur á tíðni tilviljanagreindra æxla á milli tímabila, hlutfalli sjúklinga á stigi I+II eða hlutfalli kirtilmyndandi krabbameina (58,7% í heild). Skurðdauði var 0,7% eftir blaðnám, 3,3% eftir lungnabrottnám og 0% eftir fleygskurð (p>0,l). Lífshorfur eftir lungnabrottnám reyndust marktækt verri en eftir blaðnám og fleygskurð (p<0,005), og marktækt betri á síðasta tímabili samanborið við það fyrsta (p = 0,04). Ályktun: Hlutfall sjúklinga með LÖES sem gangast undir skurðaðgerð í læknandi tilgangi á Islandi (22,6%) er vel sambærilegt við önnur Evrópulönd. Árangur aðgerðanna er góður, enda tíðni alvarlegra fylgikvilla lág og skurðdauði aðeins 1,0% fyrir hópinn í heild. Tafla 1 Blaðnám Lungna- brottnám Fleyg-/geira- skurður Samtals Fjöldi aðg. og hlutfall (%) af 290 60 47 397 heildarfj. greindra (n=1757) (16,5%) (3,4%) (2,68%) (22,6%) Hlutfall á stigi l+ll 78,9% 60,1% 95,7%* 78,1% Tíðni alv. fylgikvilla 5,9% 18,3%* 4,3% 7,6% 5 ára lífshorfur 44,6% 21,2%* 40,9% 40,3% Skurðdauði (<30 d.) 0,7% 3,3% 0% 1,0% * marktækur munur (p<0,05) V-118 Fylgikvillar blaðnámsaðgerða við lungnakrabbameini á íslandi 1999-2008 Rut Skúladóttir', Guðrún Nína Óskarsdóttir', Helgi J. ísakssorr, Steinn Jónsson11, Húnbogi Þorsteinsson', Tómas Guðbjartsson1'4 ‘Læknadeild HÍ, 2rannsóknarstofu í meinafræði, 3lungnadeild, 4hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítala rus2@hi.is Inngangur: Skurðaðgerð er helsta meðferðin við lungnakrabbameini og er langoftast beitt blaðnámi. Markmið þesssarar rannsóknar var að kanna ábendingar og snemmkomna fylgikvilla blaðnáms á íslandi. Efniviður og aðferðir: 213 sjúklingar sem gengust undir blaðnám vegna lungnakrabbameins á árabilinu 1999-2008. Kannaðar voru ábendingar, fylgikvillar, æxlisgerð og TNM-stigun. Aðhvarfsgreining var notuð til að meta áhættuþætti fylgikvilla. Niðurstöður: 85 sjúklingar (40%) greindust fyrir tilviljun en aðrir vegna einkenna sjúkdómsins. Kirtilmyndandi (62%) og flöguþekjukrabbamein (29,1%) voru algengust. Flestir greindust á stigi I (59,6%) og stigi II (17,8%), 7% á stigi IIIA og 14,8% á stigum IIIB-IV. Miðmætisspeglun var gerð hjá 13,6% sjúklinga fyrir blaðnámið. Meðal aðgerðartími var 128 mín. og blæðing í aðgerð 580 ml. Sextán sjúklingar (7,5%) fengu alvarlega fylgikvilla og 36 (17%) minniháttar fylgikvilla, oftast lungnabólgu (6,1%) og gáttatif/flökt (6,1%). Tólf sjúklingar þurftu enduraðgerð, tveir vegna fleiðruholssýkingar og einn vegna berkjufleiðrufistils. Eldri sjúklingar með hátt ASA skor og langa reykingasögu voru í aukinni hættu á að fá fylgikvilla eftir aðgerðimar. Legutími eftir aðgerð var 10 dagar (mið- gildi). Enginn sjúklingur lést <30 daga frá aðgerð en fjórir (1,9%) <90 daga frá aðgerð. Ályktun: Skammtímaárangur blaðnámsaðgerða vegna lungnakrabba- meins er góður hér á landi samanborið við aðrar rannsóknir. V-119 Hlutabrottnám á nýra vegna nýrnafrumukrabbameins á íslandi Elín Maríusdóttir5, Sverrir HarðarsonM, Vigdís Pétursdóttir2, Eiríkur Jónsson1', Valur Þór Marteinsson4, Guðmundur Vikar Einarsson1, Tómas Guðbjartsson3'5 ‘Þvagfæraskurðdeild, 2rannsóknarstofu í meinafræði, 3skurðsvið Landspítala, ^Sjúkrahúsinu á Akureyri, 5læknadeild HÍ elm1@hi.is Inngangur: Hlutabrottnám hefur löngum verið beitt við nýrnafrumu- krabbamein í stöku nýra eða þegar nýmastarfsemi er skert. í vaxandi mæli hefur aðgerðin verið framkvæmd hjá sjúklingum með lítil æxli og sýna rannsóknir að sjúklingum famast betur en eftir hefðbundið brottnám á öllu nýranu. Tilgangur þessarar afturskyggnu rannsóknar var að kanna ábendingar og árangur hlutabrottnáms hér á Iandi. