Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2006, Page 176

Frjáls verslun - 01.05.2006, Page 176
176 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 6 FÓLK Þóra Björg Magnúsdóttir er fram-kvæmdastjóri Lyfjaþróunar, sem stofnað var árið 1991 og rekur uppruna sinn til Háskóla Íslands. Upp- haflega sérhæfði fyrirtækið sig í þróun á bóluefnum í nefúða en síðastliðið ár hefur þróunin eingöngu beinst að lyfjalausnum sem hægt er að gefa um nef. Þóra Björg hóf störf hjá Lyfjaþróun í nóvember 2002 og hefur verið fram- kvæmdastjóri síðan apríl 2005: „Starf mitt felst í daglegri stjórnun og leit að nýjum viðskiptatækifærum fyrir fyrirtækið með kynningum á tækni þess og getu til að þróa nefúðalyf. Þetta geri ég bæði á ráð- stefnum og með beinum kynningum til fyrirtækja í lyfjageiranum, þá aðallega erlendis. Starfsemi fyrirtækisins er ansi viðamikil þó starfsmenn séu aðeins 13 í dag. Við rekum auk venjulegrar rannsókn- arstofu fyrir þróun lyfja, framleiðsluein- ingu fyrir framleiðslu á lyfjum til klínískra rannsókna og aðstöðu fyrir forklínískar og klínískar rannsóknir.“ Þóra Björg segir fyrirtækið bæði að vinna að eigin verkefnum og verkefnum fyrir alþjóðleg lyfjafyrirtæki. „Lyfjaþróun hefur þá sérstöðu að vera eitt af örfáum fyrirtækjum í heiminum sem sérhæfa sig í lyfjagjöf um nef.“ Eiginmaður Þóru Bjargar er Sigurður Þórarinsson verkfræðingur og eiga þau tvo syni, Sindra og Snorra. Hún útskrif- aðist sem stúdent frá MA 1987 og sem lyfjafræðingur frá HÍ 1993: „Eftir að námi lauk héldum við hjónin til Seattle í Bandaríkjunum haustið 1994 þar sem ég vann við rannsóknir í milliverkunum lyfja í School of Pharmacy, University of Washington og Sigurður tók meistara- gráðu í verkfræði við sama háskóla. Hann starfar nú sem forstöðumaður rekstrarsviðs TM Software.“ Áhugamál fjölskyldunnar er almenn útivera, gönguferðir, tjaldferðir, skíða- ferðir og jeppaferðir: „Við höfum ferðast mikið hér innanlands bæði um vetur og sumur. Á veturna eru það jökla- og skíðaferðir og á sumrin gönguferðir og jeppaferðir inn á hálendið. Við erum í gönguhópi með nokkrum fjölskyldum og höfum gengið með þeim Laugaveginn, Skælingana og Strútstíg. Yngri sonurinn var aðeins 6 ára þegar hann gekk Lauga- veginn, frá Landmannalaugum yfir í Þórs- mörk. Við leggjum mikið upp úr því að strákarnir læri að njóta þess sem landið hefur upp á að bjóða og læri að umgang- ast það með virðingu. Við hjónir erum nýkomin úr ferð á Snæfellsjökul í frá- bæru veðri. Ætlunin hafði verið að ganga á Hvannadalshnjúk, en veðurhorfur bentu til að það yrði ekki mjög spennandi og tókum þá farsælu ákvörðun að fara á Snæfellsjökul. Annað hvert ár fer fjölskyldan í sum- arfrí til útlanda og í sumar verður það sólarströnd í Portúgal. Reyndar er þetta fyrsta „pakkaferðin“ sem við förum í, við höfum hingað til skipulagt ferðirnar okkar sjálf og þvælst frá einum stað til annars.“ TEXTI: HILMAR KARLSSON MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON Þóra Björg Magnúsdóttir: „Á veturna eru það jökla- og skíðaferðir og á sumrin gönguferðir og jeppaferðir inn á hálendið.“ Nafn: Þóra Björg Magnúsdóttir. Fæðingarstaður: Reykjavík, 24. 9. 1967. Foreldrar: Hólmfríður Ólafsdóttir (látin) og Magnús Gíslason. Maki: Sigurður Þórarinsson. Börn: Sindri 14 ára og Snorri 9 ára. Menntun: Lyfjafræðingur frá Háskóla Íslands. ÞÓRA BJÖRG MAGNÚSDÓTTIR framkvæmdastjóri Lyfjaþróunar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.