Frjáls verslun - 01.03.2006, Blaðsíða 116
116 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 6
ÚR EINU Í ANNAÐ
TEXTI: SVAVA JÓNSDÓTTIR
MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON o.fl.
Gunnar O. Skaptason,
framkvæmdastjóri
Bensínorkunnar.
Æskumyndin er af Gunnari O.
Skaptasyni, framkvæmdastjóra
Bensínorkunnar. Gunnar skorar
á Þorlák Magnús Níelsson,
framkvæmdastjóra Gæðakokka
ehf., að láta birta af sér næstu
æskumynd. Þeir hafa verið
félagar lengi. Þeir bralla ýmis-
legt saman; fara í veiðiferðir,
skotveiðiferðir, jeppaferðir og
ýmsar aðrar ævintýraferðir.
Æskumyndin:
Steinþór Skúlason, forstjóri SS,
er annálaður svifflugmaður. Þegar
Kári bítur og vindurinn blæs yfir
vetrarmánuðina snýr hann sér að
öðru.
„Á veturna er svifflugan í
vagni og þá nota ég tímann til
að þjálfa annars konar „flug“. Inn-
sæi er mjög gagnlegur eiginleiki
og þjálfun innsæis á örugglega
eftir að verða tekin inn í stjórnun-
arnám virtra skóla fyrr eða síðar.
Innsæi gagnast við að leita nýrra
hugmynda, leita lausna á vanda-
málum og finna hvort velvild eða
rýtingur er á bak við brosið.
Innsæi má efla með skipu-
legri þjálfun sem snýst um að
nota hugann með ákveðnum
hætti. Yfirleitt lýsir innsæi sér
sem tilfinning, góð eða slæm,
fyrir því sem verið er að fást
við, en þegar vel tekst til kemur
vitneskjan í formi mynda eða
jafnvel sem hljóð rödd í hugann.
Ég held að flestir sem ná langt
í viðskiptum séu gæddir góðu
innsæi.“
Steinþór bendir á að góðar
hugmyndir séu mikilla peninga
virði og því sé þetta eiginleiki
sem áhugavert er að þjálfa og
hliðaraðferð frá okkar venjulegu
vestrænu rökhugsun út frá
gefnum staðreyndum.
,,Það er stundum sagt að
engin vitneskja sé ný. Það þurfi
aðeins að kunna að sækja hana.
Stilla loftnetið ef svo má segja.
Þetta er einn af þeim eiginleikum
sem við erum gædd en erum
almennt ekki að nota sem skyldi.
Allir geta ræktað þetta með
sér og gert sig með því öflugri
einstaklingum. Vetur og skamm-
degi nýtast mér vel í svona
áhugamál.“
„Ég held að flestir sem
ná langt í viðskiptum séu
gæddir góðu innsæi.“
Innsæi:
INNSÆI MÁ ÞJÁLFA UPP
Frjáls verslun fyrir 31 ári:
Ég get aðeins afborið að vinna alla þessa
yfirvinnu með því að hafa mynd af kerling-
unni og krökkunum fyrir augum að staðaldri.