Frjáls verslun - 01.03.2010, Page 64
64 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 1 0
A
C
D
EB
Við munum síðar á árinu kynna Kids Parliament formlega í New
York eða Mið Austurlöndum. Við erum í náinni samvinnu við Sam
einuðu þjóðirnar þar sem við styrkjum menntun barna og jafn rétti
kvenna hjá þeim og höfum verið að kynna samtökin víðs vegar, til
dæmis á United Nations Economic and Social Council í New York og
The 3rd World Congress of Muslim Philanthopists Building a better
world í Doha í Qatar. Ég ferðast mikið á vegum samtakanna og tek
þátt í mörgum alþjóðlegum samkomum til að kynna þau.“
Hendrikka hefur síðustu ár sótt morgunverðarfund í boði bandaríska
lög gjafarþingsins sem haldinn er árlega í Washington. Fundurinn kallast
The National Prayer Breakfast þar sem Bandaríkjaforseti og um 200
manns víða að úr heiminum koma saman, þeirra á meðal nokkrir þjóðar
leiðtogar.
„Þetta eru mjög uppbyggjandi og áhugaverðir fundir,“ segir Hend
rikka. „Þetta er vettvangur fyrir þjóðarleiðtoga og forystumenn í félags
legu tilliti og í viðskiptum til að spjalla saman og byggja upp neta tengsl.“
RIKKA OG TÖFRAHRINGURINN Á ÍSLANDI
Hendrikka hefur skrifað sína fyrstu barnabók, Rikka og töfrahringurinn
á Íslandi, sem kemur bæði út á ensku og íslensku. Hún hafði æskuárin
á Íslandi í huga við bókarskrifin en hún segir að þá hafi hún oft velt
því fyrir sér hvernig hinn stóri heimur liti út.
„Þegar ég skoðaði myndir og tákn frá fjarlægum löndum hungraði
mig að vita meira um fólkið, menninguna og hefðir þeirra landa sem
ég myndi heimsækja á fullorðinsárum. Þetta er bók um Rikku og töfra
hringinn á Íslandi. Þegar hringurinn verður fjólublár má segja að Rikka
og vinkona hennar ferðist á milli staða.
Bókin bregður upp fyrir lesandanum öllu því sem gerir heimsókn til
undralandsins Íslands skemmtilegt fyrir börn. Ef bókin skapar löng un
hjá smáfólkinu til að ferðast um landið og erlendum krökkum að heim
sækja landið síðar á ævinni þá hefur hún náð tilgangi sínum og gert þau
meðvitaðri um fjölbreytta menningu og hefðir sem gera þennan heim
okkar svona ævintýralega spennandi.“
Um er að ræða fyrstu bókina í bókaröð af svipuðum toga sem ætlað
er að „kanna“ þau lönd sem Hendrikka hefur búið í – svo sem Indland,
Japan og Rússland.
„Hvert þessara landa býr yfir sínum sérkennum og fjölþættri menn
ingu sem ætlunin er að rannsaka og segja frá í myndum og ævintýrum
Rikku og vina hennar.“
Hendrikka gefur öll sín höfundarlaun til góðgerðarsjóðs Kids Parlia
ment sem munu styrkja námsmenn til háskólanáms á Íslandi. Þá munu
Vildarbörn njóta góðs af sölunni þar sem bókin fæst í Saga Boutique.
TENGSLANETIÐ
Tengslanet Hendrikku er víðfemt. „Tengslanet og þekking á notkun
þess er hið mikilvægasta í viðskiptaumhverfi nútímans. Það að kynnast
nýju fólki opnar ný tækifæri en mikilvægastur er hæfileikinn að skiptast
á skoðunum við kollega og að geta útskýrt hugmyndafræði mína fyrir
viðskiptavinum. Með skoðanaskiptum verða til nýjar hug myndir og
auk inn skilningur. Að skiptast á skoðunum við kollega mína eða fara
á skartgripakaupstefnur skerpir oft sköpunarmátt minn og hvetur mig
til að hanna nýja hluti.
Þar sem líf mitt snýst um hönnun þykir mér sannarlega ánægjulegt
að ræða hönnunarferlið við viðskiptavini mína. Ég hef komist að því
að fólki þykir afar áhugavert að heyra hvernig hugmynd sem kviknar
innra með mér verður síðan að hálsmeni eða eyrnalokkum. Í gegnum
tengslanet hagnast allir aðilar og geta þannig stofnað til hnattrænna
tjáskipta sem mikil þörf er fyrir. Að vera með gott tengslanet getur
auðveldað fólki að ná settu marki fyrr.“
H Ö N N U N
„Við einblínum meðal annars mikið á menntun barna, jafnrétti kvenna í þróunarlöndunum,
frumkvöðlastarfsemi og list sköpun.“
A. Hendrikka og Albert Mónakófursti. Hún gaf 18 karata demantshring á uppboði á The Better World Awards 2008 í Mónakó. B. Hendrikka Waage
og Bono Í U2 C. Hendrikka og Kerry Kennedy eru saman í samtökunum Kids Parliament. D. Leikkonan Geena Davis, Mr. Amir Dossal og Hendrikka
á fundi hjá Sameinuðu þjóðunum í New York þar sem Kids Parliament voru kynnt. E. Hendrikka og Sheikha Aisha bint Faleh AlThani sem situr í
fræðsluráði í Qatar en hún sótti þar fund sem forseti Kids Parliament.