Frjáls verslun - 01.03.2006, Blaðsíða 32
32 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 6
DAGBÆKUR
FORSTJÓRA
„Ég legg mikið upp úr persónulegum og
óformlegum samskiptum við samstarfsfólk
mitt og að geta leyst úr viðfangsefnum án
málalenginga. Einfaldleiki og stuttar boð-
leiðir eru einkennandi í fyrirtækinu og skýra
kannski að einhverju leyti þá velgengni og
góða árangur sem við höfum náð. Fundir
eru oft fjörlegir þar sem ólíkar hugmyndir og
skoðanir koma fram og það er mikilvægt
að svo sé. Öll sjónarmið eiga rétt á sér.
Ég vinn með skemmtilegu fólki sem kann
að gera grín að sjálfu sér. Það gerir starfið
auðveldara. En þá skiptir líka miklu að hafa
innsæi til að velja rétt fólk í liðið. Við höfum
verið lánsöm hvað það varðar,“ segir Finnur
Árnason, forstjóri Haga.
Á hlaupabretti í hádeginu
Finnur er kominn á fætur um klukkan sjö á
morgnana og byrjar daginn á því að fletta
dagblöðunum um leið og hann fær sér disk
af Cheerios. „Margir byrja daginn á því að
fara í ræktina, en við hjónin eigum fjögur
börn og ég segi að morgunleikfimin okkar
sé að koma börnunum í skólann,“ segir
Finnur kíminn, en hann er kominn til vinnu á
níunda tímanum.
„Mitt fyrsta verk hér á skrifstofunni er
að fara yfir sölu- og framlegðartölur frá deg-
inum áður og kanna í stórum dráttum hver
staðan er hjá þeim fimmtán fyrirtækjum
sem heyra undir Haga. Skiljanlega legg ég
mest upp úr því að vita hvernig landið liggur
hjá þeim fyrirtækjum sem eru með mest
umsvif og stundum þarf strax í býtið að
grípa til ráðstafana vegna aðkallandi mála.
Eftir þessi morgunverk fer ég yfir tölvupóst-
inn, en um tíuleytið byrjar gjarnan fundatörn
fram til hádegis. Ég reyni þá að komast í
Laugar minnst þrisvar í viku, því að líkams-
ræktin gerir mér ákaflega gott. Í annasömu
starfi verður maður stundum orkulaus þegar
líða tekur á daginn. Fari ég hins vegar á
hlaupabrettið í hádeginu kem ég þaðan sem
nýr maður. Ég er í raun að búa mér til viðbót-
arorku með því að hreyfa mig.“
Fundatörn í fyrirtækjum
Finnur kveðst leggja mikið upp úr því að
stjórna sjálfur tíma sínum, í stað þess að
starfið og annir þess vaxi sér svo rækilega
yfir höfuð að hann komist hvorki lönd né
strönd. „Mér finnst miklu skipta að vita
hvað er að gerast í verslunum okkar og
reyni í hverri viku að heimsækja nokkrar. Ég
fer oftast í stærstu verslanir okkar, m.a. í
Kringlunni og Smáralind, tala þar við starfs-
fólkið. Að hafa svigrúm til þessa finnst mér
mjög mikilvægt. Annars er meginstefnan sú
að gefa stjórnendum hvers fyrirtækis sjálf-
stæði og svigrúm, innan þess ramma sem
stjórnin markar. Hver framkvæmdastjóri ber
ábyrgð á sínu fyrirtæki. Fyrirtækin eru ólík
og hafa mismunandi menningu. Við höldum
stjórnarfundi í fyrirtækjunum á fjögurra til
sex vikna fresti. Höfum svona fundatörn.
Þar fáum við stjórnendur Haga framkvæmda-
stjórn viðkomandi fyrirtækis til okkar og
förum yfir markmið og áætlanir og könnum
hver staðan er, en þetta tel ég bæði tryggja
reglu og aga í starfseminni, auk þess sem
við reynum að vera hvetjandi.“
Formlegum vinnudegi hjá forstjóra Haga
lýkur yfirleitt ekki fyrr en á áttunda tímanum
á kvöldin. Hann segir þó algengt að hann
setjist við tölvuna aftur þegar líða tekur á
kvöld, eftir að þeim skyldum, sem heyra til
friðar fjölskylduföðurins, ljúki. Fari síðkvöldin
gjarnan í að svara tölvubréfum eða leggja
drög að næsta vinnudegi og þeim fjölbreyttu
viðfangsefnum sem bíða. „Þessu starfi fylgir
einnig vinna um helgar. Símhringingar á laug-
ardagsmorgnunum eru ekki óalgengar, því
oft koma í helgarblöðunum auglýsingar frá
keppinautunum sem kalla á viðbrögð okkar.
Auk þess sem verslun fer í auknum mæli
fram um helgar. Í rauninni má segja að í
þessu starfi sé ekki tími fyrir nein tímafrek
áhugamál. Maður sinnir vinnunni og fjölskyld-
unni - og hefur ekki svigrúm til annars.“
Fjörlegir fundir
FINNUR ÁRNASON
Finnur Árnason,
forstjóri Haga.
„Segi að morgun-
leikfimin okkar
sé að koma börn-
unum í skólann.“