Frjáls verslun - 01.05.2006, Side 127
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 6 127
N
ámskeiðið „Konur og karlar sem
leiðtogar og stjórnendur“ er hluti
af MA-námi í „fræðslustarfi og
stjórnun“ sem við bjóðum upp
á í uppeldis- og menntunarfræði við fé-
lagsvísindadeild. Markmið námskeiðsins
er að veita þátttakendum aukna innsýn í
hlutverk leiðtoga og stjórnenda í skólum,
stofnunum og fyrirtækjum.Við erum að
mennta fólk sem hyggst fara í stjórnunar-
störf í skólum eða fræðslustjórn í stofnun-
um og fyrirtækjum.
Ég og Sigrún Aðalbjarnardóttir prófessor
kennum námskeiðið saman. Við leggjum í
fyrsta lagi mikla áherslu á samskiptaþátt-
inn; hvernig góður stjórnandi hefur sam-
skipti. Þá er fjallað um helstu kenningar og
rannsóknir á leiðtogum og stjórnendum,
og þar ákváðum við að taka kynjafræði-
lega þáttinn sterkt inn, við fjöllum um
sérstöðu kvenna sem stjórnenda og um
leið muninn á kynjunum. Einnig fjöllum
við um hvað stjórnendur í fyrirtækjum og
skólum þurfa að gera vegna jafnréttislaga
en þar er þess krafist að gerðar séu jafnrétt-
isáætlanir þar sem starfsmenn eru fleiri en
25 sem meðal annars eiga að taka á launa-
misrétti kynja og „hins gullna jafnvægis“ á
milli vinnustaða og heimila. Þá er áhersla
á mikilvægi mentora og tengslaneta og síð-
ast en ekki síst á nýjustu strauma í stjórn-
unarfræðum.“
Að vera þær sjálfar
Niðurstöður rannsókna á mun á konum og
körlum sem stjórnendum eru mismunandi.
Guðný segir að mörgum finnist meginmál-
ið ekki vera það hvort kynjamunur sé á
þessum stjórnendum en það sé athyglis-
verðara að leiðtogahlutverkið virðist kynj-
að; að þegar fólk hugsar um leiðtoga og
stjórnendur þá komi karl gjarnan fyrst upp
í huga margra. „Þar af leiðandi býst fólkið
við körlum og konur eiga erfiðara uppdrátt-
ar með að sækja um þessar stöður og kom-
ast í þær. Þegar þær eru hins vegar komn-
ar í stjórnendastöður kemur í ljós að þær
eru að gera mikið til réttu
hlutina og gera þá mjög
vel. Vandinn sem konur
mæta er þess vegna ekki
síst að það eru gerðar aðr-
ar væntingar til þeirra og
þær verða að stýra með
hliðsjón af því. Það þýð-
ir ekkert fyrir konu að
vera eins og herforingi og
stjórna kvenundirmönn-
um þó að karlarnir í fyrirtækinu geti það.
Henni yrði bara hafnað.
Konur hlusta vel og eru oft taldar næm-
ari en karlar og þær tileinka sér yfirleitt
lýðræðislegan stjórnunarstíl. En þar sem
væntingarnar eru karltengdar og þær fáar
reyna þær stundum að hegða sér eins og
karlar til að falla inn í hópinn. Þá er hætta
á að þær njóti sín ekki í starfi því það þarf
að vera heil manneskja til að njóta sín
sem sterkur leiðtogi eða stjórnandi. Sterkir
stjórnendur þurfa að vera heilir, trúverð-
ugir og helst glæsilegir sem einstaklingar
en þannig geislar af þeim styrkleiki og
öryggi. Ein mistökin sem konur gera oft er
að þær fara í jakkafötin til þess að falla inn
í hópinn. Þar með missa þær sérstöðu og
skína ekki sem þeir einstaklingar sem þær
eru. Þeim líður oft illa í þessari múnderingu
og það veikir þær sem leiðtoga. Ég ráðlegg
konum að vera fyrst og fremst í því sem
þeim líður vel í og reyna umfram allt að
vera glæsilegar og sýna sína sérstöðu.
Ef kona er alltaf í fötum sem passa ekki
við persónuleika hennar eða reynir að tala
með dýpri róm, samanber
Margaret Thatcher sem
lét breyta rödd sinni til
að líkjast karlmanni, þá
verður hún ekki trúverð-
ug. Ég held þess vegna
að það sé mikilvægt að
fræða fólk um það að
leiðtogar og stjórnendur
séu af báðum kynjum og
að leiðtogahlutverkið eigi
ekki að vera kynjað. Þá geta konur frekar
leyft sér að vera þær sjálfar, jafnvel þó að
þær séu fáar í hópi viðkomandi toppa. Á
meðan konur eru fáar, eða minna en 20%,
sem leiðtogar og stjórnendur koma fram
staðalmyndir samkvæmt rannsóknum - til
dæmis sú umhyggjusama, daðrarinn eða
nornin - og það getur verið jafn vont fyrir
konur að afneita þessum staðalmyndum og
að gangast við þeim. Því er fjölgun kvenleið-
toga mjög mikilvæg til að þær geti notið sín
sem einstaklingar eða í leiðtogateymi eins
og karlar.“
Námskeiðið „Konur og karlar sem leiðtogar og stjórnendur“ er kennt við
félagsvísindadeild Háskóla Íslands. Guðný Guðbjörnsdóttir prófessor bendir
á að leiðtogahlutverkið sé kynjað, að sumir viðurkenni því ekki konur sem
yfirmenn sína og að kynbundnar væntingar veiki konur í stjórnunarstöðum.
KONUR OG KARLAR
SEM LEIÐTOGAR OG STJÓRNENDUR TEXTI: SVAVA JÓNSDÓTTIRMYND: GEIR ÓLAFSSON
„Þegar konur eru hins
vegar komnar í stjórn-
endastöður kemur í ljós
að þær eru að gera mikið
til réttu hlutina og gera
þá mjög vel.“
S T J Ó R N U N