Frjáls verslun - 01.05.2006, Side 166
166 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 6
KYNN ING
HAGVANGUR:
Spáð fyrir velgengni
Hagvangur hefur áralanga þekkingu og reynslu í ráðningum og ráðgjöf enda eitt elsta fyrirtæki landsins á þessu sviði. ,,Við leggj-um stöðuga áherslu á þróun og nýjungar í þjónustu og ráðgjöf,“
segir Katrín S. Óladóttir framkvæmdastjóri. ,,Við eigum gott samstarf
við nokkur erlend ráðgjafafyrirtæki og nýlega skrifuðum við undir
samning við Hogan Assesment Systems, en það fyrirtæki
er brautryðjandi í gerð persónuleikaprófa til notkunar í
fyrirtækjum, bæði í ráðningum og þjálfun.“
Albert Arnarson, M.Sc í vinnusálfræði og ráðgjafi
hjá Hagvangi, segir að Hogan Assessment Systems sé að
mörgu leyti einstakt. ,,Fyrirtækið er mjög rannsókna-
miðað og hönnun persónuleikakvarða þess (Hogan Per-
sonaliti Inventory) byggir á því að velja allar spurningar í kvarðann útfrá
forspárgildi um raunverulega hegðun í starfi og skipta þeim út þegar þær
hætta að virka sem skyldi. Forspáin fyrir ákveðin störf er fengin með því
að bera saman niðurstöður starfsmanna á persónuleikaprófi og raunveru-
leg frammistöðugögn fyrirtækjanna. Þannig er fundinn sá „prófíll“ sem
spáir best fyrir um góða frammistöðu í tilteknu starfi. HAS hefur með
viðamiklum rannsóknum byggt upp gagnagrunn sem á sér í raun enga
hliðstæðu. Hann veitir mjög mikilvægar upplýsingar um hvaða þættir á
persónuleikaprófinu hafa forspárgildi um velgengni í ólíkum störfum.“
Katrín bendir á að ráðningar séu sífellt að verða flóknari og það þurfi
að leita allra leiða til þess að tryggja að hæfasta starfsfólkið sér ráðið.
,,Starfsemi og rekstur fyrirtækja hafa breyst gríðarlega á síðustu árum
og um leið eru gerðar auknar kröfur um hæfni starfsfólks
til að leysa flókin verkefni. Það getur skipt öllu máli fyrir
framtíð fyrirtækis að ráða besta fólkið. Það er ef til vill lítið
mál að ráða miðlungsstarfsfólk, fólk sem klúðrar engu en
markar heldur ekki spor í sögu fyrirtækisins. Það skiptir
hins vegar öllu að ráða hæfasta fólkið.
Hagvangur hefur átt því láni að fagna að geta þjónað
bæði stórum og smáum íslenskum fyrirtækjum og opinberum stofn-
unum. ,,Við byggjum þjónustu okkar á trausti, trúnaði og faglegum
vinnubrögðum. Starfsfólk Hagvangs er vel menntað og býr yfir mikilli
þekkingu á sviði ráðninga og ráðgjafar,“ segir framkvæmdastjórinn sem
að vonum varð ánægður með niðurstöðuna úr könnun VR á fyrirtækj-
um ársins 2006, en þar hafnaði Hagvangur í þriðja sæti.
Það getur skipt
öllu máli fyrir fram-
tíð fyrirtækis að
ráða besta fólkið.
Albert Arnarson,
M.Sc í vinnusálfræ›i
og rá›gjafi hjá
Hagvangi.
Meirihluti starfsmanna
Hagvangs er skipaður
konum. Fremst á mynd-
inni f.v. eru Ásthildur
Guðlaugsdóttir, Kristín
Guðmundsdóttir og
Elísabet Sverrisdóttir.
Standandi f.v. Berglind
Guðmundsdóttir, Katrín
S. Óladóttir, frkvstj. og
Guðný Sævinsdóttir.
Fjarverandi og í fæðing-
arfríi eru eru Rannveig
Haraldsdóttir og Sesselja
Sigurðardóttir.