Frjáls verslun - 01.05.2006, Page 173
KVIKMYNDIR
höfðu einnig áhrif á framvindu mála. Nokkurn
veginn tókst þó að ljúka tökum á réttum tíma.
Colin Farrell og Jamie Foxx ættu að tryggja
það að góð aðsókn verður á Miami Vice. Fáir
karlleikarar hafa verið eins mikið í fréttum slúð-
urblaðanna og Farrell, og Jamie Foxx fékk Ósk-
arsverðlaunin í fyrra fyrir leik sinn í Ray og hefur
verið á uppleið síðan. Þess má geta að Miami
Vice er þriðja kvikmyndin sem Foxx leikur í
undir leikstjórn Michael Manns. Hinar tvær eru
Ali og Collateral. Aðalleikkonan í Miami Vice er
frægasta leikkona Kínverja, Gong Li, og verður
forvitnilegt að sjá hvernig hún tekur sig út í banda-
rískri spennumynd.
Michael Mann hefur komið víða við á farsælum
ferli. Hann er fæddur 1943 í Chicago og byrjaði
afskipti sín af skemmtanabransanum með því að
skrifa handrit fyrir hinar ýmsu sjónvarpsseríur.
Eftir að Miami Vice hætti í sjónvarpinu sneri hann
sér að kvikmyndum og hefur jöfnum höndum
starfað sem leikstjóri, framleiðandi og handrits-
höfundur. Hefur hann leikstýrt nokkrum athyglis-
verðum kvikmyndum á undanförnum árum, má
þar nefna Heat (1995), The Insider (1999), Ali
(2001) og Colaterral (2004). Miami Vice verður
frumsýnd í Bandaríkjunum 28. júlí. Hér á landi
verður myndin tekin til sýningar 11. ágúst.
Sjónvarpsserían Miami Vice var sýnd í
bandarísku sjónvarpi á árunum 1984-
1989. Hér á landi var hún eitthvað á
eftir í sýningu. Þrátt fyrir að margar per-
sónur væru með föst hlutverk, var fyrst
og fremst einblínt á tvær aðalpersón-
urnar, James „Sonny“ Crocket, sem Don
Johnson lék og hlaut heimsfrægð fyrir,
og Ricardo „Rico“ Tubbs, sem leikinn
var af Philip Michael Thomas, sem öfugt
við Johnson hvarf nánast strax af sjónar-
sviðinu þegar tökum á seríunni var hætt.
Miami Vice var ferskt innlegg inn í
bandaríska lögguþætti. Þar sem það var
helst unga kynslóðin sem tók seríuna
upp á sína arma, voru Crocket og Tubbs
oft kallaðir MTV löggurnar þar sem
klæðnaður þeirra og framkoma var meira
í ætt við poppstjörnur en alvörugefnar
löggur. Þá var tónlistin í þáttunum sú
sama og heyrðist á hinni vinsælu MTV
sjónvarpsstöð.
Það var því ekki aðeins að aðalpersón-
urnar ættu þátt í vinsældum seríunnar
heldur einnig tónlistin. Sá sem átti þar
mestan heiður var Jan Hammer, sem
hafði meðal annars verið í hinni frægu
Mahavisnu Orchestra og leikið með ekki
minni köppum en Mick Jagger, Jimmy
Page og Eric Clapton, svo nokkrir séu
nefndir, áður en hann var fenginn til að
semja og velja tónlist við Miami Vice.
Það er skemmst frá því að segja að
tónlistarstefna hans sló í gegn og hefur
verið leiðandi síðan í sjónvarpsseríum
sem og kvikmyndatakan sem þótti um
margt nýstárleg á þessum árum. Má
geta þess að þema Hammers við Miami
Vice komst í efsta sæti vinsældalistans í
Bandaríkjunum árið 1985.
Hvað varðar örlög Don Johnsons
og Philip Michael Thomas þá komst
Johnson um skeið í hóp vinsælustu kvik-
myndaleikara, en var ekki nógu vandfýs-
inn á hlutverk, auk þess sem einkalíf
hans var stormasamt og hefur leið hans
legið aftur í sjónvarpið. Örlög Thomas
voru enn verri. Hann var kannski ávallt
til hliðar í Miami Vice, en var samt mjög
vinsæll og naut þess meðan á frægðinni
stóð. Þegar seríunni lauk létu hlutverkin
á sér standa og hefur hann aldrei náð
upp úr B-myndaflokknum og greinilega
haft lítið að gera, eða eytt um efni fram,
þegar haft er í huga að húseign hans
lenti á uppboði árið 1998.
Stefnumótandi sjónvarpssería MTV löggurnar Sonny Crocket og Rico Tubbs. Don Johnson og Philip Michael
Thomas í hlutverkum sínum.
SÓLSTRANDARLÖG GURNAR
Þeir eru ekki árennilegir, Rico Tubbs og Sonny Crocket, þar sem þeir leita að Erkienglinum í Miami Vice.
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 6 173