Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2006, Síða 35

Frjáls verslun - 01.05.2006, Síða 35
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 6 35 ÁHRIFA MESTU 20ÁHRIFAMESTU 20 Þórdís Sigurðardóttir, stjórnarformaður Dagsbrúnar. ÞÓRDÍS SIGURÐARDÓTTIR stjórnarformaður Dagsbrúnar Þórdís Sigurðardóttir, forstöðumað- ur hjá Baugi Group og stjórnar- formaður Dagsbrúnar, hefur látið mjög að sér kveða í viðskiptalíf- inu. Dagsbrún er auðvitað risi á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi og rekur fyrirtækin Og Vodafone, Sko og fjölmiðlarisana 365. Þá yfirtók Dagsbrún nýlega stórveldið Kögun sem er m.a. eig- andi að Opnum kerfum, EJS og Skýrr. Þess má geta að Þórdís er systir Hreiðars Más Sigurðssonar, forstjóra Kaupþings banka. Þórdís kenndi um tíma við Háskólann í Reykjavík og sinnti stjórnarfor- mennsku í EJS áður en hún var ráðin til Baugs Group og varð stjórnarformaður Dagsbrúnar. Þegar Þórdís er spurð hverju hún vilji koma til leiðar í viðskipta- lífinu segir hún: „Sátt milli stjórn- valda og viðskiptalífsins. Til að við getum náð enn lengra á alþjóða- vettvangi þá þarf að vera skilning- ur og samlyndi á milli stjórnvalda og viðskiptalífsins. Íslensku útrás- arfyrirtækin sem hafa haslað sér völl á erlendum mörkuðum hafa sýnt að við höfum ýmislegt fram að færa. Þær leikreglur sem stjórn- völd hér á landi setja mega því í engum tilfellum vera íþyngjandi fyr- ir okkur þannig að þær takmarki svigrúm fyrirtækja til vaxtar og heilbrigðrar samkeppni hér á landi sem og erlendis. Þá þarf viðskipta- lífið hér á landi á fleirum konum að halda, en það er sannarlega von mín að ég geti orðið til að hjálpa til við það,“ segir Þórdís. Hildur Petersen, stjórnarformaður SPRON. HILDUR PETERSEN stjórnarformaður SPRON, ÁTVR og Kaffitárs Hildur Petersen var yfir tvo ára- tugi forstjóri fjölskyldufyrirtæk- isins Hans Petersen þegar ekki var algengt að konur gegndu starfi forstjóra í fyrirtækjum. Á þeim tíma hafði hún sterk áhrif í viðskiptalífinu sem fyrirmynd annarra kvenna við stjórnun fyr- irtækja. Hún braut einnig blað þegar hún fyrst kvenna settist í aðalstjórn Verslunarráðsins, nú Viðskiptaráðsins, árið 1990. Hún er stjórnarformaður SPRON, stærsta sparisjóðs landsins, og hefur í um tíu ár verið stjórnar- formaður ÁTVR. Sem stjórnar- formaður ÁTVR hefur hún haft talsverð áhrif á vínmenningu landsmanna. Útlit vínbúðanna hefur verið stórbætt og upplýs- ingagjöf við viðskiptavini og vöru- val aukið, vínbúðum hefur fjölgað og opnunartími hefur verið lengd- ur. Þá er Hildur stjórnarformaður Kaffitárs. „Íslenskt viðskiptalíf er hluti af alþjóðlegu umhverfi þar sem engin minnimáttarkennd ríkir. Jafnréttisbaráttan er það eina sem ég leyfi mér að hafa áhyggj- ur af í dag. Þar miðar okkur of hægt fyrir minn smekk og hef ég sannan áhuga á að leggja mitt af mörkum til þess að við konur verðum svo dáðar, virtar og eftirsóttar að við getum valið úr þeim störfum sem í dag þykja frekar henta karlmönnum,“ segir Hildur.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.