Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1960, Page 39

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1960, Page 39
UPPRUNI ÍSLENZKÍIAR MENNINGAR ar í fornum sið'. Hér á landi virðist líkbrennsla aldrei hafa tíðkazt eins og í Noregi. íslenzk skáldmennt var einn- ig sérstæð. Þótt dróttkvæðalist hafi eitthvað verið stunduð í Noregi, virð- ist hennar gæta furðu lítið, eftir að ís- lendingar hafa numið hér land. Hér á landi hafa fundizt ýmsir forngripir, sem eiga sér ekki hliðstæður frá Nor- egi. Jafnvel tízka í nafngiftum manna var hér önnur en þar. Við þenna lista mætti bæta öðrum atriðum, þótt hitt verði að sjálfsögðu að hafa í huga, að heimildir um sögu Islands eru iniklum mun auðugri en vitað verði um Noreg. En niðurstaðan verður þó ávallt á þá lund, að munur þessara tveggja þjóða hefur frá upphafi ís- lands byggðar verið of mikill til þess, að menning þeirra geti talizt ein og hin sama. Vandamálið um uppruna íslenzkr- ar menningar er engan veginn auð- leyst, og eflaust mun margt nýtt koma í ljós, þegar kenningar Barða Guð- mundssonar hafa verið rannsakaðar og ræddar til hlítar. Ritgerðir hans bera það glögglega með sér, að rann- sóknin er enn á frumstigi. Hann hefur sýnt fram á ýmiss konar efnisatriði, sem hægt er að beita við könnun á forsögu íslendinga, en við þau má eflaust bæta öðrum þáttum af svipuðu tagi. íslenzkum heimildum fornum ber yfirleitt saman um, að landnámsmenn hafi flestir komið úr Noregi. Þó er það athygli vert um Landnámu, að þess er oft ekki getið, hvaðan land- námsmenn komu, en fræðimenn, sem hafa reiknað út hlutfallstölu norskra innflytjenda, virðast yfirleitt hafa tal- ið alla landnámsmenn norska, ef þess var ekki sérstaklega getið, að þeir hafi komið frá Vesturlöndum. í rauninni er það tilgangslaust að reyna að ákveða, hve mikill hluti landnáms- manna er kominn austan um haf og hve margir hafi komið frá Suðureyj- um og írlandi. Björn Þorsteinsson telur í riti sínu um íslenzka þjóðveld- ið, að samkvæmt rituðum heimildum virðist um 84% landnámsmanna hafa komið frá Noregi, um 12% vestan um haf, flestir af norrænum uppruna, og 3% frá Svíþjóð, en einn landnemi frá Danmörku.1 En Jón Jóhannesson seg- ir í íslendinga sögu sinni: „Af Land- námabók má ráða, að landnámsmenn hafi ýmist komið frá Noregi eða norsku nýbyggðunum vestan hafs, þótt það sé ekki alltaf tekið fram.“2 Það er alveg út í hött að reikna eftir svo ófullkomnum heimildum, sem oss eru tiltækar, hver hlutföllin voru milli vestrænna og austrænna landnáms- manna. Sumir fræðimenn hafa lagt tölu- verða áherzlu á hlutdeild keltneskra manna í landnáminu, en bezt er að fara varlega í þær sakir. Að vísu virð- ast mannfræðirannsóknir benda í þá átt, að fleiri Keltar hafi komið við sögu vora en beinlínis verði ráðið af 181
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.