Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1960, Side 73

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1960, Side 73
STYRJALDIR OG VIÐSKIPTAFRELSI ann að yfirlögðu ráði — einungis til að kveða niður uppreisnarandann . .. Hvarvetna sáust þess merki, að fólk var orðið þreytt á að dansa eftir hljóðpípu iðjuhöldanna. Sigur og sæmd voru löngu úrelt hugtök. Það var nú deginum ljósara, að styrjöldin var til bölvunar öllum aðilum og frá öllum sjónarmiðum. Hún fullnægði hvorki hugsjónum, metorðagirnd, eða þjóðlegum metnaði . .. Þýzkaland hafði byggt áætlanir sínar á voninni um skammæja styrj- öld og glæsilegan sigur. Við upphaf stríðsins nægðu hráefnabirgðir lands- ins tæplega til eins árs hernaðar á tveim vígstöðvum, og bandamenn hefðu því getað sigrað keisarann fyr- ir árslok 1915, ef þeir hefðu strax lagt viðskiptabann á Þýzkaland. En það hefði jafngilt því að byrgja beztu tekjulind styrjaldarinnar: viðskiptin við fjandmennina! Fyrstu þrjú styrj- aldarárin linnti ekki vöruflaumnum inn í Þýzkaland — um Holland, Sviss og Skandinavíu, — en án þessarar stöðugu blóðgjafar var vonlaust að halda styrjöldinni áfram. Þessu hélt fram þar til Bandaríkin fyrtust við og mótmæltu því, að England — erki- óvinur Þýzkalands — bolaði þeim frá evrópumarkaðnum! Þýzka auðvaldið hafði ekki heldur látið gróðamögu- leikana ónotaða: fram að ársbyrjun 1917 seíidu Kruppverksmiðjurnar í Essen fjórðung milljónar tonna af stáli á mánuði um Sviss til Comité des Forges í Frakklandi. Auk greiðslu í gulli fengu þær loforð um, að frönsku flugmennirnir skyldu varast að varpa sprengjum á málmnámurnar, bræðsluofnana og verksmiðjubygg- ingarnar í Longwy-héraðinu, sem þjóðverjar höfðu hernumið í byrjun stríðsins. Skip hlaðin nikli frá Nýju Caledoníu, er fara átti til Þýzkalands, voru stöðvuð af frönskum herskipum á opnu hafi og siglt til Brest og Cher- bourg sem herfang, — en franska stjórnin gaf skipun um að þeim skyldi sleppt og þau komust til Bremen heilu og höldnu! Fulltrúar þýzka efnaiðn- aðarins, svissneskir kopariðjuhöldar, frá Vickers, Krupp, Schneider-Creu- sot og Comité des Forges hittust í Vín- arborg um sama leyti og franski her- inn barðist upp á líf og dauða í leðj- unni í Flandern. Tilefni fundarins var það eitt, að leggja á ráðin um hvern- ig ætti að örva stríðsgróðann sem mest. „On croyait mourir pour la patrie, on mourait pour les indus- triels,“A sagði Anatole France, þegar hann heyrði skýringu Bérengers ráð- herra á því, hversvegna málmvinnslu- héraðið Thionville var ekki endur- heimt úr greipum þjóðverja í byrjun stríðsins, þegar franski herinn, sem var steinsnar í burtu, hefði getað tek- ið það mótspyrnulaust. Bérenger lýsti því yfir, að „endurheimt Thionville hefði jafngilt þvi, að stálframleiðsla 1 Menn héldu að þeir dæju fyrir föður- landið; menn dóu fyrir iðjuhöldana. 215
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.