Frjáls verslun - 01.03.2006, Blaðsíða 39
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 6 39
D A G B Ó K I N
4. apríl
Ríkissjóður fær
hæstu einkunn
Sagt var frá því þennan dag
að alþjóðlega matsfyrirtækið
Moody´s hefði gefið ríkissjóði
Íslands lánshæfiseinkunnina
Aaa í nýjasta mati sínu. Segir í
skýrslu Moody´s að ekki steðji
hætta að greiðsluhæfi og lausa-
fjárstöðu Íslands. Ennfremur
segir í skýrslunni, að þótt fyr-
irtækið hafi varað við hættum
sem fylgi aukinni skuldsetningu
íslenska hagkerfisins, þá hafi
Ísland hæstu lánshæfiseinkunn
og horfurnar séu stöðugar - og
að Ísland standi ekki frammi fyrir
óhóflegum greiðsluhæfis- eða
lausafjárvandræðum vegna óstöð-
ugleika sem nýlega hafi gætt í
viðskipta- og fjármálaumhverfi
landsins.
5. apríl
Hannes Smárason
með meistaratakta
Hannes Smárason, forstjóri FL
Group, sýndi meistaratakta í
viðskiptum félagsins með bréf
í EasyJet. Hann var maðurinn
á bak við það að FL Group hóf
að kaupa í EasyJet og eignaðist
þar 16,9% hlut. Verð bréfanna
hækkaði jafnt og þétt við kaup
FL Group í félaginu og töldu
flestir að það ætlaði að yfirtaka
Easy Jet.
En síðan kom hinn óvænti
leikur Hannesar og það á hár-
réttum tíma; FL Group seldi
bréfin fyrir 30 milljarða króna
og hagnast um 13 milljarða á
sölunni. Söluhagnaður FL Group
vegna þessara viðskipta er
met. Baugur átti fyrra metið en
það var vegna sölu á bréfum í
Arcadia. Að vísu hefur Baugur
haldið því fram að þrátt fyrir
þann methagnað hafi það farið
á mis við miklu meiri hagnað af
þeim viðskiptum.
Fram kom í tilkynningu frá
FL Group að alþjóðlegi fjárfest-
ingarbankinn JP Morgan og JP
Morgan Cazenove hefðu haft
umsjón með sölunni til margra
fagfjárfesta. Þess má geta að
verð bréfa í Easy Jet lækkuðu
verulega við sölu FL Group.
6. apríl
Ritstjóri fríblaðs
Dagsbrúnar
í Danmörku
Blaðamað-
urinn David
Trads mun rit-
stýra fríblaði
sem Dags-
brún ætlar
að gefa út í
Danmörku,
samkvæmt
dönsku Ritzau fréttastofunni.
Trads er lektor í fjölmiðlafræði
við Syd-dansk háskólann, en
hann hefur meðal annars starfað
við dagblaðið Information þar
sem hann kom m.a. að undirbún-
ingi að útgáfu fríblaðsins metroX-
press. Eins hefur Trads starfað
hjá Jótlandspóstinum. Áður hafði
Dagsbrún ráðið Svenn Dam í
starf forstjóra og varastjórnarfor-
manns 365 Media Scandinavia
A/S.
7. apríl
Baugur kaupir í
House of Fraser
Baugur Group hefur keypt tæp
10% í bresku verslunarkeðjunni
House of Fraser. Um leið hækk-
uðu bréfin í House of Fraser.
Baugur greiddi 3,5 milljarða fyrir
bréfin. Baugur átti árið 2002 um
10% eignarhlut í House of Fraser
eftir að hafa keypt þar bréf jafnt
og þétt. Þennan hlut sinn seldi
6. apríl
ÞRÖNGT MEGA SÁTTIR SITJA
Það var kátt á hjalla við Háskóla Íslands þegar
þau Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamála-
ráðherra og Björgólfur Guðmundsson, stjórnar-
formaður Háskólasjóðs Eimskipafélagsins, tóku
fyrstu skóflustunguna að nýju Háskólatorgi. Þau
klifruðu upp í 35 tonna skurðgröfu og voru bæði
við stjórnvöl gröfunnar í þröngu stýrishúsinu.
Í ræðu eftir moksturinn sagði Þorgerður að
gott hafi verið að hafa Björgólf sér til halds
og trausts á vinstra lærinu en betra hefði
verið að hafa hann á því hægra. Háskólatorgið
mun kosta 1600 milljónir en Háskólasjóður
Eimskipafélagsins leggur 500 milljónir til fram-
kvæmdanna og Félagsstofnun Stúdenta 320
milljónir. Háskólinn sjálfur mun selja nokkrar
húseignir til að fjármagna torgið og Happdrætti
Háskólans leggja fram fé og taka lán vegna
byggingarinnar.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Björgólfur Guðmundsson taka fyrstu skóflustunguna að Háskólatorgi.
David Trads.