Læknablaðið - 01.07.2014, Blaðsíða 11
LÆKNAblaðið 2014/100 379
Inngangur
Blóðbornir smitsjúkdómar eru erfitt heilsuvandamál
meðal sprautufíkla. Þessi sjúklingahópur er oft á jaðri
samfélagsins og er í aukinni hættu á slíkum sjúkdóm
um. Þeir leita sér síður læknisaðstoðar og meðferðar
heldni er jafnframt lakari en margra annarra. Árið 2007
varð snögg aukning á HIVsmitum í hópi sprautufíkla
á Íslandi. Á tímabilinu 20072011 greindust 34 HIVný
smit hjá sprautufíklum samanborið við fjögur nýsmit
í sama hópi árin 20022006. Á síðustu tveimur árum
hefur aukningin hins vegar gengið til baka. Árið 2012
greindust 6 nýsmit í þessum hópi og eitt nýsmit árið
2013.1 Ein af þeim aðgerðum sem hefur gefið góða raun
erlendis gegn útbreiðslu blóðborinna smitsjúkdóma
meðal sprautufíkla er nálaskiptiþjónusta, sem oft
er beitt ásamt öðrum úrræðum til skaðaminnkunar
(harm reduction).2,3 Hlutverk þjónustunnar er að veita
sprautufíklum ókeypis aðgang að hreinum nálum og
að safna notuðum nálum til förgunar.
Á Íslandi hefur þjónustan verið starfrækt af Reykja
víkurdeild Rauða Kross Íslands frá árinu 2009, en
umfangið hefur verið mismikið. Markmið rannsókn
arinnar var að meta hvort þessi þjónusta sé kostnaðar
virk forvörn gegn útbreiðslu HIV hjá sprautufíklum á
Íslandi.
Efniviður og aðferðir
Tekið var fyrir 10 ára tímabil, 20112020, og bornar sam
an aðstæður með og án nálaskiptiþjónustu. Kostnaður
og árangur var metinn fyrir hvort tilvik fyrir sig að
gefnum rökstuddum forsendum. Árangur var mældur
1Læknadeild,
2hagfræðideild Háskóla
Íslands, 3smitsjúkdómadeild
Landspítala.
inngangur: Árið 2007 varð snögg aukning á HIV-smitum meðal sprautu-
fíkla á Íslandi. Frá 2007-2011 greindust 34 HIV-nýsmit meðal sprautufíkla
samanborið við fjögur nýsmit árin 2002-2006. Markmið rannsóknarinnar
var að meta hvort nálaskiptiþjónusta væri kostnaðarhagkvæm forvörn
gegn HIV meðal sprautufíkla á Íslandi.
Efniviður og aðferðir: Kostnaðarnytjagreining var gerð út frá samfélags-
legu sjónarhorni. Verðlagsár greiningarinnar er 2011 og við núvirðingu var
miðað við 3% afvöxtunarstuðul. Borið var saman 10 ára tímabil, 2011-
2020 með og án nálaskiptiþjónustu. Kostnaðarnytjahlutfall var reiknað út
frá kostnaði á hvert lífsgæðavegið lífár. Næmisgreining var gerð á öllum
helstu forsendum.
niðurstöður: Heildarkostnaður samfélagsins vegna HIV-sýkinga sprautu-
fíkla á tímabilinu 2011-2020 var áætlaður 914.369.621 kr. án nálaskipti-
þjónustu en 947.653.758 kr með nálaskiptiþjónustu. Umframkostnaður
samfélagsins vegna nálaskiptiþjónustu á tímabilinu er því 33.284.137 kr.
Nyt samfélagsins af nálaskiptiþjónustu eru 7,39 lífsgæðavegin lífár. jafn-
framt kemur nálaskiptiþjónusta í veg fyrir 4-5 HIV-sýkingar á tímabilinu.
Kostnaðarnytjahlutfallið af því að veita nálaskiptiþjónustu í stað engrar er
4.506.720 kr.
Ályktanir: Samkvæmt viðmiði Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar er
aðgerð kostnaðarvirk ef hún skilar einu lífsgæðavegnu lífári fyrir minna en
þrefalda verga landsframleiðslu á einstakling á ári. Árið 2011 var þreföld
árleg verg landsframleiðsla á íbúa á Íslandi 15.329.757 kr. Næmisgreining
á helstu forsendum skilaði kostnaði innan þessara marka. Nálaskipti-
þjónusta er kostnaðarvirk forvörn gegn útbreiðslu HIV meðal sprautufíkla
á Íslandi.
ÁGRIp
Fyrirspurnir:
Magnús Gottfreðsson
magnusgo@landspitali.is
í lífsgæðavegnum lífárum (Quality Adjusted Life Year,
QALY) og fjölda HIVnýsmita og að lokum var kostn
aðarnytjahlutfall (Incremental Cost-Utility Ratio, ICUR)
reiknað. Þegar óvissa ríkti um forsendu var leitast við
að hún skekkti rannsóknina frekar að neikvæðu svari
til þess að niðurstaðan yrði varfærið mat á hagkvæmni
nálaskiptiþjónustunnar. Næmisgreining (sensitivity
analysis) var síðan gerð á helstu forsendum til að athuga
hvort skekkja í þeim hefði mikil áhrif á niðurstöðuna.
Til þess að svara rannsóknarspurningunni þurfti
viðmið fyrir kostnaðarvirkni en slíkt viðmið hefur ekki
verið gefið út á Íslandi. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
miðar við að aðgerð sé kostnaðarvirk ef hún skilar einu
lífgæðavegnu lífári undir þrefaldri árlegri vergri lands
framleiðslu á einstakling.4 Notast var við þetta viðmið
þegar niðurstöður kostnaðarnytjagreiningarinnar voru
túlkaðar.
Helstu forsendur
Fjöldi sprautufíkla á Íslandi er óþekktur. Í þessari rann
sókn var fjöldinn metinn út frá fjölda einstaklinga sem
innrituðust á Vog vegna sprautufíknar.5 Sprautufíkn er
langtímaástand þar sem skiptast á tímabil þar sem ein
staklingi tekst að ná stjórn á fíkninni og tímabil þar sem
einstaklingur er í virkri neyslu. Á hverju ári tekst hluta
sprautufíkla að ná stjórn á fíkninni en aðrir hefja aftur
virka neyslu, auk þess sem nýir sprautufíklar bætast við.
Það eru fyrst og fremst virkir sprautufíklar sem njóta
góðs af nálaskiptiþjónustunni. Gert var ráð fyrir að þeir
sem innrituðust á Vog vegna sprautufíknar á ári væru
Greinin barst
20. desember 2013,
samþykkt til birtingar
12. maí 2014.
Engin hagsmunatengsl
gefin upp.
Nálaskiptiþjónusta er kostnaðarvirk
forvörn gegn HIV á Íslandi
Elías Sæbjörn Eyþórsson1 læknanemi, Tinna Laufey Ásgeirsdóttir2 hagfræðingur, Magnús Gottfreðsson1,3 læknir
R a n n S Ó k n