Tímarit Máls og menningar - 01.04.1959, Page 85
SIGURÐUR .IÓNSSON FRÁ BRÚN
Ljóðbönd og stemmur
LJÓðbönd mætti nefna einu nafni
þau auðkenni sem bundið mál
hefur umfram lausa ræðu, en um það
efni skal hér rætt auk þess, sem drep-
ið mun verða ó eina aðferð til flutn-
ings sumra kvæða. Þar má að vísu um
ýmislegt deila, því ekki er hægt að
heimta, að allir hafi sama smekk né
viti hið sama um umræðuefni sitt,
hvort sem þessu nafni nefnist eða
öðru, flesta skortir nokkuð á fyllstu
þekkingu, hvað sem reyna skal, veit
þá einn þetta en annar hitt og enginn
sumt, en fremur mætti vænta aukinn-
ar fræðslu ef um er rætt heldur en ef
hver og einn bítur sig fastan í eina
skoðun að öðrum órannsökuðum.
Það er alkunna að jafnvel hinum
hezt menntu og beztu skáldum hefur
stundum skemmtilega missýnzt um
verkefni skálda og verklag svo sem
sjá má á ólíkum viðhorfum Jónasar
Hallgrímssonar og Einars Benedikts-
sonar að því er snertir rímur, sem
annar fordæmdi, en hinn orti sjálfur.
En þar sem slíkum mönnum ber ekki
saman verður ekki talið að fallinn sé
fullnaðarúrskurður og sýnist þá dóm-
urinn híða yngri manna. Er það nokk-
ur uppörvun til tilraunar við dóm-
störf þau að reynslan sannar að dóm-
greind almennings hefur orðið drjúg-
góð sía og ljóðvit og skáldhugir hafa
náð þroska á ólíklegum stöðum.
bannig er Hómer talinn að hafa ver-
ið blindur og var vissulega vaxinn
upp úr lítt lærðu umhverfi og Egill
Skallagrímsson sennilega ólæs og úr
engu frjósamlegra menningarsvæði
sprottinn, en samt kunnu þeir báðir
svo að haga orðum sínum og byggja
upp atburðalýsingar að áhrifum
mátti valda á eigin tíma og upp eftir
öldum. Má það furðanlegt kalla að
Agli skyldi takast að fá hirðmenn Ei-
ríks og Gunnhildar til að læra og
geyma þessa reyndar einstöku skáld-
skaparleysu sem Höfuðlausn er að
leystum ljóðböndum. Helzt verður
það skýrt með því að hann hafi átt
ráð á túlkunarbrögðum alveg óvenju-
legs máttar, nema bragarhátturinn
valdi þeim töfrum, en slík túlkunar-
hrögð virðast engin hugsanleg nema
einhvers konar söngur eða kveðandi:
söngur í Jijónustu orðsins en ekki í
75