Frjáls verslun - 01.03.2006, Síða 74
74 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 6
L
eiðtogar og stjórnendur fyrirtækja
gegna mikilvægu ábyrgðarstarfi og
oft má rekja góðan eða slæman
árangur fyrirtækja beint til athafna
þeirra. Eitt af mikilvægustu hlutverkum
stjórnenda er að ýta undir frumkvæði starfs-
fólks og auka þátttöku þess í ákvarðana-
töku í því skyni að auka gæði ákvarðana.
Auk þess verða stjórnendur að sýna
samskiptahæfni, áreiðanleika, hæfni til að
byggja upp liðsanda og ýta undir þátttöku
starfsfólks. Samtímis verða stjórnendur að
leggja mikla áherslu á árangur, skýra fram-
tíðarsýn, stefnu og markmið.
Verkefni leiðtoga og stjórnenda framtíð-
arinnar verða því sífellt flóknari. Fjárfesting
í þróun stjórnenda er því ein mikilvægasta
fjárfesting sem fyrirtæki og stofnanir geta
ráðist í. Rannsóknir benda til að 60-75% af
lélegri frammistöðu fyrirtækja megi rekja
til stjórnenda.
Á síðustu árum hafa fyrirtæki í auknum
mæli innleitt svokallaða leiðtogaþróun sem
leið til að búa til öfluga stjórnendur og
bæta árangur. Reynslan af leiðtogaþróun er
misjöfn, en rannsóknir sýna að með réttri
aðferðafræði geta fyrirtæki byggt upp öfl-
ugan stjórnendahóp.
LEIÐTOGAÞJÁLFUN
Er hægt að þjálfa fólk í að
verða leiðtogar eða eru það
meðfæddir hæfileikar?
Hver eru helstu verkefni
leiðtoga? Hver er munurinn
á leiðtoga og stjórnanda?
Greinarhöfundar eru í meistaranámi við Háskóla Íslands. Frá vinstri: Margrét B.
Svavarsdóttir, Ólína Friðriksdóttir, Íris Ösp Bergsdóttir og Sveinn Aðalsteinsson. Á myndina
vantar Lilju Gunnarsdóttur.
Er munur á stjórnanda og leiðtoga?
Menn hafa lengi deilt um hvort leiðtoga-
hlutverkið sé í meginatriðum frábrugðið
stjórnandahlutverkinu. Áður fyrr var tal-
inn mikill munur á þessu, leiðtoganum var
ætlað að framkvæma breytingu á meðan
aðalhlutverk stjórnandans var að ýta undir
stöðugleika.
Hlutverk stjórnanda er fyrst og fremst
að stýra framkvæmdum, vinna að áætl-
anagerð, skipuleggja ferla, fara eftir reglu-
gerðum, stjórna, veita stöðugleika og halda
jafnvægi innan fyrirtækisins. Stjórnandinn
leitast þannig við að vera viðbúinn breyt-
ingum og takast á við þær með úrlausnum.
Það er hlutverk leiðtogans að innleiða
breytingar, taka áhættu, skapa, breyta, móta
og hafa ákveðna sýn. Leiðtoginn mótar nýja
stefnu og hlutverk, innleiðir nýja hugsun og
aðferðir auk þess sem hann býr til aðra sýn
á gildi og viðhorf.
Nýjar rannsóknir benda hins vegar til
þess að allir leiðtogar þurfi að hafa stjórn-
endafærni og öfugt; allir stjórnendur þurfa
að þjálfa með sér leiðtogafærni. Þetta
á kannski sérstaklega við um íslenskar
aðstæður þar sem fyrirtæki eru yfirleitt smá
í sniðum.
Til þess að efla leiðtogahæfni stjórnenda
og gera stjórnanda kleift að þróa með sér
leiðtogahæfni verður að fara í gegnum tölu-
vert annars konar þjálfun en þegar einungis
er verið að þjálfa og efla stjórnendahæfni.
En hvernig þjálfum við leiðtogafærni?
Listinn yfir æskilega leiðtogafærni getur verið
langur. Til einföldunar er hægt að nefna
nokkur atriði sem flestir fræðimenn og leið-
togar eru sammála um að skipti máli:
TEXTI: NEMENDUR Í MEISTARANÁMI
VIÐ HÁSKÓLA ÍSLANDS.
MYND: GEIR ÓLAFSSON
S T J Ó R N U N