Listin að lifa - 01.10.2002, Blaðsíða 51

Listin að lifa - 01.10.2002, Blaðsíða 51
hvað líkamlegt er að trufla. Margir karlar vilja prófa VI- AGRA í kjölfar sjúkdóma og vegna öldrunareinkenna. Ég mæli með að konan sé í umræðunni um notkun þess. Það er mikið notað og hefur sýnt sig geta komið að not- um t.d. fyrir þá sem eru með æðasjúkdóma eða sykursýki. Viagra má ekki taka samtímis nitrat-sprengitöflum. Margar vísindalegar sannanir liggja fyrir um virkni Viagra-lyfsins. Fyrir konur eru til margir góðir skeiðastílar með estrogeni til að koma í veg fyrir þurrk eða ýmis sleipiefni. Engar vísindalegar sannanir eru fyr- ir lofaðri verkun snyrtivörunnar Viacreme, en þetta krem hafa konur samt verið að kaupa. Ég tel að með hverjum þú ert að elskast og hvernig tengsl ykkar eru, hafi mun meiri afgerandi áhrif á kynlöngun kvenna. Við eðlilegar öldrunarbreytingar þarf kröftugri örvun - eða vega upp á móti þeim með nánari tengslum tilfinningalega. Auðvelt er að loka augunum í ástarleikn- um, en þá lokar maður sig líka af. A- hrifameira er að vera með opin augu og vita hvort öðru, jafnvel þótt það sé skrýt- ið í byrjun! Sá sem er með lokuð augu lokar sig meira inn í sjálfum sér. Sumir upplifa svo sterka nálægð eða svo mik- inn kvíða að þeir verða að loka augun- um. En þarna erum við komin aftur að hvatningu kynlífsins, ekki satt? Þrennt ræ&ur hve gott kynlíf er: 1. Hver örvunin er, hvernig viö erum snert, hvaö viö heyrum, hvaö vib sjá- um, hvaö lykt og bragö viö skynjum. 2. Geta líkamans aö flytja boö um þessi áreiti og bregöast viö. 3. Hvaö manni finnst um þaö sem maöur er aö gera, tilfinningalega og hugrænt. Það er eðlilegt að við höfum áhyggjur, ef eitt- hvað er að fara úrskeiðis í kynlífi okkar. Þær sýna hversu mikilvægt kynlífíð er. Þá er gott að líta á þessa þrjá þætti til að gera okkur grein fyrir ástæðunni. Kynlífsvandamál er blessun í dulargervi. Við megum ekki vera ofurseld hormónum. Við eigum að hafa val um. hvort okkur langar eða ekki. Það er ekki góð leið að loka sig af í kynlífi. Ef þig langar ekki í kynlíf, geta verið góðar á- stæður fyrir því, líkamlegar, tilfinninga- legar, samskiptalegar eða þetta allt. Ef kona hefur góðar ástæður til að loka sig af, t.d. með að hafa aldrei áhuga á kyn- lífi með karlinum sínum, geta þessar á- stæður, fái þær að komast í dagsljósið, oft verið lykillinn að innilegra og betra kyn- lífi. Þetta á ég við þegar ég segi að kyn- lífsvandi getur verið blessun. Nýtur eldra fólk sín betur í kynlífí? Hugur og hjarta fylgir nánum sam- skiptum, einkum hjá mörgum eftir áratugasamvistir. Það angrar mig að heyra klisjur um hvenær fólk sé „á toppnum” kynferðislega. Það vill gleymast að þótt ungur karlmaður telji sig sterkan á kynlífssviðinu, þá er ekki víst að hjarta hans og hugur sé jafn ,, . . þroskað til að gefa af sér - en það ræður Yy? \ mestu um gott kynlíf. Náin tengsl í kyn- lífi geta verið farvegur fyrir djúpar og sterkar tilfinningar. Mikilvægi kynlífs er fólgið í því að það snertir sálina í okkur, ekki bara kynfærin. Leyföu mér aö veröa gamall meö þér, þaö besta á ennþá eftir aö koma. Fyrir þaö síöasta í lífinu var þaö fyrsta gert. Lausleg þýðing á Ijóði Robert Browning Úrval Námskeiða Hjá Endurmenntun Fjöldi námskeiða í boði á haustönn Félagar í aðildarfélögum Landssambands eldri borgara fá 10% afslátt af gjaldi námskeiða á Menningarsviði Hægt er að fá námskrána senda eða skoða úrvalið á Netinu: www.endurmenntun.is Endurmenntun ber ávíxt ENDURMENNTUN HÁSKÓLA ISLANDS /k/k/ www.endurmenntun.is • Sími 525 4444 k/ 51
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Listin að lifa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.