Tímarit Máls og menningar - 01.06.1960, Page 56
TIMARIT MALS OG MENNINGAR
útvegsins í árslok 1958 var allmiklu
hærri en í lok maí 1958, þegar síðari
lögin „um útflutningssjóð o. fl.“ voru
samþykkt á Alþingi. Árið 1958 urðu
grunnkaupshækkanir umfram það,
sem vænzt var, þegar lögin voru sam-
in. Og kaupgreiðsluvísitalan hækkaði
úr 185 stigum í 202 stig 1. desember
1958. Við þessum nýja fjáröflunar-
vanda var brugðizt með tvennu móti.
I fyrsta lagi var verðlag greitt niður,
eins og svaraði til lækkunar kaup-
greiðsluvísitölunnar niður í 185 stig,
og kaupgjald jafnframt stýft, eins og
svaraði til 10 stiga kaupgreiðsluvísi-
tölunnar. I öðru lagi voru sjávarút-
veginum heitin ný framlög, sem áætl-
uð voru 77,5 milljónir króna. Að
þessum ráðstöfunum loknum var tal-
ið, að hagur sjávarútvegsins 1959
yrði jafn góður og 1958 að óbreyttum
útflutningsuppbótum.
Utflutningsuppbætur 1959 urðu
jafn háar sem 1958, eins og um var
samið. Fallizt var á greiðslu vátrygg-
ingariðgjalda fiskibáta, bæði almenn
og vegna bráðafúatrygginga. Um
sumarið 1959 voru hækkaðar útflutn-
ingsuppbætur á síldarafurðir og hval-
afurðir.
Niðurgreiðslur innlends vöruverðs
voru ráðgerðar nær tvöfalt bærri að
upphæð en 1958.
Framlög til sjávarútvegsins vegna
misgóðrar aðstöðu til útflutnings-
framleiðslu voru aukin. Tvenns konar
nýjar vinnslubætur voru teknar upp.
Á allan fisk, saltaðan eða hei tan, voru
greiddar vinnslubætur, saltfisks- og
skreiðarbætur. Á saltaðan fisk af tog-
urum, sem veiddur var eftir 15. maí,
voru að auki greiddar aðrar vinnslu-
bætur, árstíðabætur á saltfisk togara.
Gömlu vinnslubæturnar þrenns konar
voru hækkaðar mjög. Yfirlit yfir hæð
vinnslubótanna 1957—1959 er sýnt í
töflu V.
Yfirlit yfir áætluð framlög úr milli-
færslukerfinu á framleiðslu 1959 og
niðurgreiðslur vöruverðs á því ári er
sýnt í töflu II, dálki 3. Til þess að
standa straum af auknum útgjöldum
1959 voru tekjur Útflutningssjóðs
auknar á tvo vegu. Utflutningssjóði
var á fjárlögum fyrir 1959 áætlað til-
lag úr ríkissjóði að upphæð 152,1
milljón króna. Ákveðið var að auka
innflutning bíla svo mjög, að tekjur
Útflutningssjóðs af aðflutningsgjöld-
um á bílum bækkuðu um liðlega 37
milljónir króna. Að fengnum þessum
tekjuaukum var talið, að tekjur Út-
flutningssjóðs 1959 næmu 1344,4
milljónum króna. Gjöld Utflutnings-
sjóðs voru áætluð lítið eitt lægri. —
Tekjur Útflutningssjóðs 1959 urðu
1312.9 milljónir króna, en greiðslu-
halli sjóðsins var metinn á 26,7 millj-
ónir króna.
iv. Millifærslukerfið hélzt óbreytt
frá 1959 tímabilið 1. janúar — 15.
febrúar 1960. Utflutningssjóðslögin
síðari voru felld úr gildi 20. febrúar
1960.
198