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin tekur til sjúklinga sem gengust undir hlutabrottnám vegna nýrnafrumukrabbameins árin 1991-2005 á íslandi. Upplýsingar fengust úr sjúkraskrám og voru tilfellin TNM-stiguð, skráðir fylgikvillar og reiknaðar lífshorfur (Kaplan-Meier). Miðgildi eftirfylgdar var 94 mán. Niðurstöður: Alls voru gerð 25 hlutabrottnám (meðalaldur 60 ár, bil 33-80 ár, 20 karlar), eða 6% af 421 aðgerð á nýra við nýrnafrumukrabbameini á tímabilinu. í 18 (72%) tilfella greindust sjúklingar fyrir tilviljun. Algengasta ábendingin fyrir aðgerð var lítið æxli (<4 cm) hjá 40% sjúklinganna, 28% höfðu þekkta nýmabilun og 24% stakt nýra. Kreatinín fyrir og eftir aðgerð var 94 mm/L (bil 65-196) og 110 mm/L (bil 64-311) að meðaltali. Meðalstærð æxlanna var 3,6 cm og 84% sjúklinga voru á stigi I eða II. Aðgerðin tók 140 mín. að meðaltali og var meðalblæðing í aðgerð 926 ml (bil 0,1-5,4 L). Allir lifðu aðgerðina en 4 (16%) fengu fylgikvilla eftir aðgerð; blæðingu, þvagleka, ígerð í nýra, gamastíflu eða lungna- bólgu. Miðgildi legutíma var 8 d. Tveir sjúklingar (8%) fengu staðbundna endurkomu og fóru í brottnám á nýra. Eins og fimm ára lífshorfur (sjúk- dóma sértækar) voru 100% og 91%. Ályktanir: Hlutfall sjúklinga sem fóru í hlutabrottnám (6%) er heldur lægra en erlendis en fer vaxandi. Árangur af hlutabrottnámi er góður hér á landi, horfur góðar og staðbundin endurkoma krabbameins fátíð. Hafa verður þó í huga að flestir sjúklinganna höfðu lítil æxli á lágum stigum og því um valinn sjúklingahóp að ræða. V-120 Áhrif vökva og pressora á smáæðablóðflæði í þörmum við opnar kviðarholsaðgerðir Gísli H Sigurðsson, Luzius B Hiltcbrand, Oliver Limberger, Sebastian Brandt Department of Anaesthesiology, Inselspital, Beme and University of Bem, svæfinga og gjörgæsludeild Landspítala og læknadeild HÍ gislihs@landspitali.is Inngangur: Blóðþrýstingsfall er algengt við svæfingu sjúklinga sem undirgangast stórar kviðarholsaðgerðir. Venjan hefur verið að mæta þessari blóðþrýstingslækkun með aukinni i.v. vökvagjöf. Því hefur verið haldið fram að ríkuleg vökvagjöf tefji fyrir bata sjúklinga sem fara í valaðgerðir. Við könnuðum áhrif þess að nota noradrenalín í stað aukins vökva til að hækka blóðþrýsting hjá svínum sem undirgengust opna kviðarholsaðgerð í svæfingu þar sem líkt var eftir aðstæðum hjá mönnum við aðgerð og svæfingu eins og frekast var kostur. Aðferð: 20 svín voru svæfð, lögð í öndunarvél og skipt í viðmiðunarhóp C (n=10) og noradrenalínhóp NA (n=10). Báðir hópamir fengu Ringer laktat (RL) lausn í æð, 3 ml/kg/klst. Hópur NE fékk auk þess noradrenalín dreypi til að hækka meðalslagæðaþrýsting upp í 65 og 75 mmHg í tveimur skrefum. Hjartaútfall var mælt með stöðugri 38 LÆKNAblaðið 2010/96

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.