Frjáls verslun - 01.03.2006, Blaðsíða 72
72 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 6
H
efðbundnir eiginleikar leiðtoga
svo sem gáfur, þrautseigja,
ákveðni og framtíðarsýn eru
nauðsynlegir til árangurs en
nægja ekki einir og sér. Nú er talið að til-
finningagreind skipi stóran sess í árangri
einstaklinga.
Oft er talað um stjórnmálamenn sem
leiðtoga. En hver er munurinn á stjórnmála-
manni og leiðtoga? Og hafa þeir eiginleika
leiðtogans sem þarf til að ná árangri? Hver
er ábyrgð kjósanda gagnvart því að velja
„rétta“ fólkið með „réttu“ eiginleikana? Er
það eitthvað sem hinn almenni kjósandi
kynnir sér eða getur kynnt sér eða er það
eitthvað annað sem hefur meiri áhrif á val
kjósenda en eiginleikar frambjóðanda?
Leiðtoginn og tilfinningagreind
Daniel Goleman komst að því með rann-
sóknum sínum að hefðbundnir eiginleikar
eins og gáfur, þrautseigja, ákveðni og fram-
tíðarsýn eru nauðsynlegir til að ná árangri
sem leiðtogi en eru ekki nægjanlegir einir
sér. Það sem leiðtoginn þarf einnig að
hafa í farteskinu er tilfinningagreind. Til-
finningagreind getur bæði verið meðfædd
og lærð, hún er samheiti yfir margvíslega
hæfileika og byggir ekki á hreinni vits-
munalegri greind. Tilfinningagreind snýst
um hæfileika einstaklingsins til að þekkja,
skilja og stjórna tilfinningum sínum þannig
að það nýtist persónunni í hugsun og sam-
skiptum. Einnig hefur verið talað um til-
finningagreind sem kunnáttu og hæfni eða
sambland af þessu tvennu. Mjög mikilvægt
í þessu samhengi er að leiðtogar hafi hæfi-
leika til að skoða heildarmyndina ásamt því
að hafa skýra framtíðarsýn.
Tilfinningagreind
Tilfinningagreind skiptist í fimm þætti; sjálfs-
vitund, sjálfsstjórn, vilja til að ná árangri,
samkennd og félagslega færni.
A. SJÁLFSVITUND segir til um hversu vel
einstaklingur þekkir styrkleika sína og veik-
leika og er því meðvitaður um hvers hann
getur vænst af sjálfum sér sem og öðrum.
B. SJÁLFSTJÓRN byggist á því að hlusta á
tilfinningar sínar en leyfa þeim ekki að taka
völdin og þannig er auðveldara að byggja
upp traust og sanngirni. Þeir sem búa yfir
sjálfsstjórn eiga auðveldara með að laga
sig að breytingum sem er í dag mjög verð-
mætur eiginleiki.
C. VILJINN til að ná árangri er áherslan á
árangurinn árangursins vegna og brenn-
andi áhugi á vinnunni eða verkefninu er
einkennandi.
D. MEÐ SAMKENND er stjórnandi betur
fær um að skilja sjónarmið annarra. Sá
hæfileiki að skynja og bera umhyggju fyrir
tilfinningum og skoðunum annarra er mikil-
vægur til að ná árangri.
E. FÉLAGSLEG FÆRNI er að geta myndað
tengsl við alls konar fólk, hvar sem er og
hvenær sem er og er leiðtoganum nauðsyn-
legur.
Hvernig meta má pólitíska leiðtoga
Í nýlegri grein sem birtist í Journal of Social
Studies var bent á leið til að meta hvaða
einkenni gerðu forsetaframbjóðendurna í
Bandaríkjunum að áhrifaríkum leiðtogum.
Þar var talað um samskiptahæfileika,
skipulagsgáfu, framtíðarsýn í almennings-
heillamálum, vitræna hæfileika, stjórnmála-
hæfileika og síðast en ekki síst tilfinninga-
greind.
Leiðin sem farin var til að meta frambjóð-
endurna var annars vegar yfirlitstafla með
öllum frambjóðendum. Þar kemur fram
félagsleg staða, menntun og reynsla við-
komandi af stjórnmálum og hernaði ásamt
helstu stefnumálum.
Hins vegar meðfylgjandi tafla þar sem
fram kemur hversu vel frambjóðandinn
stendur sig í ákveðnum þáttum. Þannig er
kjósendum gert kleift að meta getu fram-
LEIÐTOGI
EÐA LIÐLESKJA?
Árangursríkir leiðtogar þurfa að geta tileinkað sér ólíkar
nálganir eftir mismunandi aðstæðum. Bestu leiðtogarnir
eru þeir sem hafa innsæi til að lesa í aðstæður hverju
sinni og breyta hegðun sinni samkvæmt því.
S T J Ó R N U N
TEXTI: NEMENDUR Í MEISTARANÁMI
VIÐ HÁSKÓLA ÍSLANDS
MYND: GEIR ÓLAFSSON