Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1958, Síða 61

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1958, Síða 61
TIMARIT MALS OG MENNINGAR Hann talaði þarna oítar en einu sinni. Hann var urn ýmislegt ósammála frummælendum. Og hann mælti á þann hátt, sem ég hreifst af. Það var eitthvað svo bjart yfir máli hans öllu og fasi. Framkoman einkar látlaus og hlý, og fullkomin prúðmennska í mál- flutningi. Hitt var frétt, sem einhverntíma að vetrarlagi barst um sveitina, að á sýslufundi á Sauðárkróki hefði Árni lent í kappræðu við nokkra presta -— sennilega um trú- eða kirkjumál—- og borið af um ræðumennsku og rök- semdir. En þótt Árni væri prýðilega máli farinn, stundaði hann ekki ræðu- mennsku né fundarstarfsemi um æv- ina. Kyrrlát vinna, reist á íhugun og gaumgæfni, stóð honum efalítið miklu nær skapi. Hann var ágætur ritstjóri frjálslegs tímarits og átti í Iðunni margar prýðilegar greinar. Hann hafði ríkan áhuga og glöggan skiln- ing á alþjóðlegum stjórnmálum, var frjálslyndur án þess að vera nokkurn- tíma uppi í skýjunum. Og hann beitti rólyndri íhygli við hvert eitt málefni, sem fjallað var um. Hann fékkst all- mikið við þýðingar úr erlendum mál- um, einkum norsku og vann þar m. a. hæði fyrir Mál og menningu og Bóka- útgáfu Menningarsjóðs, eftir að Ið- unn hætti að koma út. Hann var rit- fær í bezta lagi, málið lipurt og fag- urt, og smekkur óbrigðull. I tímariti Máls og menningar átti hann tíðum ritdóma. Og efalítið má telja hann einhvern okkar markverð- asta ritdómara síðustu áratugi. Til þess hafði hann flesta kosti, því auk gáfna sinna, smekks og ritleikni, reyndist hann allra manna sanngjarn- astur og heiðarlegastur í dómum sín- um. Meðan ég sit við að skrifa þessar fáu línur um gamlan vin, verSur mér tíðlitið til stólsins hérna hinum meg- in við borðið, þar sem Árni sat jafn- an, er hann tók sér gönguferðir suður í Skerjafjörð og við fengum færi á að rabba saman nokkra stund. Alltaf fylgdi honum skemmtilegur og hlýr andblær með léttri gamansemi. Nú situr hann þar ekki lengur. En hver véit nú annars um það? Við skammsýnir menn kunnum harla lítil skil á því, hvað í raun gerist, þeg- ar þreytt hjarta hættir að slá. En þótt stóllinn hans sé nú auður fyrir sjónum okkar, sem enn erum hérna megin tjaldsins, lifir minningin um Árna Hallgrímsson sem stórvel gefinn, hlédrægan ágætismann. 235
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.