Læknablaðið - 01.07.2014, Blaðsíða 57
Bráðasvið Landspítala
Bráðasvið Landspítala vekur athygli á lausum stöðum:
Námsstöður deildarlækna á bráðasviði
Lausar eru til umsóknar 3 stöður
deildarlækna á bráðasviði Landspítala.
Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt
samkomulagi.
Störfin eru laus frá 1. jan 2015 eða
samkvæmt samkomulagi.
Ráðið er til 6, 12 eða 24 mánaða.
Starfssvið bráðamóttöku spannar allar
almennar bráðalækningar.
Bráðamóttakan hefur viðurkenningu til
að veita framhaldsmenntun í
bráðalæknisfræði sem metin er til allt að
tveggja ára af sérfræðinámi.
Móttakan hlaut nýverið viðurkenningu sem besta kennsludeild LSH. Að auki var sérfræðingur
deildarinnar valinn besti klíníski kennarinn. Móttakan er í sífelldri þróun með mikilli áherslu á gæði og
öryggi í þjónustu við sjúklinga.
Á bráðasviði er rekið öflugt kennsluprógram fyrir deildarlækna í sérnámi. Í sumar og fram eftir vetri
verða mjög færir sérfræðilæknar frá Ástralíu við störf á deildinni og munu taka virkan þátt í bæði
formlegri og óformlegri kennslu á móttökunni.
Ef þú vilt…
Starfa á bráðamóttöku þar sem ríkir einstaklega góður vinnuandi.
Fá nýjar áskoranir á hverjum degi með fjölbreyttum vandamálum.
Hafa stöðugan aðgang að stuðningi og kennslu frá sérfræðilæknum.
Taka þátt í árlegum vinnubúðum með bráðainngripum.
Hafa möguleika á að taka þátt í vísinda- og gæðastarfi.
Vera lykilaðili í handleiðslu og kennslu kandídata og læknanema.
Fá að spreyta þig í vinnu með færum íslenskum og erlendum sérfræðingum.
Ef þú ert …
Hreinlega óviss hvað þú ætlar að verða þegar þú ert orðinn stór.
Ævintýramanneskja sem hefðir áhuga á mögulegu eins mánaðar fjöláverkastarfsnámi í Suður Afríku.
Þá er náttúrulega alveg ljóst að þú átt að sækja um ofangreinda stöðu!
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Sótt er um starfið rafrænt á; www.landspitali.is, undir "laus störf".
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.
Ákvörðun um ráðningu í starfið ræðst af viðtölum og innsendum gögnum.
Starfshlutfall er 100% eða skv. samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til og með 01.09.2014.
Störfin verða auglýst síðar formlega á www.starfatorg.is
Nánari upplýsingar veita
Hilmar Kjartansson, yfirlæknir, hilmarkj@landspitali.is - 543 1000
Hjalti Már Björnsson, sérfræðingur, framhaldsmenntunarstjóri, hjaltimb@landspitali.is – 543 1000
LSH Bráðalækningar Fossvogi 108 Reykjavík