Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2011, Síða 58

Frjáls verslun - 01.01.2011, Síða 58
58 FRJÁLS VERSLUN 1.tbl.2011 RÁÐSTEFNULANDIÐ ÍSLAND HANN TELUR T.D. MIKILVÆGT að líta á vægi ráðstefna og skipulagðra viðburða fyrir ferðaþjónustuna í heild. Jafnvel þeir veitinga­ aðilar sem komi ekki beint að ákveðnum við burðum geti með einhverjum hætti tengst þeim og allir notið góðs af. „Veitingahúsaflóran í miðbænum gæti blómstrað með þessum hætti; þ.e. ef vakin yrði athygli á heildinni. Þá þyrfti ekki hver og einn rekstraraðili að leggja til aur og vera með auglýsingar, heldur gæti mögu­ lega verið nokkurs konar miðstjórn sem héldi utan um heildina. Þannig myndu þeir, sem reka litla veitingastaði eða verslun og þjónustu víðs vegar í borginni, sameinast við að þjónusta ráðstefnugesti. Í þeim til­ gangi að laða gesti til landsins þurfum við að standa öll saman, stór sem smá, í stað þess að bauka hver í sínu horni. Hestaleig­ ur, hvalaskoðun og menningargöngur myndu halda sinni sérstöðu þótt þeir aðilar ferða þjónustunnar myndu tengjast með einhverjum hætti.“ Jakobi finnst æskilegt að sama yrði upp á ten ingnum á landsbyggðinni: „Þegar ákveðið hótel vill vekja athygli á sér þarf í raun einnig að minna á héraðið sjálft og ýmsa möguleika fyrir ráðstefnu gesti. Það er allt í lagi að maðurinn á næsta bæ sé líka með sína ferðaþjónustu; það er um að gera að vekja athygli á honum líka.“ Sérstaða getur haldist innan samstöðu „Ég er er til dæmis þeirrar skoðunar að rangt sé að takmarka hversu mörg veitinga­ hús eru við tilteknar götur í Reykjavík; mér væri sama þótt öll húsin hér í Lækjargötu væru veitingahús, það ógnar mér ekki neitt. Hver hefur sína sérstöðu. Þá myndu málin þróast á þann veg að fólk hugsar: „Lækjargatan, jú, það er gatan þar sem allir veitingastaðirnir eru. Förum þangað í há­ deginu og ef fullt er á einum stað förum við á annan.“ Ísland er svo sannarlega spenn­ andi til ráðstefnuhalds. En við þurfum að auka fagmennsku í ferðaþjónustunni og gera meiri kröfur til starfsmannanna. Það er ekki nóg að brosa og segja gakktu í bæinn, reyndar er það ósköp huggulegt og sætt, en það þarf stundum meira til. Það er of mikið lagt upp úr því að ráða svokallaða aðstoð á veitingahúsin. Þótt ég væri leikmaður myndi ég finna að það skorti meiri fagmennsku í bransann, það þarf að leggja áherslu á að meistarar taki nema og kenni þeim. Og Íslendingar þurfa að læra að bera virðingu fyrir þjónust­ unni.“ Auka þarf fagmennsku í ferðaþjónustunni Jakob Jakobsson, eigandi Jómfrúrinnar í Lækjargötu, er þeirrar skoðunar að ef ætlunin er að Ísland verði ráðstefnuland þá verði allir í ferðaþjónust- unni að leggjast á eitt. Jakob Jakobsson veitingamaður: LÆKJARGATAN, ÞAR SEM ALLIR VEITINGASTAÐIRNIR ERU! Jakob Jakobsson, veitingamaður á Jómfrúnni, telur mikilvægt að líta á vægi ráðstefna og skipulagðra viðburða fyrir veitingageirann í heild. „Í þeim tilgangi að laða gesti til landsins þurfum við að standa öll saman, stór sem smá, í stað þess að bauka hver í sínu horni.“ Dægurmálin rædd í hádeginu á Jómfrúnni. Jómfrúartorgið á góðum degi. Skildi í þessum hóp vera ráðstefnugestir að skoða borgarlífið.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.