Frjáls verslun - 01.05.2006, Qupperneq 84
84 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 6
KYNN ING
Drangey státar af
tryggum viðskipavinum
Drangey er ein þeirra sérverslana sem hafa lifað af þær breytingar sem urðu fyrir nokkrum árum þegar stóru verslunarkeðjurn-ar með marga vöruflokka fóru að sækja inn á markaðinn. Þá
þurftu ýmsir að taka til hendinni og hugsa sinn gang. Sumir gáfust upp
en aðrir spýttu í lófana og verslanir þeirra héldu áfram. Drangey er ein af
þeim,“ segir María Maríusdóttir, eigandi Drangeyjar í Smáralind.
„Við ákváðum að taka þátt í uppbyggingunni í Smáralind sem segja
má að hafi kostað blóð, svita og tár, en árangurinn er svo sannarlega að
koma í ljós.“
Drangey var stofnsett 1934 en fáar verslanir hér á landi hafa náð jafn
háum aldri. Það helgast af því að fyrstu 59 árin var þetta fjölskyldufyrir-
tæki Ammendrup-fjölskyldunnar sem leitaðist við að vera með nýjungar
á takteinum sem freistuðu viðskiptavinarins. María keypti Drangey fyrir
tæpum 11 árum en hafði áður verið „pródúsent“ í 12 ár á Stöð 2 og
Sjónvarpinu. Hana langað að breyta til og fara að vinna sjálfstætt og seg-
ist ekki hafa séð eftir þeirri ákvörðun einn einasta dag. „Þetta er ákaflega
skemmtileg vinna sem krefst mikillar sköpunargáfu.“
Fyrst eftir að Smáralindin tók til starfa var Drangey einnig rekin á
Laugaveginum en fyrir tveimur árum var ákveðið að loka versluninni
þar vegna þess hve viðskiptin höfðu dalað. „Mér til mikillar gleði hef ég
fundið að viðskiptavinirnir hafa haldið tryggð við Drangey. Strax eftir
lokunina á Laugavegi sýndi sig að stór hluti við-
skiptanna færðist hingað og það fullvissaði mig
um að ég hefði gert rétt, enda höfum við lagt
okkur fram við að mæta óskum viðskiptavinar-
ins í einu og öllu.“
María Maríusdóttir er eigandi Drangeyjar í Smáralind.
DRANGEY:
Aðalsmerkið er töskur, seðlaveski og hanskar fyrir
dömur og herra Rekstur sérvöruverslunar krefst afskap-
lega mikillar vinnu sem felst m.a. í að leita uppi og velja
vörur sem heilla viðskiptavinina, en vörurnar í Drangey
eru frá Ítalíu, Frakklandi, Belgíu, Danmörku og Hollandi.
Svo það er í mörg horn að líta.
„Allt frá 1965 hefur aðalsmerki Drangeyjar verið töskur, seðlaveski
og hanskar og það breytist aldrei,“ segir María. „Hliðarbúgreinarnar,
skartið, skórnir og leðurjakkarnir, hafa bæst við og punta bæði búðina
og konurnar mínar. Eins og þær segja gjarnan: Drangey er dótabúð kon-
unnar í Smáralind!“
María er í FKA, Félagi kvenna í atvinnurekstri, og hefur m.a. setið
í stjórn félagsins sl. 2 ár. „Félagsstarfið og samvinnan við þær frábæru
konur, sem þar eru, hefur gefið mér bæði áræðni og innblástur til að
sækja fram í rekstri á eigin fyrirtæki.“
Heimasíðan er www.drangey.is
Parlane-gjafavörurnar
fá nú stærra hlutverk
en áður og mega við-
skiptavinir eiga von
á að sjá þær í nýrri
verslun sem verður
opnuð með haustinu.
Smáralind • sími 5288800 • www.drangey.is
Töskur
Leðurjakkar og minnkasjöl
fyrir dömur og herra
skór vandaðir og mjúkir
- ekki bara töskur
skart
og skartgripaskrín
- mikið úrval
Drangey býður þér úrvals vöru og persónulega þjónustu. Komdu – láttu hei l last
Drangey í Smáralind.