Tímarit Máls og menningar - 01.12.1958, Side 59
HALLGRIMUR JONASSON
Árni Hallgrímsson
Fimmtudaginn 27. nóvember s.l.
andaðist Arni Hallgrímsson rit-
höfundur að heimili sínu Kvisthaga
12 í Reykjavík.
Arni var Skagfirðingur að ætt;
fæddur 17. sept. 1885 áð Ríp í Skaga-
firði. Foreldrar hans, Hallgrímur
Friðriksson og Helga Jóhannsdóttir,
bjuggu lengi að Úlfstaðakoti í
Blönduhlíð og þar ólst Árni upp,
ásamt systkinum sínum. Hann útskrif-
aðist 1908 úr Gagnfræðaskóla Akur-
eyrar, var kennari næstu 3 árin heima
í sveit sinni, en sigldi 1911 til Noregs.
Þar stundaði hann nám í 4 ár, fyrst í
lýðháskólanum á Voss, en síðar á lýð-
háskóla við Eiðsvöll. Alls dvaldi hann
erlendis til 1925, en það ár kom hann
heim. Ári seinna keypti Árni tímarit-
ið Iðunn, gerðist ritstjóri þess og hélt
úti röskan áratug.
Um skeið starfaði hann hjá Ríkis-
útvarpinu, en hin síðari ár vann hann
heima að þýðingum og ritstörfum ým-
is konar.
Árni hafði kennt hjartaveilu síð-
ustu árin og þoldi eftir það ekki mik-
il störf. Sá sjúkdómur mun og hafa
orðið honum að bana.
Kvæntur var Árni Guðrúnu J.
Heiðberg, sem lifir mann sinn ásamt
dóttur þeirra hjóna.
Þar sem Tímarit Máls og menning-
ar er raunar full prentað, þegar þessi
orð eru skrifuð, verður hér einungis
rúm fyrir fáeinar línur um gamlan
góðvin.
Áður en Árni Hallgrímsson fluttist
úr Skagafirði, var hann þegar 'oúinn
að fá á sig mikið orð fyrir gáfur. Mér
eru tvö atvik minnisstæð frá þessum
árum, sem þetta efni snerti.
Það mun hafa verið vordag einn
1908, að dálítill hópur unglinga kom
saman sunnudag á sléttri grund undir
Akrafjalli í Blönduhlíð. Fundarefni
var. hvort stofnað skyldi ungmenna-
félag í sveitinni. Ég hafði fengið að
fara með eldri systkinum mínum og
nágrönnum. Man ég, að þetta var
fyrsti mannfundur, opinber, sem ég
var á.
Af þeim, sem þangað sóttu og til
máls tóku, man ég bezt eftir Árna.
233