Frjáls verslun - 01.05.2006, Page 123
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 6 123
an OECD en þó eru lönd eins og Kanada,
Bandaríkin, Þýskaland, Lúxemburg og Nor-
egur fyrir ofan okkkur svo dæmi séu tekin.
Ef við tökum bara konur á aldrinum 25-34
ára þá er meðalnámstími íslenskra kvenna
13,5 ár en fyrir ofan okkur eru meðal ann-
ars Ástralía, Kanada, Finnland, Írland, Lúx-
emborg, Holland, Noregur og Bandaríkin.
29% Íslendinga á aldrinum 25-34 ára er með
háskólapróf sem er það sama og meðaltalið
hjá OECD.“
Kynbundinn munur á námsvali
„OECD kemur með úttektir og tillögur til
ríkisstjórna hvernig hægt sé að auka hag-
vöxt og hagsæld. Horft er jafnt til félags-
legra, umhverfislegra og efnahagslegra
þátta. Verið er að auka jafnréttissýn á
mál. Árlega gefum við út aragrúa tölfræði-
rita þar sem upplýsingar hafa ekki verið
nægilega kyngreindar. Nú er væntanlegt
fyrsta tölfræðiritið sem leggur meginá-
herslu á kynjafókus. Í þessu sambandi er
gott að hafa í huga að í jafnréttislögum á
Íslandi er mælt fyrir um að öll tölfræði
skuli vera kyngreind ef það er mögulegt.
Ég held að Ísland hafi verið fyrsta landið
til að gera þetta og þetta hefur verið við-
miðunarregla á hinum Norðurlöndunum.
Fyrir stofnun eins og OECD, sem tjáir sig
ekki um það sem hún getur ekki mælt, þá
er kyngreind tölfræði lyk-
ilatriði.“
Innan OECD eru 28,3%
kvenna í stjórnunarstörf-
um. Hlutfallið er 26% í Dan-
mörku og 30% í Svíþjóð.
Hlutfallið er að meðaltali
36% í enskumælandi lönd-
unum Bretlandi, Bandaríkjunum, Ástralíu,
Nýja-Sjálandi og Írlandi. Hlutfallið í Banda-
ríkjunum er 46% en lægst á Írlandi, 29%.
„Það er ljóst að þrátt fyrir aukna mennt-
un kvenna jafnt á Íslandi sem í öðrum
OECD-löndum þá hafa þær ekki náð sam-
bærilegum áhrifum og karlar. Kynbundinn
munur á námsvali hefur hér áhrif að ein-
hverju leyti. Konur og karlar með sömu
menntun virðast leggja fyrir sig mismun-
andi störf. Konur virðast leita meira í hinn
opinbera geira.
Ég tók nýlega þátt í ráðstefnu um kon-
ur í vísindum. Þar kom í ljós að þrátt fyrir
að þeim konum hafi fjölgað sem leggja
stund á raungreinar og vísindi þá eru
tiltölulega fáar konur við störf á þessu
sviði í einkageiranum og
enn síður í fyrirsvari rann-
sókna.
Konur eiga alveg jafn-
mikið erindi og karlar í
að stofna, reka og stýra
fyrirtækjum. Konur verða
sjálfar að ryðja sér braut
til aukinna áhrifa og til þess geta þær not-
að samtakamátt sinn. Ég trúi því að auk-
in menntun kvenna, samhliða fjölskyldu-
vænni stefnu stjórnvalda, eigi eftir að skila
konum til aukinna áhrifa. Það er allt samfé-
lagið sem líður fyrir það ef konur fá ekki
að nýta að fullu hæfileika sína. Hagvöxtur
á að geta vaxið enn frekar ef við náum að
virkja konur betur á öllum sviðum samfé-
lagsins.“
BERGLIND
AÐSTOÐAR
FORSTJÓRI OECD
TEXTI: SVAVA JÓNSDÓTTIR
MYND: HREINN HREINSSON
Berglind Ásgeirsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri OECD.
„Allt samfélagið líður
fyrir það ef konur fá
ekki að nýta að fullu
hæfileika sína.“