Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1959, Síða 75

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1959, Síða 75
ÞÁTTUR DRÓTTKVÆÐA í SÖGU HEIMSBÓKMENNTANNA einkenni þeirra hefur þess vegna ekki getað orðið til af tilviljun. Skýringar- innar hlýtur að vera að leita í því að bókmenntir voru að verða til. Og þessi skýring er augljós. Sú afstaða til kveðskaparforms sem er einkenni dróttkvæðaskálda (ofdýrkun þess) er rangan á afstöðu þeirra til innihaldsins. Satt er það að skáldin voru sér þess meðvitandi að þau voru höfundar kveð- skapar síns; þau „gera“ vísur sínar vitandi vits og eru hreykin af kveðskap sínum. I rauninni áttu skáldin sér höfundarrétt, þó næsta frumstæður væri. Þau virðast hafa haft nokkra hugmynd um „rithnupl“, svo sem sjá má af sög- unni um Auðun skáld og stefið sem hann stal frá Úlfi Sebbasyni. Samt er höfundarréttur þeirra ófullkominn: hann nær aðeins til forms, ekki innihalds. Kveðskapurinn var skáldunum tæki til að tjá staðreyndir sem höfðu ekki list- rænt gildi fyrir þau og lágu utan við sköpunarsvið þeirra. Yfirleitt lýsa skáldin aðeins staðreyndum sem þau sjálf eða samtímamenn þeirra voru vitni að. Þau hugsuðu ekki upp efni vísnanna, heldur hafði raunveruleikinn ákveðið það fyrirfram. í verkum þeirra er ekki unnt að finna nein merki um listræna ujjphugsun, en það er engan veginn sökum þess að þau virðist ekki hafa „list- rænt hugarflug“. Þau gátu ekki leyft sér listræna upjihugsun af því hún var þeim sama og venjuleg lygi. Höfundarsjálfsvitund þeirra hafði enn ekki náð því stigi að mögulegt væri að velja úr þáttum raunveruleikans, alhæfa þá og umskapa í listræn verk. Þau hafa enn ekki rétt til listrænnar umsköpunar á staðreyndum. Verk þeirra eru á báðar hliðar fjötruð staðreyndum óalhæfðs raunveruleika. Það er ekki tilviljun ein að fyrir þeim skipar íþrótt skálda sama bekk og iþróttin að synda og sitja á hesti eða skjóta af boga. Þessi skáld eru meistarar forms, en þau eru ekki fullgildir bókmenntahöfundar. Einkenni dróttkvæða, formfágun, eða „ofvöxtur formsins“, er fornlegt fyrirbæri. Það er þrep í þróun sjálfsvitundar höfundarins, fyrsta skref á braut hans til verkfrelsis. Skáldi opnast þessi skilningur, þegar því verður ljóst að það hefur sjálft sett skáldskaji í form, og af þessu sprettur ofvöxtur formsins, það er tiltölulegt sjálfstæði þess gagnvart innihaldi. Þessi ofvöxtur er eins og stökkpallur sem sjálfsvitund höfundar notar til að hefja sig yfir ópersónulega skáldskaparhefð. Þessi sjálfsskilningur hans er ófullkominn, meðan hann helzt ekki í liendur við meðvitaða listræna upphugsun. Aðeins með henni nær hann til efnisins. En dróttkvæðaskáldum var þetta enn órafjarri. Meðvitund um formið, og þar af leiðandi einnig um að vera meistari þess, hlaut af eðli sínu að koma upp í bundnu máli, en ekki óbundnu, af því að í Ijóðagerð er formið miklu áþreifanlegra. Og í þessari merkingu, það er sem meðvituð bókmenntagrein, hlýtur ljóðagerð að vera eldri en óbundið mál. TIMARIT máls og menningar 65 5
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.