Tímarit Máls og menningar - 01.06.1960, Síða 41
UPPRUNI ÍSLENZKRAR MENNINGAR
þau miklu fremur komin frá sam-
eiginlegum uppruna á meginlandi
Evrópu. Af íslenzkum heimildum
verður ráðið, að dróttkvæðalist var
stunduð við hirðir konunga í Noregi,
Svíþjóð og Danmörku, áður en Island
var byggt, og það er engin ástæða til
að ætla, að hún hafi fremur heyrt
Noregi til en hinum löndunum. Snorri
Sturluson gefur í skyn, að drótt-
kvæðalistin hafi borizt snemma til
Svíþjóðar sunnan úr álfu, og væri
slíkt miklu aðgengilegri kenning en
hin, að hún hafi þróazt í Noregi fyrir
írsk áhrif.
Við rannsóknir á uppruna íslend-
inga getur verið forvitnilegt að bera
þá saman við nýbyggðir norrænna
manna fyrir vestan haf. Hjaltland
mun hafa byggzt frá Noregi þegar á
síðara hluta 8. aldar, eða ef til vill
enn fyrr. En á fyrri hluta 9. aldar
virðast Orkneyjar, Suðureyjar og
Færeyjar hafa verið numdar af nor-
rænum mönnum. í löndum þessum
var norræn tunga töluð um langan
aldur, og svo er enn í Færeyjum. En
öll þessi lönd virðast hafa verið tölu-
vert frábrugðin íslandi að menningu,
nema einna helzt Færeyjar. Orkneyj-
ar lutu jörlum frá því snemma á nor-
rænum tíma, og jarla gætir snemma í
Suðureyjum. Bæði í Orkneyjum og á
Hjaltlandi gilti óðalsréttur frá fornu
fari og raunar langt fram eftir öldum.
í Suðureyjum, Hjaltlandi og Orkn-
eyjum virðist goðorðaskipan aldrei
hafa þekkzt. Og í löndum þessum eru
örnefni að ýmsu leyti frábrugðin því,
sem hér hefur tíðkazt. Sem dæmi má
nefna, að orðið sœtur (og setur) er
algengur liður í bæjarheitum þar, en
kemur aldrei fyrir í bæjanöfnum á Is-
landi. Einkum virðast bæjarnöfn á
Hjaltlandi hafa verið mjög frábrugð-
in hinum íslenzku, en slíkt verður
ekki skýrt með þeim rökum einum, að
Hjaltland byggðist svo löngu á undan
íslandi. Yfirleitt virðist margt benda
í þá átt, að íbúar þessara eyja hafi
verið af öðrum stofni en íslendingar.
Þó ætla ég, að í suðurhluta Suður-
eyja, þar sem norskra áhrifa á gelíska
tungu virðist gæta minna en í norður-
hluta eyjanna, bendi örnefnin á meiri
tengsl við íslenzkar venjur. Og það
er einmitt frá þessum eyjum, sem mér
finnst sennilegast, að íslenzkir inn-
flytjendur frá Suðureyjum hafi kom-
ið.
Sé málum þann veg farið, að
meginhluti íslendinga hafi komið
hingað austan um haf, verður að
reyna að skýra þann mikla mun, sem
er á menningu íslendinga annars veg-
ar og íbúa Skandinavíu hins vegar.
Og hér getur enginn vafi á því leikið,
að Barði Guðmundsson var á réttri
leið. Tiltækilegasta skýringin er sú,
að íslenzkir landnámsmenn hafi að
vísu flestir komið frá Noregi, en hafi
þó búið við aðra menningu en þá,
sem þar varð mestu ráðandi. Þjóð vor
er því eldri en íslands byggð, eins og
183