Frjáls verslun - 01.03.2006, Síða 45
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 6 45
inn. Heimsferðir og Terra Nova munu flytja yfir 50 þúsund farþega
á þessu ári, en Heimsferðir eru með flesta farþega frá Íslandi í
leiguflugi.
Að sögn Andra fékk Solresor í Svíþjóð nýlega Grand Travel
Awards sem besta ferðaskrifstofa Svíþjóðar. Ferðaskrifstofur
Heimsferða eru með skrifstofur í Osló í Noregi, Kaupmannahöfn
og Herning í Danmörku auk skrifstofa í Malmö,
Gautaborg og Stokkhólmi. Flogið er frá fjölmörgum
borgum í Skandinavíu.
Meðal helstu áfangastaða fyrirtækjanna eru Azor-
eyjar, Madeira, Kína, Víetnam, Kanaríeyjar, Mall-
orca, Menorka, Egyptaland, Oman, Tyrkland, Malta,
Thailand, Malasía og Kenya. Einnig bætast stöðugt
við nýir og spennandi áfangastaðir. Úrvalið er því
ótrúlega fjölbreytt og glæsilegt.
Sumarferðir með fimm stjörnu hótel á góðu verði
Helgi Jóhannsson segir að ferðalög eigi ekki að
vera forréttindi einna eða neinna. „Nú ferðast fólk
oftar, fer kannski í styttri tíma, en oftar. Það bitnar ekki á ferða-
lögum innanlands vegna þess að flestir eiga orðið 5 vikna sumarfrí.
Margir skipta því þannig að þeir fara í gott tveggja vikna sumarleyfi
erlendis, síðan í eina borgarferð og restin af tímanum fer í að taka
til í bílskúrnum og fara í skemmtilega ferð um landið.“
Að sögn Helga eru Sumarferðir ef til vill þekktastar núna fyrir
að bjóða frábær fimm stjörnu hótel á góðu verði. „Við eigum svo-
lítið eftir að vinna okkar heimavinnu í því hvernig við sjáum þessi
fyrirtæki, Sumarferðir og Úrval-Útsýn, vinna saman. Ég held þó
að Sumarferðir verði enn öflugri í sumarorlofsþættinum, en að
Úrval-Útsýn muni fyrir utan sólarferðir vera áfram með öflugar
borgarferðir, skíðaferðir og fleira í þeim dúr, þ.e. fjölbreyttari flóru
ferða.“
- Eru fleiri fjárfestingar framundan hjá Sumarferðum, stendur
jafnvel til að kaupa fleiri ferðaskrifstofur?
„Nei. Áður en Sumarferðir voru stofnaðar vorum við félagi minn,
Þorsteinn Guðjónsson, að hugleiða stofnun lággjaldaflugfélags.
En mér sýnist að það sé varla rými fyrir annað félag við hliðina
á Iceland Express. Ég held að það verði áfram öflugt félag í sam-
keppninni og kannski ekki pláss fyrir fleiri, enda er British Airways
komið á markaðinn hérlendis og kannski koma fleiri.“
Helgi bætir því við að nær öll sala hjá Sumarferðum á Laugavegi
fari fram gegnum netið eða í síma. Áhersla sé lögð á svokallaða
„umbúðalausa þjónustu“ (no-frill service) þar sem þættir á borð
við skilvirkni, framleiðni starfsfólks og áreiðanlega flugáætlun séu
settir í öndvegi. Með því að grundvalla rekstur Sumarferða á þeim
möguleikum sem upplýsinga- og samskiptatækni nútímans bjóði
upp á nái ferðaskrifstofan dýrmætu forskoti í samkeppninni.
„Í fyrsta lagi gefst tækifæri til þess að innleiða stórfellda verð-
lækkun á hefðbundnum sumarleyfisferðum og í annan stað mun
sá tímasparnaður sem ávinnst með breyttum starfsaðferðum nýt-
ast til þess að fylgjast enn betur með þeim ónýttu tækifærum sem
stöðugt eru að bjóðast víða um heim,“ segir Helgi.
Fuerteventura er tromp Heimsferða í sumar
Andri Már Ingólfsson segir að ekki standi til að sameina ferða-
skrifstofurnar hér heima, Terra Nova verði áfram
rekin undir því nafni og ferðaskrifstofurnar á Norð-
urlöndum verði einnig reknar áfram undir sínum
nöfnum, enda mjög sterkar á markaðnum, og þeim
þurfi að halda. Reksturinn falli hins vega allur undir
eitt móðurfélag.
„Vinsælustu viðkomustaðir Heimsferða og Terra
Nova frá Íslandi undanfarin ár hafa verið Costa del
Sol og Króatía og eins heldur Mallorca alltaf sínum
hlut. Heimsferðir kynna tvo nýja áfangastaði í
sumar. Annar þeirra er Fuerteventura, sem er ein
af Kanaríeyjunum og hefur verið tromp Heimsferða
í sumar, það sannarlega „hitti í mark.“ Nánast er
uppselt þangað í sumar en boðið er upp á frábær ný hótel á verði
sem ekki hafa sést áður.“
Andri segir að þetta hafi verið mögulegt í tengslum við ferða-
skrifstofurnar í Svíþjóð og Noregi sem eru í eigu Heimsferða, og
þannig séu Heimsferðir stærsti viðskiptaaðili hótelkeðjunnar í
Fuerteventura. Hann segir strendurnar þarna vera taldar einar
þær fallegustu í heimi. Fuerteventura sé því sannarlega öðruvísi
valkostur.
„Síðan erum við að kynna Búlgaríu undir nafni Terra Nova, og
það má líka segja um þann stað, hann hefur slegið í gegn, og meira
en 70% allra sæta í sumar seld. Þessa tvo staði ber hæst í sumar.“
- Eru fyrirhugaðar einhverjar frekari fjárfestingar í ferðaskrif-
stofum eða hótelum á næstu misserum?
„Við erum alltaf að skoða spennandi tækifæri,“ segir Andri Már.
„Það er ýmislegt á sjóndeildarhringnum núna sem gæti gerst á
næstu mánuðum. Við erum alltaf á tánum, þetta stoppar ekkert,
það vindur upp á sig ef eitthvað er.“
- Er samkeppni ferðaskrifstofa á Íslandi með ólíkum hætti nú
en var fyrir kannski 20 til 30 árum?
„Já, þá var öll samkeppni miklu persónulegri en það er leið sem
mér hefur sannarlega ekki hugnast að fara. Þetta eru bara viðskipti
og sá vinnur slaginn sem býður bestu kjörin og skemmtilegustu nýj-
ungarnar fyrir íslenska ferðalanga. Við erum því að vinna okkur til-
verurétt á hverjum degi, í hverjum mánuði og á eigin forsendum.
Á Íslandi ræður verðlagið á ferðunum mjög miklu, íslenski mark-
aðurinn er mjög verðtengdur enda skoðar fólk oft fyrst verðið síðan
staðina sem boðið er upp á. Samsetning verðs og gæða er mjög vel
skoðað, en þess má líka geta að íslenski markaðurinn er mjög nýj-
ungagjarn, fólk vill mikinn fjölbreytileika,“ segir Andri Már.
F E R Ð A Þ J Ó N U S T A
„Á Íslandi ræður
verðlagið á ferðunum
mjög miklu, íslenski
markaðurinn er mjög
verðtengdur enda
skoðar fólk oft fyrst
verðið síðan staðina
sem boðið er upp á.“