Frjáls verslun - 01.03.2006, Side 34
34 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 6
Með skemmtilegu og dugandi fólki
ERLENDUR HJALTASON
„Morgunfréttir Ríkisútvarpsins er fyrsta teng-
ingin mín við umheiminn, en fjölskyldan fer
yfirleitt á fætur um klukkan sjö. Ef erilsamur
dagur er framundan, fer ég gjarnan í ræktina
fyrir vinnu og er þá kominn á fætur klukku-
stund fyrr. Á morgnana fæ ég mér yfirleitt
skyr.is og les þau dagblaðanna sem eru
komin í hús. Raunar ver maður
sífellt lengri tíma við blaða-
lestur í morgunsárið. Það er
mikilvægt að fylgjast með því
helsta,“ segir Erlendur Hjalta-
son, forstjóri Exista.
Þegar Erlendur kemur á
skrifstofu sína er hans fyrsta
verk að fá sér kaffibolla, kveikja á tölvunni og
athuga stöðu á helstu mörkuðum. „Ég reyni
að svara tölvupósti og öðrum skilaboðum eins
fljótt og kostur er; það er kurteisi gagnvart
þeim sem maður er í samskiptum við. Hjá
Exista eru vinnubrögð þannig að nokkrir starfs-
menn sinna hverju verkefni - og þá heldur
hópurinn ýmiss konar fundi til að upplýsa um
stöðu mála og framgang þeirra. Yfirleitt eru
þetta góðar samkomur, enda finnst mér grund-
vallaratriði að vinna með skemmtilegu og
dugandi fólki.“
Í ræktina þrisvar í viku
Skipulag hvers vinnudags tekur alltaf mið af
þeim verkefnum sem eru til úrlausnar hverju
sinni. Ákveðnir fundir stýra dagskránni sem
og ferðalög. „Lausar stundir nota ég til að
lesa það sem þarf, ræða við samstarfsfólk
og meta stór og smá mál. Ég reyni að kom-
ast í ræktina tvisvar til þrisvar í viku, það er
á þeim tíma sem hentar hverju sinni. Best
finnst mér að fara á morgnana, en maður er
jafnánægður með sig á hvaða tíma sem er.
Aðalatriðið er að drífa sig. Ég
reyni líka að hitta gömlu félag-
ana öðru hverju í hádeginu
og fara á Rótarýfundi. Hvort
tveggja er afslappandi, það
er að tala um annað en verið
er að vinna með og rækta vin-
skapinn,“ segir Erlendur.
Hann þarf að ferðast talsvert starfs síns
vegna. Þau ferðalög eru mjög óregluleg og oft
ákveðin með skömmum fyrirvara. „Við slíkar
aðstæður hittir maður alltaf nýtt fólk og fær
þá oft góðar hugmyndir. Einnig er flugtúr oft
góður fyrir hugmyndir og eins að
lesa blöð og bækur sem
læra má af. Stundum
kemur fyrir að maður
setur eitthvað
spennandi niður á
blað á ferðalögum
sem síðar verður
að veruleika.
Hins vegar er
það svo með
nútímatækni
eins og tölvupóst í Blackberry og Netinu, að
maður er í raun alltaf í vinnunni sem leiðir
líka til þess að maður er alltaf að hugsa og fá
nýjar hugmyndir. Þá skiptir ekki máli hvenær
sólarhringsins eða vikunnar þetta er, kannski
til mismikillar ánægju fyrir fjölskylduna.“
Stundum er ég sveitamaður
En stundum koma þær stundir hjá Erlendi að
vinna er fjarri, enda ekki með tölvuna og sím-
ann við höndina. „Mér finnst afslöppun í því
að fara í hesthúsið og umgangast hrossin,“
segir Erlendur og brosir. „Því miður gefst ekki
mikill tími til þess en við erum svo lánsöm í
fjölskyldunni að góður maður sér um daglega
hirðu hrossanna. Því getur maður leyft sér að
koma og skella sér á bak með engum fyrir-
vara. Þannig nær maður að viðhalda þessu
skemmtilega áhugamáli og þar með undirbúa
þær ferðir sem fara á um sumarið. Það er
mikilvægt, því að ég er stundum sveita-
maður og finnst mikilvægt að halda
í þá taug.“
„Afslöppun í því
að fara í hesthúsið
og umgangast
hrossin.“
Erlendur Hjaltason,
forstjóri Exista.
Hvað kemst
fraktin þín hratt?
Tíminn flýgur hratt og með Flugfrakt Flugfélags Íslands gefst þér kostur á að taka þér far með
honum. Það er örugglega besta leiðin til að tryggja það að fraktin þín komist sem hraðast á
áfangastað.
Sækjum, fljúgum og afhendum
Einn þáttur í starfsemi Flugfraktar Flugfélags Íslands er að bjóða upp á þá þjónustu að sækja
fraktina til viðskiptavina, koma henni í flug og afhenda á áfangastað. Það gildir einu hvort um
flutning á matvörum og öðrum viðkvæmum vörum er að ræða. Við leysum það með fullkomnum
frysti- og kæligeymslum og höldum utan um allt ferlið með tölvuvæddu farmbréfakerfi.
Kynntu þér flutningaþjónustu okkar á www.flugfelag.is eða hafðu samband
í síma 570 3400 og fáðu upplýsingar um hvernig við getum aukið forskot
fyrirtækisins, með flutningum sem ganga hratt fyrir sig.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
FL
U
3
22
25
04
/2
00
6
www.flugfelag.is | 570 3400
DAGBÆKUR
FORSTJÓRA