Frjáls verslun - 01.03.2006, Qupperneq 85
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 6 85
stuttum göngu- og hlaupaleiðum, körfubolta-
völlum, félagsaðstöðu og framtíðarbyggingu
fyrir íþróttastarf.
Íþróttaakademía Reykjanesbæjar tók til
starfa sl. haust en þar er boðið upp á nám í
íþróttafræðum á háskólastigi í samstarfi við
Háskólann í Reykjavík, afreksbraut til stúd-
entsprófs í samvinnu við Fjölbrautaskóla Suð-
urnesja, endurmenntun fyrir starfandi íþrótta-
kennara og fagfólk auk fjarnáms í samvinnu
við Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum.
Uppeldis- og fræðslumál blómstra Mikil
áhersla hefur verið lögð á uppeldis- og fræðslu-
mál í Reykjanesbæ á síðustu árum og hafa
menn verið óhræddir við að leita nýrra leiða.
Má þar nefna verkefni eins og Lestrarmenn-
ingu í Reykjanesbæ sem er 3ja ára samfélags-
legt þróunarverkefni unnið í samvinnu við
leikskóla, grunnskóla, bókasafn, heilbrigðis-
stofnun og fleiri.
Einnig hafa flestir starfsmenn leikskóla,
grunnskóla og frístundaskóla auk foreldra sótt
ókeypis í boði fræðsluskrifstofu námskeiðið
SOS - hjálp fyrir foreldra, en þar er um að ræða
samræmda uppeldisáætlun í
einu bæjarfélagi. Tilvísunum
til fræðsluskrifstofu vegna sér-
fræðiþjónustu hefur í fram-
haldi fækkað.
Samstarf heimila og skóla
er öflugt í Reykjanesbæ enda
gerir bærinn foreldrafélögum
kleift að ráða starfsmann í
50% stöðu til að sinna forvarn-
armálum og samstarfi heimila
og skóla.
Frístundaskóli Reykjanesbæjar Það nýmæli,
sem helst hefur vakið athygli að undanförnu,
er Frístundaskóli Reykjanesbæjar sem er nýstár-
leg útfærsla á heilsdagsskóla og tók til starfa
haustið 2003. Frístundaskólinn er rekinn í
öllum grunnskólum Reykjanesbæjar og í sam-
vinnu við íþróttahreyfinguna hafa allar æfingar
nemenda skólans, þ.e. 1.-4. bekkjar, verið
færðar fram þannig að nemendur geti lokið
starfsdegi sínum fyrir kl. 17:00. Innifalið í
gjaldi frístundaskóla er æfingagjald fyrir eina
íþróttagrein og akstur til og frá æfingum.
Einnig hafa tómstundafélög
kynnt starfsemi sína í frí-
stundaskólanum, s.s. skátar
og KFUM og K.
Undanfarin þrjú ár hefur
verið frítt í strætó í Reykja-
nesbæ og hefur aðsókn í vagn-
ana tvöfaldast. Mest er um
það að börn og unglingar
nýti sér vagnana til að komast
í skóla, sund, tónlistarnám,
íþróttir og til að heimsækja
vini og kunningja. „Frítt í
strætó“ dregur úr þörf fjölskyldunnar á aukabíl
og auðveldar ekki síst börnum og öldruðum að
ferðast á milli staða án þess að vera í slysahættu
sem gangandi vegfarendur. Þá munar allar fjöl-
skyldur um hundruð króna sem annars myndi
kosta daglega að fara á milli með gjaldtöku eins
og tíðkast á höfuðborgarsvæðinu.
En það er ekki einungis frítt í strætó. Í
ársbyrjun var ákveðið að ókeypis yrði í sund
fyrir öll börn á grunnskólaaldri í Reykjanesbæ.
Þó að íþróttaþátttaka barna í Reykjanesbæ sé
meiri en víðast hvar á landinu þótti full ástæða
að hvetja til enn meiri hreyfingar með þessum
hætti. Þessari nýbreytni hefur verið vel tekið
en þótt ótrúlegt sé hefur hún skilað inn meiri
tekjum til sundstaðanna, auk þess sem fjöldi
barna í sund hefur margfaldast.
Aðstaða til sundiðkunar mun aukast til
muna í vor þegar tekin verður í notkun ný 50
m innisundlaug við Sundmiðstöð Keflavíkur
ásamt vatnagarði og rennibrautum.
Það fer ekki á milli mála að lífið í Reykja-
nesbæ er blómlegt og þar leggja bæjaryfirvöld
sig fram um að veita íbúunum sem besta
þjónustu á öllum sviðum sem síðan hlýtur að
skila sér í ánægðum bæjarbúum, sama á hvaða
aldursskeiði þeir eru.
Fasteignaskattur fyrir
íbúðarhúsnæði er
0,30% og af atvinnu-
húsnæði 1,65%. Rétt
er að taka fram að
fasteignamat er lægra
í Reykjanesbæ en á
höfuðborgarsvæðinu.
Lóðaverð fyrir einbýli
í Reykjanesbæ er 2-3
milljónir króna. Útsvars-
hlutfall er 12,7%.
Börnin eru ánægð í sundi.
Íþróttaakademían.
Rúnar Júlíusson var
valinn bæjarlistamaður
Reykjanesbæjar 2005.
Með honum á myndnni
eru Böðvar Jónsson, for-
maður bæjarráðs og Árni
Sigfússon, bæjarstjóri.