Frjáls verslun - 01.03.2006, Qupperneq 41
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 6 41
D A G B Ó K I N
12. apríl
Verðbólgan hrellir
núna Íslendinga
Verðbólgan er komin á kreik á
Íslandi. Síðustu tólf mánuði hefur
verðbólga samkvæmt mælingu
Hagstofunnar verið 5,5%. Það
er mesta verðbólga á Íslandi í
fjögur ár, eða frá því í maí 2002.
Verðbólgan er 3 prósentustigum
yfir verðbólgumarkmiði Seðla-
banka Íslands. Verðbólgan hefur
nú verið yfir verðbólgumarkmiði
Seðlabankans í tvö ár og yfir efri
vikmörkum bankans í átta mán-
uði í röð. Ekki er útlit fyrir að hún
hjaðni á næstunni því hrikalegar
hækkanir á olíu virka einmitt
eins og olía á verðbólgueldinn
- og þá er ljóst að fall krónunnar
að undanförnu fer beint út í verð-
lagið.
12. apríl
FL Group kaupir
hollenskt drykkjar-
vörufyrirtæki
FL Group hf. hefur, ásamt fleiri
fjárfestum, gengið frá kaupum
á hollenska drykkjarvörufyrir-
tækinu Refresco Holding.
FL Group verður stærsti hlut-
hafi félagsins með 49%, en
meðal annarra fjárfesta eru
Vífilfell og helstu stjórnendur
Refresco. Hjá Refresco starfa
um 1.200 manns í 5 löndum
en félagið er annar stærsti
framleiðandi á ávaxtasafa
og svaladrykkjum undir vöru-
merkjum verslana í Evrópu.
Velta félagsins árið 2005 nam
um 56 milljörðum.
Sigurður Bollason.
12. apríl
Sigurður Bollason
út úr FL Group
og Dagsbrún
Sagt var frá því þennan dag að
Sigurður Bollason hefði selt hluti
sína í eignarhaldsfélögunum Icon
og Runni. Kaupandi var Materia
Invest, sem er í eigu Magnúsar
Ármann, Kevin Stanford og Þor-
steins M. Jónssonar. Icon er
eigandi að 7,77% hlutafjár í FL
Group og Runnur er eigandi að
12,95% hlutafjár í Dagsbrún.
Magnús Ármann er stjórnar-
maður í FL Group og Dagsbrún.
Þorsteinn M. Jónsson er varafor-
maður stjórnar FL Group.
19. apríl
FL Group kaupir
í Glitni fyrir
1,3 milljarða
FL Group hefur keypt 80 milljónir
hluta í Glitni af einkahlutafélag-
inu Red Square Invest sem er í
helmingseigu Jóns Snorrasonar,
stjórnarmanns í Glitni. Hlutaféð
var keypt á genginu 16,6 og
söluverð þess því 1.328 milljónir
króna.
Það var vel til fundið hjá Félagi
viðskiptafræðinga og hagfræð-
inga að fá þá Carsten Valgreen,
aðalhagfræðing Danske Bank,
og Lars Christensen á fund til
sín. Það kom engum á óvart
að það var húsfyllir á fundinum.
Lars Christensen er annar
tveggja höfunda skýrslu Danske
Bank um íslenska bankakerfið,
en hún nefndist: „Iceland: Geysir
Crisis“.
Carsten Valgreen sagði m.a.
á fundinum að það hefði komið
sér á óvart hve mikil viðbrögð
og tilfinningasemi hefðu verið
í þeim tölvubréfum sem hann
fékk frá ýmsum á Íslandi í kjöl-
far skýrslunnar.
Lars Christensen hélt fram-
söguræðu og sagði að Danske
Bank væri ekki einn um að vera
svartsýnn hvað varðar efnahags-
ástandið á Íslandi og að vísbend-
ingar væru um harða lendingu.
Hann lagði ofuráherslu á skuldir
Íslendinga og að Íslendingar
ættu orðið heimsmet í erlendum
skuldum og að þær yrðu þeir
timburmenn sem glímt yrði við á
næstunni. Hann fór að vísu ekki
mörgum orðum um eignir Íslend-
inga í hinum ýmsum löndum.
Lars Christiansen taldi að
teitið væri búið í bili á Íslandi.
Best væri að fara að ráðum
mömmu og fá sér ekki afréttara
eftir veisluna heldur að taka
timburmennina út - þá væri
hægt að skemmta sér bæði
fyrr og betur í næstu veislu.
Fyrirlestur Lars bar yfirskrift-
ina Ofhitnun, skuldsetning og
kreppan árið 2007 og sagði
hann að slík skilaboð væri ekki
skemmtilegt að flytja. Hann
sagðist hafa verulegar áhyggjur
af vaxandi verðbólgu á Íslandi -
eins og raunar Íslendingar sjálfir
hefðu og vísaði í Peningamál
Seðlabankans.
Carsten Valgreen sagði m.a.
á fundinum um skuldsetningu
Íslendinga að Íslendinga yrðu
að viðurkenna að íslensku bank-
arnir og hagkerfið allt væri mjög
háð fjármagni erlendis frá. Og ef
vextir hækkuðu erlendis þá hefði
það í för með sér meiri erfiðleika
en áður.
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Kauphallar Íslands, og Edda Rós
Karlsdóttir, forstöðumaður grein-
ingadeildar Landsbankans, höfðu
framsögu á fundinum auk Lars
Christiansens og tóku síðan
þátt í pallborðsumræðum ásamt
þeim Carsten Valgreen, Tryggva
Þór Herbertssyni, forstöðumanni
Hagfræðistofnunar Háskólans,
og Arnóri Sighvatssyni, hagfræð-
ingi Seðlabankans.
12. apríl
DANIRNIR Á FUNDI HJÁ FVH
Lars Christensen, hagfræðingur
hjá Danske Bank, á fundinum
hjá FVH. „Takið timburmennina
út núna.“