Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1960, Síða 5

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1960, Síða 5
RITSTJ ORNAKGREIN Njósnir eru njósnir, segja þeir, og lofthelgisbrot flugvéla eru siðferðilega óæskileg, en dag- legt brauð í reyndinni. Ekkert er sjálfsagðara en að fylgja Bandaríkjantönnum eftir á þann hólm sem þeir velja sér og sleppa hinum „ógildu" mælikvörðum, hvort sent þeir eru siðferðilegir eða lögfræði- legir. Það er velkunnugt að herstjórnir láta sig ekki muna um að fremja fullveldisbrot gagnvart öðrum ríkjum, með flugvélum eða á annan hátt, einkum ef þau ríki eru ekki lík- leg til að geta borið hönd fyrir höfuð sér. Bandaríkjamenn hafa t. d. látið það kvisast að þeir hafi nýlega ljósmyndað alla Kúbu ór lofti — úr U-2-flugvélum. Arið 1958 þurftu þeir að setja innrásarher á land í Líbanon eins og mönnum mun í fersku minni. Þeir sendu þá herflutningaflugvélar frá Vestur-Þýzkalandi til Kýpurs, sem brutu lofthelgi Sviss og Aust- urríkis svo reglulega að þessi tvö ríki voru neydd til að hera fram mótmæli. Þessar full- veldisyfirtroðslur voru aðeins siðferðilega ámælisverðar en ekki pólitískt. Bandaríkjamenn telja flugferðir sínar yfir Sovétríkjunum hliðstæðar loflhelgisbrotum gagnvart Kúbu, Sviss, Austurriki. Samkvæmt „raunsæispólitíkinni" er aðeins dæmt eftir afleiðingum (eða afleið- ingaleysi) athafnanna. Bandaríkin hafa því rekið árangursríka pólitík með njósnaflugi sínu yfir Sovétríkjunum; þeint hefur tekizt að ljósmynda iðjuver og hernaðarstöðvar. Ilinsvegar liafa þeir sýnt með athæfi sínu að þeir voru tilbúnir að hleypa heiminum í bál og brand. Þetta er mergurinn málsins. Flugferðir þær sem Bandaríkjamenn hafa tíðkað yfir Sovét- ríkjnnuni hefðu getað komið af stað þriðju heimsstyrjöldinni, á tímum atómsprengna og flugskeyta, þegar eina vörnin samkvæmt margbásúneruðunt yfirlýsingum herfræðinganna felst í því að senda af stað gagnárásarskeytin áður en árásarskeytin eru fallin. Hammar- skjöld, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, hefurlátið í ljós þá skoðun að geigvænlegust hætta stafi nú af því að stríð geti brotizt út af tæknilegri slysni, en ekki af því að eitthvert ríki muni hrinda því af stað viljandi. Það eru ósköp liins sjálfvirka stríðs. Eins og fyrr er sagt liafa Ameríkumenn ekki svarað því hvað þeir hefðu tekið til hragðs ef sovézk flugvél hefði flogið inn yfir Ameríku í söniu hæð og með sama hraða og atómsprengjuflugvél. Mannkynið á ef til vill nokkuð að þakka því, þó einhverjum nnini finnast skrítið, að rúss- neskar taugar eru óbilaðri en bandarískar, eins og Critic (Kingsley Martin) kemst að orði í New Statesman 28. maí sJ. Bandaríkjamenn hafa brotið ótvíræð alþjóðalög með flugi sínu yfir erlendu ríki: látum það vera. Hugsjónamennirnir stunda njósnir án nokkurrar blygðunar: það er ekki tiltakan- legt. Þeir sendu ennfremur njósnaflugvél sína 1. maí yfir Sovétríkin í storkunarskyni rétt fyrir alþjóðlegan fund sem ef til vill hefði getað orðið gagnlegur: þeir um það. En þeir hljóta að verðskulda þungan áfellisdónt fyrir að reka njósnir sínar með þvílíku oflæti eins og þeir bæru enga ábyrgð á lífi mannkynsins og dauða. Unt þann dóm er ekki hægt að spyrja í alvöru hvort hann sé siðferðilegur eða „raunsæispólitískur" ... Bandaríkjantenn neita að þeir þurfi að standa reikningsskap gerða sinna. — Utanríkis- ráðherra Noregs hefur lýst því fyrir sitt leyti hvernig liann ímyndar sér að heimspólitísk afstaða kosti enga ábyrgð. Hallvard Lange er stjórnmálamaður sem hefur þjónað handalagspólitík Ameríkumanna af meiri dyggð en flestir aðrir. Forgöngu hans mega þeir víst þakka að hafa teymt Dan- mörku og Island á eftir Noregi inn í Atlantshafsbandalagið á sínum tíma. Þó einstaka 147
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.