Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1960, Side 43

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1960, Side 43
UPPRUNI ÍSLENZKRAR MENNINGAR manns ósjálfrátt að konungsleysi ís- lendinga. Um Herúla er þess sem sé getið, að konungar máttu sín fremur lítils, heldur urðu þeir að lúta vilja manna sinna. Og um 500 e. Kr. tóku Herúlar sig til og drápu konung sinn, og er það tekið fram í heimildum, að tiltæki þetta stafaði ekki af því, að konungur hefði brotið neitt af sér, heldur af hinu, að Herúlarnir vildu ekki hafa neinn konung yfir sér leng- ur. En stjórnbylting Herúla átti sér þó ekki langan aldur, því að síðar sáu þeir sig um hönd og ákváðu að fá sér konung að nýju. Draumur Herúla um konungslausa þjóð rættist ekki fyrr en úti á Islandi á 10. öld. Sú hug- mynd, sem kemur fram í Sturlungu á 13. öld, að bezt sé engum að þjóna, er því ekki nýtt fyrirbæri. Sama hug- mynd átti sér formælendur með Her- úlum mörgum öldum fyrr. Sá hluti Ynglinga sögu, sem fjallar um för Óðins frá Svartahafi til Sví- þjóðar, virðist eindregið benda til þess, að íslendingar hafi varðveitt með sér arfsagnir af för Herúla að sunnan. Og af þeim stofni mun ís- lenzka þjóðin vera runnin. Frásögnin í fyrstu köflum Ynglinga sögu er því frumdrög að forsögu íslenzku þjóðar- innar. Þar koma fram ýmis helztu ein- kenni heiðinnar menningar íslend- inga: skáldskaparlistin þegin frá Óðni, hofgoðar, rúnir, fjölkynngi, Óðinsdýrkun. Það er nú orðin allgömul kenning, að Herúlar hafi flutt rúnalistina til Norðurlanda. Að sjálfsögðu hefur sú list aldrei orðið almenningseign, held- ur mun það sönnu nær, að hinn mikli fjöldi fundinna rúnaristna auk hinna, sem ófundnar eru, séu verk fámennr- ar stéttar rúnameistara. Á rúnaristum sumum kemur fyrir heitið jarl, sem fræðimenn telja sama orðið og Herúli (Erúli). En svo takmörkuð sem rúna- listin hefur verið á Norðuriönduin, hefur hin gjöfin, sem þegin var frá Óðni, verið enn torgætari. Eins og áður var bent á, er kunnugt um, að dróttkvæðalist var stunduð við ýmsar hirðir konunga á öndverðri 9. öld. Bragi gamli, sem var uppi á fyrri hluta 9. aldar og virðist hafa átt heima í Noregi, orti um sænska og danska konunga. Fleinn Hjörsson, sem var uppi um svipað leyti, dvaldist með hirð konunga á Upplöndum í Noregi og einnig við danska konungs- hirð. í Skáldatali er það tekið fram, að Starkaður sé elzta skáldið, sem enn sé varðveitt eitthvað af skáldskap hans. Og þótt allt leiki mjög á huldu um Starkað, bendir þetta þó til þess, að íslendingar hafi varðveitt með sér fornar sagnir um danskan hirðkveð- skap, sem var eldri en skáldskapur Braga. Yfirleitt er ekkert, sem bendir til þess í fornum frásögnum, að drótt- kvæðalistin sé norsk. Þegar er bent á ummæli Snorra í Ynglinga sögu, að Óðinn, sem settist að í Svíþjóð, hafi gefið mönnum þessa list. Og hér má 185
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.