Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1959, Page 76

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1959, Page 76
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR Það er ekki tilviljun ein að við höfum engar fregnir af þeim listamönnum óbundins máls sem kunna að hafa verið samtímamenn elztu skáldanna. En ekki henta allar greinir ljóðagerðar jafn vel til að vekja meðvitund um að vera meistari formsins. Ævaforn frumtegund dróttkvæða eru að sjálfsögðu lofkvæðin. Af því að ástæðan til lofgerðar er endurtekin, getur form þeirra verið næsta fast og hefðbundið, á sama tíma sem innihaldið eða að minnsta kosti hið einstaklings- bundna í þeim nær jafnan til áþreifanlegra staðreynda. Form lofkvæðanna er eins og eyðublað sem er fyllt út með persónulegum upplýsingum, — nafni hins lofaða, ætterni hans, herdáðum, örlæti og svo framvegis. Einmitt í þeim teg- undum, þar sem formið eignast eins konar sjálfstæði vegna breytilegra ein- staklingsbundinna atriða, getur vaknað meðvitund um formið sem slikt, og þar getur það auðveldlega vaxið úr hófi. Og hversu hefðbundið sem þetta form var, varð að endurnýja það í hverju nýju lofkvæði, enda voru skilyrði einmitt í þeim sérlega hentug til að skapa skáldi meðvitund um að vera meist- ari formsins, það er sjálfsvitund einstaklingsins sem höfundar. Sömu skilyrði eru í þeim kveðskap er hefur ekki þann tilgang að lofa, heldur að niðra, það er í níðinu. Þessar tvær helztu gerðir dróttkvæða eru eins og sömu stærðir, en með andstæðum forteiknum. Báðar einkennir þær skortur á venjubundinni efnismeðferð; efni þeirra ákvarðast ekki af venju, heldur af atburðum, staðreyndum, og í þeim báðum er því varðveitt frjálsræði til að kveða vísur í hefðbundnu formi. Það er einkennandi sem nútímasafnendur þjóðfræða fullyrða, að ein aðalundirstaða einstaklingsbundins kveðskapar, það að mæla af munni fram, sést allra bezt í þeim alþýðukveðskap sem er ekki hefðbundins efnis, það er fyrst og fremst í harmljóðum (grafljóðum). Sömu einkenni forms og efnis koma einnig fram í lausavísum skáldanna. I þeim ríkir sami „ofvöxtur formsins“ og sama „hlutleysisviðhorf“ til efnis. Staðreyndirnar sem þar er sagt frá eru alltaf einstaklingsbundnar, en aldrei dæmigerðar né almennar, ■—- það er sannleikur staðreyndanna, en ekki sann- leikur listarinnar. Þessar staðreyndir eru venjulega mjög tilviljunarkenndar, koma einu sinni fyrir, lítilvægar, í molum, óskiljanlegar og ógildar sem stað- reyndir raunveruleikans, eru ekki alhæfðar í listrænni upphugsun, og höfund- ur hefur ekki umbreytt þeim við að velja úr þeim til listrænnar framsetningar. Á hinn bóginn voru þessar ýkjur í formi sem einkenndu dróttkvæði ekkert fráhvarf frá raunveruleikanum. Þvert á móti voru þau samtímamönnum að nokkru leyti alvarlegri og raunhæfari en kveðskapur síðari tíma manna gat 66
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.