Frjáls verslun - 01.03.2006, Blaðsíða 37
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 6 37
D A G B Ó K I N
28. mars
Actavis kaupir rúm-
enskt lyfjafyrirtæki
Enn fjár-
festir Acta-
vis Group.
Þennan dag
var sagt
frá því að
fyrirtækið
hefði keypt
rúmenska
lyfjafyrirtækið Sindan, sem er
leiðandi samheitalyfjafyrirtæki í
Evrópu í sölu krabbameinslyfja.
Kaupverðið var 147,5 milljónir
evra, eða um 12,8 milljarðar
króna. Þetta er því með stærri
fjárfestingum Actavis Group.
Með kaupunum opnast leið fyrir
Actavis inn á ört vaxandi markað
fyrir samheitakrabbameinslyf
- markað sem Actavis hefur ekki
starfað á til þessa.
29. mars
Tryggvi selur í Heklu
Tryggvi Jónsson hefur selt hlut
sinn í Heklu og er hættur þar
sem stjórnarformaður. Hjörleifur
Jakobsson er nýr stjórnarfor-
maður Heklu. Á aðalfundinum var
einnig fækkað í stjórn félagsins.
Með Hjörleifi sitja í stjórn Heklu
þeir Egill Ágústsson og Frosti
Bergsson.
Tryggvi Jónsson.
Eigendur Heklu eru Knútur Hauks-
son, forstjóri félagsins, Hjörleifur,
Frosti og Íslensk-ameríska og er
eignarhlutur þeirra nokkuð jafn.
29. mars
Ekkert nýtt vegna
sölu Búnaðarbankans
Barátta
Vilhjálms
Bjarnasonar,
aðjúnkts
við Háskóla
Íslands, fyrir
því að sýna
fram á að
þýski bankinn
Hauck & Aufhauser hafi ekki
verið eigandi að helmingshlut í
Eglu, þegar félagið keypti ásamt
fleirum hlut ríkisins á Búnaðar-
bankanum, hefur vakið mikla
athygli. Þessi hópur gekk undir
heitinu S-hópurinn.
Mörgum hefur fundist þessi
barátta Vilhjálms skemmtileg
þótt ýmsum hafi fundist hún
jaðra við þráhyggju þar sem ekk-
ert skilyrði var á sínum tíma sett
fram í auglýsingu Einkavæðingar-
nefndar við sölu hlutarins um að
forsenda til að kaupa hann væri
að hafa erlendan banka í kaup-
endahópnum.
Hvað um það, ríkisendurskoð-
andi fór ofan í málið eftir yfirlýs-
ingar Vilhjálms í byrjun mars
og gaf síðan frá sér yfirlýsingu í
bréfi til formanns fjárlaganefndar
Alþingis um að ekkert nýtt hefði
komið fram í þeim gögnum sem
stofnunin hefði undir höndum og
hefði aflað sér - sem stutt gætu
þær víðtæku ályktanir sem Vil-
hjálmur drægi í þessu máli. Þvert
á móti væri ástæða til að nefna
að ekkert nýtt hefði komið fram
í málinu.
31. mars
Erlend verðbréf
fella krónuna
Nettókaup Íslendinga á erlendum
verðbréfum í janúar og febrúar
námu 63 milljörðum króna.
Þessi mikla sókn í erlend verð-
bréf stafar m.a. af væntingum
kaupenda um gengislækkun
krónunnar. Nettóinnkaupin námu
um 29 milljörðum í febrúar og
um 34 miljörðum í janúar. Þessa
tvo mánuði í fyrra námu nettó-
kaup Íslendinga á erlendum verð-
bréfum aðeins um 7 milljörðum.
Eftirspurnin hefur því 9-faldast.
31. mars
Hagnaður Milestone
14 milljarðar
Hagnaður
Milestone
ehf. nam
tæpum 14
milljörðum
króna eftir
skatta á
síðasta ári.
Stærstu
eignir félags-
ins eru hlutabréf í Glitni hf. og
Sjóvá-Almennum tryggingum hf.
Eigið fé móðurfélagsins var í upp-
hafi árs rúmlega 2,9 milljarðar en
eigið fé samstæðunnar í lok árs
nam ríflega 23,6 milljörðum.
Róbert
Wessman.
28. mars
STANDARD & POOR’S
VEIFAÐI GÓÐRI EINKUNN
Ef eitthvað hefur verið mál mál-
anna frá áramótum í íslensku
viðskiptalífi þá eru það allar
þær mörgu skýrslur sem erlend
greiningarfyrirtæki og bankar
hafa sent frá sér um stöðu
íslensku bankanna og stöðuna
almennt í íslensku efnahagslífi
þar sem kjarninn í umsögn-
unum hefur verið sá að íslenskt
bankakerfi sé í hættu.
Þess vegna var eftir því
tekið þegar eitt allra virtasta
matsfyrirtækið, Standard &
Poor´s, gaf út nýtt mat um
lánshæfi Glitnis þar sem lang-
tímaskuldbindingar bankans
voru metnar A- og skamm-
tímaskuldbindingar A-2. Sömu-
leiðis að horfur bankans væru
stöðugar.
Vegna þessarar einkunnar
sagði í Vegvísi Landsbankans
að þetta væru ekki aðeins
góðar fréttir fyrir Glitni heldur
alla íslensku bankana eftir þá
miklu umræðu sem hefði átt
sér stað að undanförnu um
stöðu þeirra.
Orðrétt sagði í Vegvísi
Landsbankans: „Í að minnsta
kosti einni af hinum fjölmörgu
skýrslum sem gefnar hafa verið
út um íslensku bankana og
efnahagslífið á Íslandi er því
haldið fram að lánshæfismat
íslensku bankanna ætti að
vera BBB ef Standard & Poor´s
myndi framkvæma lánshæf-
ismat á þeim. Þessi skoðun
kemur m.a. fram í skýrslu
Merril Lynch frá 7. mars síð-
astliðnum. Hefur því Glitnir
fengið uppreisn æru og mun
þetta nýja lánshæfi að öllum
líkindum hjálpa bankanum við
fjármögnun sína og frekari vöxt
í framtíðinni.“
Vilhjálmur
Bjarnason.
Karl Werners-
son, stjórn-
arformaður
Milestone.