Frjáls verslun - 01.03.2006, Blaðsíða 33
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 6 33
DAGBÆKUR
FORSTJÓRA
Gæðastund!
GUNNAR KARL GUÐMUNDSSON
„Ég er yfirleitt um hálftíma á leiðinni til vinnu,
stundum lengur, þar sem ég bý í Hafnarfirði
og vinn á Hólmaslóð vestur í Örfirisey. Mér
fannst þetta nánast óbærilegt og oft gætti
óþolinmæði þegar umferðin var hvað þyngst.
Þá átti ég til að ná svigi í gegnum kösina
með hæpnum tímasparnaði en miklum óþæg-
indum. Í dag lít ég á þetta sem helstu gæða-
stund dagsins og á erfitt með að hugsa mér
betri leið til að setja niður fyrir mér helstu
verkefni og skipuleggja daginn, auk þess
sem akstursmátinn hefur skánað,“ segir
Gunnar Karl Guðmundsson, forstjóri Skelj-
ungs.
Daginn byrjar Gunnar Karl yfirleitt á að
fletta upp í lófasímanum og kanna hvort
einhver póstur hafi borist sem bregðast þarf
við, án tafar. Hann gefur sér góðan tíma til
að fara yfir þau dagblöð sem borist hafa og
hlustar á morgunfréttir á meðan hann fær
sér fábrotinn morgunverð, til að mynda jógúrt
og appelsínusafa. „Þegar ég mæti í vinnuna
læt ég það yfirleitt verða mitt fyrsta verk að
fara yfir helstu breytingar á mörkuðum. Ég
fylgist núna með þróuninni þar, en hækkandi
olíuverð hefur slæm áhrif á rekstur þeirra olíu-
félaga sem ekki stunda olíuvinnslu sjálf.“
Unnið til sjö á kvöldin
Best er að halda vinnufundi milli klukkan tíu
og tólf á morgnana, segir Gunnar Karl, en
tekur þó fram að hann sé ekki fundaglaður
maður. „Morguninn er sá tími sem fólk er
opið og hugmyndaríkt. Þá er einnig gott
að vinna úr niðurstöðum funda seinni hluta
dags á meðan niðurstöður og hugmyndir eru
enn ferskar í minni. Síðdegis er fólk farið
að lýjast. Því skilja fundir á þeim tíma dags
stundum óljósri niðurstöðu og úrvinnsla dag-
inn eftir verður erfið. Hádegishléið hjá mér er
sjaldan langt. Ég borða oftast í mötuneytinu
en er alla jafna kominn fljótt aftur að skrif-
borðinu. Eftirmiðdagurinn og síðdegið eru fjöl-
breytilegur annatími þar sem sinna þarf ýmsu
er lítur að rekstrinum, auk þess að hafa sam-
skipti við lykilfólk utan fyrirtækisins, svo sem
viðskiptamenn, birgja, lánar-
drottna, eigendur, opinbera
aðila og starfsmenn Skelj-
ungs, svo eitthvað sé nefnt.
Mörg mál kalla á fundi eða
símtöl en önnur má afgreiða
með tölvupósti,“ segir Gunnar sem kveðst
yfirleitt vera í vinnunni fram til sjö á kvöldin.
„Í seinni tíð hef ég dregið mjög úr helg-
arvinnu enda nauðsynlegt að gefa sér tíma
til að hvílast þótt vinnan sé ávallt ofarlega í
huga. Oft fæðast bestu hugmyndirnar reyndar
í frítímanum. Því miður verð ég að játa að ég
er afar slakur í líkamsræktinni. Ég er með
kort í Laugum, en fer ekki jafn oft og ég ætti
og klárlega þyrfti,“ segir Gunnar Karl. Hann
er mikill jeppaáhugamaður og því kemur ekki
á óvart að bestu hugmyndirnar viðvíkjandi
starfinu fái hann í bílnum.
Aðgengilegur stjórnandi
„Ég legg áherslu á að vera
aðgengilegur stjórnandi. Hef
frekar dregið úr þátttöku í
ýmsum félagsstörfum svo
sem stjórnarsetu og tel tím-
anum betur varið á vinnustað. Vil að starfs-
menn geti náð til mín utan hefðbundins vinnu-
tíma ef eitthvað kemur upp á, enda geri ég
sömu kröfur til minna stjórnenda. Vissulega
getur fylgt því ónæði en yfirleitt er best að
taka strax á málum sem upp koma því oftast
reynast erfið mál enn illskeyttari viðfangs ef
þau dragast á langinn. GSM númerið mitt er
því ekkert leyndarmál og mig minnir reyndar
að það sé í símaskránni.“
„Fyrsta verk að
fara yfir helstu
breytingar á
mörkuðum.
Ég fylgist núna
grannt með þró-
uninni þar.“
Gunnar Karl Guðmunds-
son, forstjóri Skeljungs.